Súdan I
- IV eru litarefni sem notað er til að lita leysiefni, olíur, vaxefni,
bón, bensín, og skófatnað. Það er ekki leyfilegt að nota litarefnið í
matvæli.
Súdan
litarefnið hefur á undanförnum mánuðum mælst í þurrkuðum, möluðum,
sterkum chílepipar frá Indlandi og afurðum úr honum. Súdan litarefnið
hefur einnig mælst í ýmsum vörum svo sem pastasósum og kryddblöndum sem
innihalda chílepipar. Ferskur chílepipar er í lagi. Nær því daglega
berast Matvælastofnun tilkynningar frá evrópska viðvörunarkerfinu
fyrir matvæli og fóður um nýjar vörur sem innihalda Súdan litarefnið.
Súdan
litarefnið er talið vera krabbameinsvaldandi en magnið sem er í vörunum
sem mælst hafa með litarefninu er í það litlum skömmtum þannig að það á
ekki að vera skaðlegt nema borðað sé mikið af chílepiparkrydduðum mat
til lengri tíma.
a) Sudan I (CAS númer 842-07-9);
b) Sudan II (CAS númer 3118-97-6);
c) Sudan III (CAS númer 85-86-9);
d) Sudan IV / Skarlatsrauður (CAS númer 85-83-6).
Innflutningur
á chílepipar og afurðum úr honum er bannaður nema sýnt sé fram á með
rannsóknarvottorði að hann innihaldi ekki litarefnið.
Auglýsing nr. 772/2005 sem nú er í gildi takmarkar innflutning á eftirfarandi vörum vegna endurtekinna tilvika þar sem matvælaeftirlit Evrópulanda hafa greint ólögleg Súdan litarefni í vörunum :
-
þurrkuðum, gróf- eða fínmöluðum
sterkum chílepipar af ættinni Capsicum og afurðum úr honum sem falla
undir tollskrárnúmerin 0904.1200 og/eða 0904.2009;
-
karrí og afurðum úr því sem falla undir tollskrárnúmerið 0910.5000.
-
túrmerík sem fellur undir tollskrárnúmerið 0910.3000,
-
pálmolíu sem fellur undir tollskrárnúmerin 1511.1001 og/eða 1511.1009.
Ofangreindar vörur eru notaðar sem hráefni í önnur matvæli.
Ógerlegt er að setja sértækar takmarkanir á innflutning þessara matvæla
enda um gríðarlegan fjölda vörutegunda að ræða, sem gætu innihaldið
þessi hráefni. Í gegnum RASFF, (Rapid Alert System for Food and Feed)
evrópska viðvörunarkerfið fyrir matvæli og fóður sem Matvælastofnun
er tengiliður við, berast reglulega tilkynningar um að notuð séu
hráefni í ýmsa þurrvöru og tilbúin matvæli sem innihalda súdan
litarefnin. Einkum er hér um að ræða kryddblöndur (þ.a.m. karrý,
indverskar kryddblöndur; tandoori, graam masala), chutney, relish,
chílesósur, bragðsterkar tómatsósur, pastasósur, pestosósur,
salatdressing, tacosósur, Chíle con carni, niðurlagðan fisk með
chílepipar, og rautt spagetti/pasta.
Til að
stemma stigu við notkun þessara ólöglegu litarefna er nauðsynlegt að
allir aðilar vinni saman. Innflytjendur og innlendir framleiðendur
verða að vera gagnrýnir á hvaða hráefni og matvæli þeir flytja inn eða
framleiða. Sjálfsagt er að óska eftir staðfestingu (s.s. skrifleg
yfirlýsingu eða rannsóknavottorð) birgja á því hvort umræddar vörur
innihaldi ekki súdan litarefni eða önnur ólögleg efni. Matvælastofnun og heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga munu nú sem fyrr
gera sitt besta til að tryggja íslenskum neytendum örugg matvæli. Með
samstilltu átaki næst árangur.