Með nýjum matvælalögum er það á ábyrgð stjórnenda matvælafyrirtækja að stöðva dreifingu matvæla, taka þau af markaði og innkalla þau frá neyendnum ef þeir hafa vitneskju um að matvæli séu ekki örugg og geti þar með valdið neytendum heilsutjóni. Ákvæðið er sett fram í 19. gr. reglugerðar (EB) nr. 178/2002, með síðari breytingum, sem innleidd var með reglugerð nr. 102/2010.
Matvælafyrirtæki sem hefur ástæðu til að ætla að matvæli sem það hefur keypt eða selt uppfylli ekki kröfur um örugg matvæli eru ábyrg fyrir því að:
-
Dreifing matvælanna sé stöðvuð, þau tekin af markaði og þau innkölluð frá neytendum ef þörf er á
-
Veita hugsanlegum birgja um upplýsingar um málið svo hann geti haft samband við aðra kaupendur vörunnar.
-
Upplýsa eftirlitsaðila um innköllun, ástæður hennar og aðgerðir sem gripið hefur verið til
-
Senda út fréttatilkynningu ef varan er komin til neytenda.
-
Skrá upplýsingar um aðgerðir svo hægt sé að sýna fram á að aðgerðir hafi náð til allrar þeirra vara sem lágu undir grun.
Stjórnendur matvælafyrirtækja skulu setja upp verklag sem lýsir því hvernig þeir ætla að standa að innköllun matvæla.
Ítarefni
Leiðbeiningar um innleiðingu á 19. grein EB/178/200 um innköllun