Reglugerð nr. 882/2004/EB um opinbert eftirlit til að staðfesta að lög um fóður og matvæli og reglur um heilbrigði og velferð dýra séu virt
Helsta gildissvið er opinbert eftirlit í ESB-löndum með fóðri, dýraheilbrigði og dýravelferð og sambærilegt eftirlit við innflutning til ESB frá þriðju ríkjum. Skoða verður ákvæði þessarar gerðar með hliðsjón af ákvæðum matvælareglugerðar (EB) nr. 178/2002, heilbrigðisreglugerða nr. 852/2004, 853/2004, 854/2004 og reglugerðar (EB) nr. 183/2005 um fóðurheilbrigði.Í reglugerðinni eru settar fram almennar reglur um opinbert eftirlit með matvælum og fóðri og er henni ætlað að auka neytendavernd og ítrekað að ábyrgðin liggi hjá rekstraraðilum matvælafyrirtækja.Nýjar áherslur í eftirliti koma fram í inngangsorðum og eru útfærðar í einstökum greinum t.d. að eftirlit skuli byggt á áhættumati, vera einsleitt og hlutlaust og að eftirlitsmenn skuli hafa tilskylda menntun og færni til að sinna því. Jafnframt eru ákvæði um hvernig innflutningseftirliti með matvælum og fóðri skuli háttað. Reglugerð nr. 106/2010 um gildistöku reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins nr. 882/2004 um opinbert eftirlit til að staðfesta að lög um fóður og matvæli og reglur um heilbrigði og velferð dýra séu virt.
Breytt með reglugerð nr. 776/2006, 180/2008 (gr. 2), 301/2008, 737/2008 (viðauki VII)
Leiðbeiningar og tengt efni:
Ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar nr. 2006/677 um leiðbeiningar fyrir úttektir (audits) í samræmi við ákvæði reglugerðar 882/2004 (enska).
Langtímaeftirlitsáætlanir
Ákvarðanir framkvæmdastjórnarinnarinnar nr. 2007/363/EC og nr. 2008/654 um leiðbeiningar við gerð fjölára (multi-annual) eftirlitsáætlana í samræmi við ákvæði reglugerðar nr. 882/2004/EB
Langtímaeftirlitsáætlun fyrir Svíþjóð
Innflutningseftirlit
Innflutningur af dýraafurðum frá ríki utan ESB.
Leiðbeiningar varðandi innflutning matvæla.
Fyrirspurnir sendist til mast@mast.is – merktar “Ný matvælalöggjöf”