Reglugerð nr. 854/2004/EB um skipulag opinbers eftirlits með afurðum úr dýraríkinu sem ætlaðar eru til manneldis
Reglugerðin snýr að yfirvöldum sem hafa eftirlit með framleiðendum matvæla af dýrauppruna. Eftirlit yfirvalda skal ná til allra mikilvægra þátta sem varða heilbrigði fólks og þar sem við á heilbrigði dýra og dýravelferð. Yfirvöld skulu framkvæma sérstakar skoðanir til að tryggja þessa þætti. Reglugerðin er til fyllingar reglugerðar nr. 882/2004/EB um opinbert eftirlit.
Í reglugerðinni eru settar fram almennar reglur um opinbert eftirlit með afurðum úr dýraríkinu sem eru ætlaðar til manneldis. Þar segir m.a:
- Opinbert eftirlit með framleiðslu kjötvara er nauðsynlegt til að ganga úr skugga um að rekstraraðilar matvælafyrirtækja fari að reglum um hollustuhætti og virði viðmiðanir og markmið sem mælt er fyrir í reglugerð 853/2004/EB
- Opinber eftirlitsaðili ber ekki ábyrgð á því hlutverki rekstraraðila matvælafyrirtækja að tryggja öryggi matvæla
Reglugerð nr. 105/2010 um gildistöku reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins nr. 854/2004 um sértækar reglur um skipulag opinbers eftirlits með afurðum úr dýraríkinu sem eru ætlaðar til manneldis.
Breytt með reglugerðum nr. 2074/2005, 2076/2005, 1663/2006, 1021/2008
Leiðbeiningar og tengt efni:
Leiðbeiningar um HACCP
Staðall CODEX alimentarius um hollustuhætti við framleiðslu og dreifingu matvæla
Fyrirspurnir sendist til mast@mast.is – merktar “Ný matvælalöggjöf”