Reglugerð nr. 852/2004/EB um hollustuhætti sem varða matvæli
Reglugerðin fjallar almennt um öll matvæli og er beint að matvælafyrirtækjum og stjórnendum þeirra sem bera frumábyrgð á að tryggja að allar kröfur séu uppfylltar til að tryggja matvælaöryggi í allri matvælakeðjunni frá hafi og haga til maga. Fyrirtæki sem framleiða matvæli úr dýraafurðum verða jafnframt að fara eftir reglugerð nr. 853/2004/EB.
Í reglugerðinni er mælt fyrir um almennar reglur fyrir stjórnendur matvælafyrirtækja um hollustuhætti sem varða matvæli, þar sem einkum er tekið tillit til eftirfarandi meginreglna:
- Stjórnendur matvælafyrirtækja eru ábyrgir fyrir öryggi matvæla
- Tryggja skal öryggi matvæli í öllu matvælaferlinu frá og með frumframleiðslunni
- Viðhalda skal órofinni kælikeðju við framleiðslu matvæla ef matvæli eru kæld eða fryst
- Beita skal góðum framleiðsluháttum og reglum HACCP við framleiðslu matvæla til að auka ábyrgð stjórnenda matvælafyrirtækja
- Stjórnendur matvælafyrirtækja skulu nýta sér leiðbeiningar um góða starfshætti svo þeir geti farið að reglum um hollustuhætti og beitt reglum HACCP
- Innflutt matvæli frá þriðju ríkjum skulu uppfylla sömu kröfur og matvæli sem framleidd eru á Evrópska efnahagssvæðinu
Reglugerðinni er beint að stjórnendum matvælafyrirtækja og frumskyldu þeirra að tryggja neytendum örugg matvæli. Hlutverk eftirlitsaðila er að sannreyna að fyrirtækin uppfylli kröfur reglugerðarinnar og skal það gert í samræmi við reglugerð nr. 882/2004/EB. Ákvæði um skráningu og starfsleyfi matvælafyrirtækja eru einnig í reglugerðinni. Reglugerð nr. 103/2010 um gildistöku reglugerðar Evrópuþingsins og Ráðsins (EB) nr. 852/2004 um hollustuhætti er varða matvæli.
Leiðbeiningar og tengt efni:
Leiðbeiningar um innleiðingu/framkvæmd ákveðinna ákvæða í reglugerð nr. 852/2004
Leiðbeiningar um HACCP
Staðall CODEX alimentarius um hollustuhætti við framleiðslu og dreifingu matvæla
Fyrirspurnir sendist til mast@mast.is – merkta “Ný matvælalöggjöf”