Reglugerð 2073/2005/EB um örverufræðileg viðmiðunargildi fyrir matvæli
Framleiðendum matvæla er, sbr. reglugerð nr. 852/2004/EB, skylt að uppfylla kröfur um örverufræðileg gæði framleiðslunnar. Því hefur Evrópusambandið gefið út reglugerð um lágmarkskröfur fyrir sýnatökur og viðmiðunargildi sem fyrirtækjum ber að fylgja. Þessar sýnatökur skulu vera hluti af innra eftirliti fyrirtækisins. Viðmiðunargildin í reglugerðinni taka aðeins til örveruþátta sem benda til þess að öryggi matvæla er stefnt í hættu og einnig örveruþátta sem gefa til kynna að hreinlæti er ábótavant.Opinbert eftirlit með þessum þáttum er aðeins til að staðfesta hvort matvælafyrirtæki fylgi þessari reglugerð og er það nýmæli að fyrirtækin sjálf eigi að sjá alfarið um sýnatöku og örverufræðilegar rannsóknir á sinni vöru. Opinber eftirlitsaðili getur ávallt krafist þess að taka sýni á kostnað fyrirtækisins til að staðfesta hvort rannsóknarniðurstöður fyrirtækisins séu réttar.Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2073/2005 frá 15. nóvember 2005 um örverufræðileg viðmiðunargildi fyrir matvæli (skjal með leiðréttingum).
Reglugerð 135/2010 um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 2073/2005 um örverufræðilegar viðmiðanir fyrir matvæli.
Leiðbeiningar og tengt efni:
Leiðbeiningar um opinbert eftirlit (ensku)
Um gerð þessara örveruviðmiðunarregla
Fyrirspurnir sendist til mast@mast.is – merktar “Ný matvælalöggjöf”