Reglugerð nr. 183/2005/EB um hollustuhætti í fóðuriðnaði
Reglugerðin fjallar um fóður og er beint að fóðurfyrirtækjum og stjórnendum þeirra sem bera frumábyrgð á að tryggja að allar kröfur séu uppfylltar til að tryggja fóðuröryggi. Fóðuröryggi er grundvöllur matvælaöryggis en dýraheilbrigði hefur stóru hlutverki að gegna í hollustu matvæla. Fóðurfyrirtæki eru tilkynningarskyld til yfirvalda og sum þurfa á starfsleyfi að halda. Þetta er nauðsynlegt m.a. til að tryggja rekjanleika fóðurs á öllum stigum. Reglugerðin nær til fóðurframleiðslu og eftir atvikum til markaðssetningar eða útflutnings fóðurs. Hlutverk lögbærs eftirlitsaðila er að sannreyna að fyrirtækið uppfylli kröfur reglugerðarinnar og skal eftirlitsaðili gera það samkvæmt ákvæðum reglugerðar (EB) nr. 882/2004. Fóðurfyrirtækjum ber hins vegar að hafa kerfi innra eftirlits með sama hætti og matvælafyrirtæki. Reglugerð nr. 107/2010 um gildistöku reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 183/2005 um hollustuhætti í fóðuriðnaði.
Leiðbeiningar og tengt efni:
Almennt um gerðina (enska)
Leiðbeiningar fyrir aðila í fóðuriðnaði (enska)
Fyrirspurnir sendist til mast@mast.is – merktar “Ný matvælalöggjöf”