Fara á forsíðu
LÖG OG REGLUR - MATVÆLALÖGGJÖF EES - 178/2002/EB

Reglugerð nr. 178/2002/EB um almennar meginreglur og kröfur samkvæmt lögum um matvæli, um stofnun Matvælaöryggisstofnunar Evrópu og um málsmeðferð vegna öryggis matvæla

 

Með reglugerðinni voru settar heildarreglur um fæðuöryggi frá frumframleiðslu til markaðssetningar matvæla. Með reglugerðinni er leitast við að gera regluverk um framleiðslu matvæla einfaldara og skilvirkara. Gildir reglugerðin á öllum stigum framleiðslu, vinnslu og dreifingar matvæla og fóðurs. Lögð er áhersla á að samræma löggjöf og eftirlit með matvælum „frá hafi og haga til maga“. Skulu sömu reglur gilda um hollustuhætti óháð því hvort um er að ræða framleiðslu eða dreifingu á kjöti, fiski, matjurtum eða unnum matvælum.

Meginmarkmið reglugerðarinnar er að efla fæðuöryggi og tryggja þannig hnökralaus viðskipti með örugg matvæli á innri markaðinum. Hagsmunir neytenda eru settir í öndvegi og munu reglur um rekjanleika matvæla leika stórt hlutverk. Með þeim mun verða mögulegt að rekja feril matvæla á öllum stigum framleiðslu og dreifingar. Ábyrgð framleiðenda og dreifingaraðila gagnvart neytendum matvæla er dregin skýrt fram. Þá er lögð mikil áhersla á skjót viðbrögð í alvarlegum tilfellum, en ESB hefur sætt gagnrýni fyrir seinagang þegar upp hafa komið atvik sem krafist hafa skjótra viðbragða. Með reglugerðinni er reynt að bregðast við því með ýmsu móti. Er m.a. gert ráð fyrir sérstökum neyðarráðstöfunum og almennri áætlun fyrir áfallastjórnun sem nær bæði til matvæla og fóðurs.

Önnur breyting sem varð í kjölfar útgáfu reglugerðarinnar er stofnun Matvælaöryggisstofnunar Evrópu, sem er staðsett í Parma á Ítalíu. Hlutverk stofnunarinnar er að framkvæma áhættumat og kynna aðildarríkjum, hagsmunaaðilum og almenningi um niðurstöður slíks mats og annað sem hún telur máli skipta varðandi öryggi matvæla. Stofnuninni er ætlað að vera sjálfstæð og óháð og með henni er skilið á milli áhættustýringar og áhættumats/áhættukynningar.

Reglugerð nr. 102/2010 um gildistöku reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 178/2002 um almennar meginreglur og kröfur samkvæmt lögum um matvæli, um stofnun Matvælaöryggisstofnunar Evrópu og um málsmeðferð vegna öryggis matvæla.


Leiðbeiningar og tengt efni:

 

Almennt um gerðina

 


Um rekjanleika


Ábyrgð framleiðanda

 

Leiðbeiningar varðandi innflutning matvæla frá 3ju ríkjum

 


Fyrirspurnir sendist til mast@mast.is – merktar “Ný matvælalöggjöf”

 

Upplýsingar

Fróðleikur frá A-Ö

A Á B C D E É F
G H I Í J K L M
N O Ó P R S T U
Ú V X Y Ý Þ Æ Ö

Spurt og Svarað