Fara á forsíðu
INNKÖLLUN MATVÆLA
Samkvæmt grein 8a í lögum um matvæli (lög nr. 93 frá 1995 með síðari breytingum) er óheimilt að markaðssetja matvæli sem ekki eru örugg þ.e. heilsuspillandi og óhæf til neyslu.

Það er á ábyrgð stjórnenda matvælafyrirtækja að stöðva dreifingu matvæla, taka þau af markaði  og innkalla frá neytendum ef þeir hafa vitneskju eða grun um að matvæli sem þeir hafa dreift geti innhaldið örverur, aðskotaefni (mengunarefni) eða aðskotahluti sem geta valdið neytendum heilsutjóni. Einnig kemur til innköllunar ef ofnæmis og óþolsvaldar eru ekki merktir á umbúðir skv.viðauka 4 við reglugerð nr. 503/2005 um merkingu matvæla.  Röng meðferð matvæla, rangar umbúðamerkingar  og innihaldsefni sem uppfylla ekki ákvæði reglugerða geta einnig orðið tilefni til innköllunar.  Tilkynna skal innkallanir til viðkomandi eftirlitsaðila. (Lög nr.93/1995 grein 8c) 

Í gegnum RASFF evrópska viðvörunarkerfið koma tilkynningar um innköllun á innfluttum matvælum sem hafa farið í dreifingu á Íslandi.

Matvælastofnun birtir í samráði við matvælafyrirtæki frétt um innköllun matvæla á heimasíðu sinni og hér má sjá yfirlit yfir þær innkallanir sem hafa verið tilkynntar.


   

Upplýsingar

Fróðleikur frá A-Ö

A Á B C D E É F
G H I Í J K L M
N O Ó P R S T U
Ú V X Y Ý Þ Æ Ö

Spurt og Svarað