16.2.2010
Hjalti Andrason
FRÆÐSLUFUNDUR: REKJANLEIKI OG INNKÖLLUN MATVÆLA
 | Matvælastofnun heldur
fræðslufund um rekjanleika og innköllun matvæla þriðjudaginn 23.
febrúar kl. 15:00 - 16:00. Á fundinum verður fjallað um kröfur um
rekjanleika og innköllun í nýju matvælalöggjöfinni, framkvæmd
innkallana og ástæður, og nýleg dæmi tekin fyrir. |
Matvælastofnun heldur fræðslufund um rekjanleika og innköllun matvæla þriðjudaginn 23. febrúar kl. 15:00 - 16:00. Á fundinum verður fjallað um kröfur um rekjanleika og innköllun í nýju matvælalöggjöfinni, framkvæmd innkallana og ástæður, og nýleg dæmi tekin fyrir.
Hægt verður að fylgjast með fundinum í beinni útsendingu og nálgast upptöku af fundinum á vef MAST undir ÚTGÁFA - FRÆÐSLUFUNDIR.
 | | Matvælalöggjöf
Evrópusambandsins verður brátt innleidd á Íslandi í áföngum og munu
breytingar á lögum um matvæli, fóður og sjávarafurðir taka gildi 1.
mars n.k. Meðal markmiða laganna er að ná yfir allt matvælaferlið frá
hafi/haga í maga og er þar gerð krafa um rekjanleika til hægt sé að
rekja uppruna matvæla og innkalla á markvissan hátt. Á fundinum verða
þessar kröfur ræddar ásamt þeim kröfum sem gerðar eru til opinbers
eftirlits. Fjallað verður um hvernig framleiðendur beri að standa að
innköllun og nýleg dæmi um innköllun tekin fyrir. |
Fyrirlesarar:
Dóra S. Gunnarsdóttir, fagsviðsstjóri hjá Matvælastofnun
Herdís M. Guðjónsdóttir, sérfræðingur hjá Matvælastofnun
Fræðslufundurinn verður haldinn í umdæmisskrifstofu stofnunarinnar í Reykjavík að Stórhöfða 23. Gengið er inn í húsnæði MAST að norðanverðu (Grafarvogsmegin). Allir velkomnir!