|

| Matvælastofnun heldur kynningarfund fyrir fiskiðnaðinn um nýja matvælalöggjöf fimmtudaginn 11. febrúar n.k. kl. 14:00-16:00 í húsi Samtaka
atvinnulífsins að Borgartúni 35, 105 Reykjavík þar sem breytingar sem snerta fiskvinnslur verða til umfjöllunar. |
Matvælastofnun heldur kynningarfund fyrir fiskiðnaðinn um nýja matvælalöggjöf fimmtudaginn 11. febrúar n.k. kl. 14:00-16:00 í húsi Samtaka
atvinnulífsins að Borgartúni 35, 105 Reykjavík þar sem breytingar sem snerta fiskvinnslur verða til umfjöllunar.
 | | Ný matvælalöggjöf tekur gildi 1.
mars. n.k. Sérkröfur til búfjárafurða taka gildi 1.nóvember 2011.
Kynningin er ætluð stjórnendum matvælafyrirtækja en samkvæmt
skilgreiningu í löggjöfinni (Lög nr. 143/2009) er matvælafyrirtæki
fyrirtæki eða einstaklingur sem rekur starfsemi í tengslum við
framleiðslu, vinnslu eða dreifingu matvæla á einhverju stigi, hvort sem
það starfar í ágóðaskyni eður ei, og hvort sem það er einkarekið eða
opinbert fyrirtæki. |
Dagskrá:
- Af hverju ný matvælalöggjöf?
-
Breyttar kröfur til matvælafyrirtækja?
-
Hvernig breytist eftirlit með matvælafyrirtækjum?
-
Nýjar áherslur varðandi fisk og fiskafurðir?
Fulltrúar frá Matvælastofnun annast kynningu og verður boðið upp á umræðu að henni lokinni.
Fundurinn er skipulagður í samstarfi við Samtök fiskvinnslustöðva og ber að tilkynna þátttöku í síma 591-0350 eða með tölvupósti á netfangið bragi@sf.is.
Kynningarfundur fyrir matvælafyrirtæki og fiskiðnaðinn um nýja matvælalöggjöf verður einnig haldinn á Akureyri mánudaginn 22. febrúar kl.14:30 – 16.30 í fundarsalnum Ánni á fjórðu hæð Alþýðuhússins að Skipagötu 14. Þar verða einnig tekin fyrir málefni sem snerta fiskiðnaðinn og eru aðilar í fiskiðnaði á Norðurlandi hvattir til að mæta. Skráning á þann fund fer í gegnum 591-0100 eða mottaka@si.is.
Þátttakendur eru hvattir til að kynna sér matvælalöggjöfina á vef MAST.
Ítarefni:
Upplýsingar um matvælalöggjöfina á heimasíðu Matvælastofnunar