3.2.2010
Hjalti Andrason
KYNNINGARFUNDIR FYRIR MATVÆLAFYRIRTÆKI UM NÝJA MATVÆLALÖGGJÖF
 | Matvælastofnun heldur kynningarfund fyrir matvælafyrirtæki um nýja matvælalöggjöf
þriðjudaginn 9. febrúar kl. 14:30-16:30 í húsi Samtaka
atvinnulífsins að Borgartúni 35, 105 Reykjavík. Fundurinn verður síðar endurtekinn 16. febrúar á sama stað og tíma. |
Matvælastofnun heldur kynningarfund fyrir matvælafyrirtæki um nýja matvælalöggjöf
þriðjudaginn 9. febrúar kl. 14:30-16:30 í húsi Samtaka
atvinnulífsins að Borgartúni 35, 105 Reykjavík. Fundurinn verður svo endurtekinn 16. febrúar á sama stað og tíma.
| | Ný matvælalöggjöf
tekur gildi 1. mars. n.k. Sérkröfur til búfjárafurða taka gildi
1. nóvember 2011. Kynningin er ætluð stjórnendum matvælafyrirtækja en
skv. skilgreiningu í löggjöfinni (Lög nr. 143/2009) er
matvælafyrirtæki fyrirtæki eða einstaklingur sem rekur starfsemi í
tengslum við framleiðslu, vinnslu eða dreifingu matvæla á einhverju
stigi, hvort sem það starfar í ágóðaskyni eða ekki, og hvort sem það er
einkarekið eða opinbert fyrirtæki. |
Dagskrá:
- Af hverju ný matvælalöggjöf?
- Breyttar kröfur til matvælafyrirtækja?
- Hvernig breytist eftirlit með matvælafyrirtækjum?
Fulltrúar frá Matvælastofnun annast kynningu og verður boðið upp á umræðu að henni lokinni. Fundurinn er skipulagður í samstarfi við Samtök atvinnulífsins og mun Ragnheiður Héðinsdóttir frá Samtökum iðnaðarins stýra fundinum. Samskonar kynningarfundur fyrir matvælifyrirtæki verður haldinn á Akureyri þann 22. febrúar kl.14:30 – 16.30 og mun sá fundur vera auglýstur síðar.
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku í síma 591 0100 eða með tölvupósti á netfangið mottaka@si.is. Taka skal fram á hvaða fund þið hyggist koma.
Matvælaframleiðendur eru hvattir til að kynna sér matvælalöggjöfina á vef MAST.
Ítarefni:
Upplýsingar um matvælalöggjöfina á heimasíðu Matvælastofnunar