27.1.2010
Hjalti Andrason
MERKINGAR MATVÆLA - ÞESSUM UPPLÝSINGUM ÁTT ÞÚ RÉTT Á!
|

| Fimmtudaginn
4. febrúar munu matvælafræðingar frá MAST og Matís kenna námskeiðið
"Merkingar matvæla - þessum upplýsingum átt þú rétt á". Námskeiðið er
haldið af Endurmenntun Háskóla Íslands í samstarfi við Matvæla- og
næringarfræðafélag Íslands (MNÍ).
|

| | Fimmtudaginn
4. febrúar munu matvælafræðingar frá MAST og Matís kenna námskeiðið
"Merkingar matvæla - þessum upplýsingum átt þú rétt á". Námskeiðið er
haldið af Endurmenntun Háskóla Íslands í samstarfi við Matvæla- og
næringarfræðafélag Íslands (MNÍ). Námskeiðið
er opið öllum sem áhuga hafa á merkingum matvæla og hentar einnig þeim
sem nota þær í störfum sínum, s.s. í mötuneytum, framleiðslu- og
innflutningsfyrirtækjum. Markmið með námskeiðinu er að gera þátttakendur færa um að túlka merkingar matvæla og veita þeim skilning á innihaldi þeirra. |
Merkingar
á matvælum eru oft einu upplýsingarnar sem við höfum í höndunum til
þess að velja matinn okkar á upplýstan hátt. Merkingarnar þurfa að
fylgja ákveðnum reglum, sem segja til um hvað þarf að koma fram. Þær
eiga að vera skýrar og ekki villa um fyrir okkur. Innihaldslýsing og
næringargildisupplýsingar eru mikilvægar til þess að geta borið saman
innihaldsefni, orkuinnihald og bætiefni matvæla og kunna að vera
forsenda þess að við getum sett saman heilsusamlegt mataræði. Farið
verður yfir gildandi reglur um merkingar matvæla eins og þær snúa að
neytendum. Merkingar á umbúðum matvæla verða skoðaðar og komið verður
inn á hvernig á að merkja ofnæmis- og óþolsvalda. Gerð verður grein
fyrir hinum ýmsu merkjum á matvælum: hollustumerki, glas- og
gaffalmerkið, lífræn vottunarmerki, Fair Trade o.fl. Skýrt verður
hvernig merkingar á innihaldi, næringargildi og geymsluþoli eru unnar.
Tekin verða dæmi um vinnslu merkinga og þátttakendur vinna verkefni.
Sýnd verður notkun á íslenska gagnagrunninum um efnainnihald matvæla
(ÍSGEM) og vefforritinu hvaderimatnum.is, auk fleiri forrita og aðferða
við útreikninga.
Kennsla / umsjón:
- Jónína Þ. Stefánsdóttir, matvælafræðingur hjá Matvælastofnun (MAST)
- Ólafur Reykdal, matvælafræðingur hjá Matís
Fim. 4 feb. kl 18:00 - 21:00. Verð: 8.500 kr. Meðlimum MNÍ býðst námskeiðið á 5.950 kr. ef tekin er fram félagsaðild að MNÍ við skráningu.
Umræður eru hluti af námskeiðinu. Nánari upplýsingar má finna á vef Endurmenntunnar HÍ þar sem skráning fer fram.