Fara á forsíðu
   
18.1.2010  Hjalti Andrason
GARNAVEIKI GREINIST Í FÁSKRÚÐSFIRÐI
Garnaveiki hefur greinst í þremur ungum ám á bæ í Fáskrúðsfirði. Sýni voru tekin og send til Tilraunastöðvarinnar að Keldum sem staðfesti garnaveiki. Bólusetningu gegn garnaveiki var hætt í Fáskrúðsfirði haustið 2006 en mun bólusetning verða tekin upp að nýju á svæðinu. 

 Garnaveiki hefur greinst í þremur ungum ám á bæ í Fáskrúðsfirði. Ærnar voru skoðaðar 6. janúar s.l. að beiðni bóndans á bænum og ákvað héraðsdýralæknir MAST að aflífa þær allar þar sem þær voru óeðlilega horaðar, þótt þær ætu allar eðlilega. Engin merki sáust þó um skitu.

Við krufningu komu í ljós miklar bólgubreytingar í mjógörn við botnlanga sem bentu eindregið til garnaveiki. Sýni voru tekin og send til Tilraunastöðvarinnar að Keldum sem staðfesti garnaveiki, fyrst með litun og síðan vefjaskoðun. Í báðum rannsóknum fannst mikið af sýruföstum stöfum,  garnaveikibakteríum.  


Bólusetningu gegn garnaveiki var hætt í Fáskrúðsfirði haustið 2006 enda hafði verið bólusett þar í áratugi án þess að nokkur grunur vaknaði um að veikin væri enn til staðar.  Ærnar sem fengu veikina voru fæddar 2006 og 2007. Framundan er að hefja bólusetningu á svæðinu að nýju.
 
Ítarefni
   Mynd tengist ekki frétt
    Fræðslupistill um garnaveiki

Upplýsingar

Fróðleikur frá A-Ö

A Á B C D E É F
G H I Í J K L M
N O Ó P R S T U
Ú V X Y Ý Þ Æ Ö

Spurt og Svarað