Fara á forsíðu
   
15.1.2010  Hjalti Andrason
NÝ SAMÞYKKISNÚMER TIL FISKVINNSLUFYRIRTÆKJA, VINNSLU- OG FRYSTISKIPA
Með samþykkt laga nr. 143 frá 28. desember 2009 er hafin innleiðing nýrrar löggjafar ESB um matvæli og fóður hér á landi. Í tengslum við innleiðingu löggjafarinnar varð nauðsynlegt að gefa út ný leyfisnúmer sem leysa af hólmi gömlu starfs- og vinnsluleyfisnúmerin (IS-númerin) sem öll fiskvinnslufyrirtæki og fiskiskip hafa haft síðan 1993.

Með samþykkt laga nr. 143 frá 28. desember 2009 er hafin innleiðing nýrrar löggjafar ESB um matvæli og fóður hér á landi. Einstakir hlutar laganna taka gildi á mismunandi tímum, allt frá 1. mars 2010 til 1. nóv. 2011. Varðandi sjávarafurðir og lifandi samlokur (skelfisk) þá er gildistökutíminn 1. mars 2010.

 Í tengslum við innleiðingu matvælalöggjafar ESB varð nauðsynlegt að gefa út ný leyfisnúmer sem leysa af hólmi gömlu starfs- og vinnsluleyfisnúmerin (IS-númerin) sem öll fiskvinnslufyrirtæki og fiskiskip hafa haft síðan 1993.
 
Veigamestu atriðin sem felast í þessari breytingu eru eftirfarandi:

  • Númerin verða kölluð „samþykkisnúmer“.
  • Hver starfsstöð fær eitt samþykkisnúmer.
  • Samþykkisnúmerið gildir fyrir þær vinnslugreinar sem leyfi er fyrir í starfsstöðinni en nú hefur hver grein sitt vinnsluleyfisnúmer (IS-númer).
  • Hyggist framleiðandi bæta við vinnslugrein innan sömu starfsstöðvar mun hann sækja um samþykki fyrir hinni nýju vinnslugrein undir sama samþykkisnúmeri.
  • Samþykkisnúmerin eru byggð upp af bókstaf fremst og 2ja – 3ja tölustafa númeri, td. A999
  • Afurðir eiga að vera merktar með hinu nýja númeri í sporöskjulaga merki sem nefnist „auðkennismerki“.
Vinnsluskipum og frystiskipum er einnig úthlutað samþykkisnúmerum og fær hvert þeirra eitt númer. Við þessa breytingu falla niður starfsleyfisnúmer (IS-númer) annarra skipa og báta og verður starfsleyfisskráning þeirra tengd við skipaskrárnúmer þeirra.

Númerin munu berast í bréfi á hverja starfsstöð í næstu viku.

Ítarefni

    Upplýsingar um samþykkisnúmer og auðkennismerki


Upplýsingar

Fróðleikur frá A-Ö

A Á B C D E É F
G H I Í J K L M
N O Ó P R S T U
Ú V X Y Ý Þ Æ Ö

Spurt og Svarað