Fara á forsíðu
   
25.6.2009  Hjalti Andrason
ÍTREKUÐ AÐVÖRUN VEGNA NEYSLU SKELFISKS ÚR EYJAFIRÐI

Mælingar á eitruðum þörungum og þörungaeitri sýna að enn er mikil hætta á PSP eitrun við neyslu á skelfiski úr Eyjafirði.  Sýni voru tekin 21.júní og greindust þörungar af tegundinni Alexandrium,  sem valda PSP eitrun, þrefalt yfir mörkum og PSP eitur í kræklingi mældist tífalt yfir viðmiðunarmörkum.

Áhrif PSP-eitrunar ("Paralytic Shellfish Poisoning") á spendýr eru í því fólgin að eitrið truflar natríumbúskap taugafruma, sem leiðir af sér truflun á taugaboðum og getur valdið lömun, öndunarerfiðleikum og jafnvel dauða. Þessi gerð þörungaeitrunar hverfur úr skelfiskinum á skömmum tíma eftir að þörungar hafa horfið af hafsvæðinu.

Fylgst verður með þróun á vexti eiturþörunga í Eyjafirði. Hægt er að fylgjast með vöktun eiturþörunga á vef Hafrannsóknastofnunarinnar. Varað er við neyslu á skelfisk þar til sýnt hefur verið fram á að PSP eitur sé undir viðmiðunarmörkum í kræklingi.  

Ítarefni:

    Þörungaeitur í skelfiski

    Upplýsingarvefur um vöktun eiturþörunga

Upplýsingar

Fróðleikur frá A-Ö

A Á B C D E É F
G H I Í J K L M
N O Ó P R S T U
Ú V X Y Ý Þ Æ Ö

Spurt og Svarað