Fara á forsíðu
   
1.9.2010 
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur greinir frá vanmerktum ofnæmis- og óþolsvaldi í hummus. Innihaldsefni úr sesamfræjum koma ekki fram á umbúðunum. Um er að ræða Lúxus hummus frá Yndisauka og Jóa Fel Hummus sem framleitt er fyrir Hagkaup. Fyrirtækin hafa ákveðið að endurbæta umbúðamerkingarnar og fengu til þess frest til 31. ágúst.
30.8.2010 
Mikilvægt er að smalahross séu frísk þegar lagt er af stað og hafi ekki umgengist hross með einkenni smitandi hósta í a.m.k. 2 vikur (algengur meðgöngutími sjúkdómsins). Gæta skal hófs í því álagi sem lagt er á hrossin. Breiða skal yfir hrossin þegar komið er í náttstað þar til þau hafa þornað. 
30.8.2010 

Efnið Bisfenól-A (BPA) er lífrænt efnasamband sem notað er við framleiðslu á ýmsum plastefnum eins og t.d. pólýkarbónat plasti. Mikil umræða hefur skapast um allan heim um hugsanleg skaðleg áhrif efnisins og þá sérstaklega á ungbörn en lítið magn efnisins flæðir úr plastinu yfir í matvæli/vökva.
27.8.2010 
Fréttatilkynning frá Matvælaeftirliti Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur hefur verið gefin út um vanmerktan ofnæmis- og óþolsvald. Ekki kemur fram á umbúðum Halta þeytikrems að innihaldsefni í vörunni sé unnið úr mjólk. Aðföng hafa, í samráði við Matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, ákveðið að endurbæta merkingar Halta þeytikrems.
26.8.2010 
Matvælastofnun hefur opnað aftur ræktunarsvæði kræklings í Eyjafirði sem lokaðist þann 16. ágúst síðastliðinn, en PSP lömunareitur  mældist þá yfir viðmiðunarmörkum í kræklingi úr firðinum. Nýjar niðurstöður þörungaeitursrmælinga sýna að þörungaeitrið er horfið úr kræklingnum og því er hættuástandi hér með aflýst.
20.8.2010 
Smalamennskur og fjárleitir eru vandasamt verk þar sem gæta þarf öryggis en alltaf ætti að hafa velferð fjárins og hrossanna að leiðarljósi. Eftirfarandi atriði þarf að hafa í huga til að fyrirbyggja að sauðfé og hross örmagnist, verði fyrir slysi, ofþorni eða smitist af sjúkdómum við smölun þeirra á haustin.
19.8.2010 
Komið hefur í ljós að hross sem hafa veikst af smitandi hósta geta smitast á ný ef þau eru undir miklu smitálagi. Þetta bendir til að hrossin myndi ekki öll fullnægjandi ónæmi gegn sýkingunni. Veikin mun því ekki ganga yfir í eitt skipti fyrir öll og verðum við að læra að halda veikinni í skefjum og lágmarka það tjón sem af henni hlýst.
19.8.2010 
Lömunareitrun PSP hefur greinst í kræklingi úr Eyjafirði. Í sýnum sem nýlega voru tekin til þörungaeitursgreiningar reyndist magn PSP vera yfir viðmiðunarmörkum. Matvælastofnun varar því við sterklega við neyslu og tínslu á kræklingi og öðrum skelfiski úr Eyjafirði.
18.8.2010 
Gæði fiskafurða og geymsluþol ráðast ekki hvað síst af því hversu hratt fiskurinn er kældur eftir að hann er veiddur. Matvælastofnun túlkar lagaákvæði um kælingu afla á þann veg að hitastig fisks verði að vera komið niður í hitastig bráðnandi íss (0-2°C) innan 6 klst. eftir að hann hefur verið veiddur. Hitastigsmælingar í júlí sýna ófullnægjandi kælingu.
13.8.2010 
Stefnt er að því að útflutningur hrossa hefjist á ný 15. september n.k. eftir fjögurra mánaða hlé vegna faraldurs smitandi hósta. Við þær sjúkdómsaðstæður sem nú ríkja þarf að halda fyrirhuguð útflutnings- hross í einangruðum hópum heima á bæjunum, í nokkurs konar heimaeinangrun, í a.m.k. 30 daga fyrir útflutning (60 til Bandaríkjanna).
12.8.2010 
Eigendur og umsjónarmenn eru hvattir til að fylgjast vel með folöldum. Ástæða er til að ætla að þau geti í einhverjum tilfellum fengið lungnabólgu upp úr smitandi hósta og jafnvel drepist í kjölfarið ef meðhöndlun hefst ekki í tæka tíð. Sérstaklega á þetta við um folöld sem koma úr stóðhestagirðingum þar sem smitálag er oft mikið.
10.8.2010 

Það er gaman að fara í útilegu í góðra vina hópi. Hvort sem farið er í tjaldútilegu, á ferð með hjólhýsi eða í bústað þá þarf að hafa með sér nesti. Það er ýmislegt sem við þurfum að hafa í huga þegar við tökum saman nesti. Fyrir utan hollustu nestisins er rétt meðhöndlun á matvælunum afar mikilvæg. Enginn vill enda ferð með matarsýkingu.
23.7.2010 
Grunur er um salmonellusmit í kjúklingi frá Matfugli. Um er að ræða um það bil 13700 kjúklinga sláturhúsahóp með rekjanleikanúmer 011-10-24-4-31, sem slátrað var 20. júlí. Matfugl hefur nú þegar kallað inn viðkomandi hóp og sent tilkynningu á fjölmiðla. Sýni úr smitaða hópnum hefur verið sent til týpugreiningar á Sýkladeild Landspítalans.
22.7.2010 

Greinst hefur riða í einni kind á bænum Hurðarbaki í Flóahreppi. Grunur vaknaði vegna sjúkdómseinkenna í kindinni og voru sýni send á Tilraunastöðina að Keldum þar sem greining riðu var staðfest.
21.7.2010 
Niðurstöður úr krufningum hrossa með smitandi hósta, sem lógað var í rannsóknaskyni á Tilraunastöðinni á Keldum, benda eindregið til að einkenni veikinnar megi rekja til streptókokkasýkingar (Streptococcus Zooepidemicus) í hálsi hrossanna. Enn er unnið að rannsóknum á uppruna sýkingarinnar.
14.7.2010 
Frá og með 1. júlí s.l. hafa nokkur íslensk sláturhús leyfi til að flytja kinda- og hrosskjöt til Rússlands. Matvælastofnun hefur undanfarið ár unnið hörðum höndum að undirbúningi samkomulags, að svörum við spurningalistum og að frágangi vottorða til að uppfylla kröfur þarlendra yfirvalda um útflutning á kjöti á Rússlandsmarkað.
8.7.2010 
Vöktun Hafrannsóknastofnunar og MAST á eitruðum svifþörungum í Breiðafirði við Flatey og Stykkishólm og í Hvalfirði við Hvammsvík hefur leitt í ljós að magn eitraðra svifþörunga er yfir viðmiðunarmörkum og er veruleg hætta á að kræklingur og annar skelfiskur sé eitraður á þessum svæðum, einkum í Breiðafirði.
7.7.2010 

Þau tímamót urðu í lok júní að Matvælastofnun á Selfossi tók að fullu við búfjáreftirliti, söfnun forðagæsluskýrslna, úrvinnslu og afgreiðslu gagna um fjölda búfjár og fóðuröflun í landinu, af Bændasamtökum Íslands.
30.6.2010 

Á sólríkum dögum draga margir útigrillin úr geymslum og loftið fyllist af indælli grilllykt. Það er ekki sama hvernig er staðið að eldun á grilli. Við matreiðslu yfir opnum eldi er hætta á myndun efna sem eru í flokki krabbameinsvaldandi efna.
23.6.2010 
Ný reglugerð um næringar- og heilsufullyrðingar nr. 406/2010 tók gildi á Íslandi í apríl sl. Við það féllu áður útgefin leyfi til notkunar fullyrðinga úr gildi og ekki verður heilmilt að nota fullyrðingar nema þær uppfylli skilyrðin sem sett eru í nýju reglugerðinni.
23.6.2010 
Fyrsta samráðsþing Matvælastofnunar var haldið fimmtudaginn 29. apríl. Þingið hafði það að markmiði að styrkja samskipti MAST við eftirlitsþega og aðra viðskiptavini. Þátttakendum var gefinn kostur á að koma sínum sjónarmiðum á framfæri í umræðuhópum og hafa niðurstöður hópumræðna nú verið birtar í skýrslu á vef MAST.
21.6.2010 
Eins og skýrt hefur komið fram í fréttatilkynningum frá MAST er ekki hægt að tengja faraldur smitandi hósta sem nú fer um hrossastofninn við neinar veirusýkingar sem þekktar eru fyrir að leggjast á öndunarfæri hrossa. Þar eru meðtaldar herpesveirurnar EHV-1, EHV-2, EHV-4 og EHV-5.
16.6.2010 
Fundur stýrihóps fulltrúa Matvælastofnunar, Tilraunastöðvarinnar á Keldum og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytis um smitandi hósta í hrossum var haldinn 16. júní 2010. Fyrir liggur að ríkisstjórnin hefur samþykkt að styrkja áframhaldandi rannsóknir á orsökum veikinnar um tæpar 20 milljónir.
15.6.2010 
Sumir sjá aukefni sem hið mesta eitur. Aukefni fá hins vegar ekki E fyrir framan númer sitt fyrr en eftir mikla umfjöllun. Aukefni eru efni sem bætt er í matvæli til þess að hafa áhrif á geymsluþol, lit, lykt, bragð eða aðra eiginleika þeirra. Í innihaldslýsingum sjáum við að efnin eru ýmist auðkennd með efnaheitum eða E-númerum.
10.6.2010 

Mælingar á eitruðum þörungum í sjó sýna að talsverð hætta er á DSP og ASP eitrun við neyslu á skelfiski úr Hvalfirði. Sýni voru tekin 30. maí í Hvalfirði og greindust þörungar af  tegundunnum Dinophysis og Pseudo-nitzschia yfir viðmiðunarmörkum, en einnig finnast Alexandrium tegundir sem valda PSP eitrun í firðinum.
4.6.2010 

Miklvægt er að fyrirbyggja að bakteríusmitið magnist upp í umhverfi hrossa og létta á smitálaginu eins og frekast er unnt. Streptococcus Zooepidemicus virðist magnast upp í hesthúsum og því er áríðandi að hafa hrossin eins mikið úti og í eins hreinu umhverfi og hægt er.
4.6.2010 
Þann 18. maí s.l. samþykkti Alþingi breytingu á lögum um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum. Tilgangur breytinganna var m.a. sá að veita heimild til að mjólkurbændur á áhrifasvæði eldgossins í Eyjafjallajökli geti notið stuðnings af beingreiðslum, þó framleiðsla þeirra hafi raskast eða lagst niður.
2.6.2010 
Vegna þess smitsjúkdóms sem nú herjar á hross er mælt með að hestamenn gæti ítrasta hreinlætis. Leiðbeiningar um þrif og sótthreinsun á hesthúsum og hestakerrum, sem hestamenn eru hvattir til að hafa til hliðsjónar, hafa nú verið settar inn á heimasíðu MAST.
2.6.2010 
Bakterían Streptococcus equi Zooepidemicus sem greinst hefur í sumum þeirra hrossa sem sýkst hafa af hóstapestinni getur einnig valdið sýkingum í fólki. Hugsanleg hætta er á að fólk sem sinnir sýktum hrossum geti smitast af þeim. Þótt slíkar sýkingar séu fátíðar er fólk sem umgengst veika hesta samt hvatt til að gæta hreinlætis.
2.6.2010 
Matvælastofnun hefur látið greina erfðafræðilegan skyldleika 25 salmonellustofna og hefur skýrsla með niðurstöðum rannsóknarinnar nú verið birt. Upphaf rannsóknarinnar má rekja til þess að salmonella fannst í svínakjöti á markaði í júni árið 2009 og að tíðni salmonellu hefur farið hækkandi undanfarin 2 ár, aðallega í svína-  og alifuglarækt.
1.6.2010 
Kexverksmiðjan Frón hefur ákveðið  í samvinnu Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur að innkalla í varúðarskyni kexið Súkkulaði Póló vegna rangrar innihaldslýsingar en vegna mistaka kemur ekki fram að í vörunni er undanrennuduft.
31.5.2010 

Vegna smitandi hósta í hrossum funduðu fulltrúar MAST með hagsmunaaðilum í hestamennsku og hrossarækt, ásamt starfandi dýralæknum og fulltrúum leiðbeiningaþjónustu og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal í dag þar sem ákveðið var að fresta Landsmóti hestamanna.
27.5.2010 

Nú liggur fyrir að smitandi hósti er ekki af völdum neinna af þeim alvarlegu veirusýkingum sem þekktar eru og leggjast á öndunafæri hrossa. Bakterían Streptococcus zooepidemicus hefur hins vegar ræktast úr öllum sýnum sem tekin hafa verið úr hrossum með hósta og graftarkenndan hor.
25.5.2010 
Nú þegar smitandi hósti hefur herjað á hrossastofninn í vel á þriðja mánuð hafa safnast umtalsverðar faraldsfræðilegar upplýsingar um útbreiðslu sjúkdómsins og sjúkdómsferilinn auk upplýsinga um áhrif hans á heilsu hrossa til lengri og skemmri tíma. Út frá þeim má ráða ýmislegt um orsakir sjúkdómsins og hvernig faraldurinn muni þróast.
21.5.2010 
Opið málþing um Campy-on-Ice verkefnið og baráttuna gegn kampýlóbakter verður haldið fimmtudaginn 27. maí kl. 9-13 að Vínlandsleið 12 í Reykjavík. Á málþinginu verður fjallað um þær aðgerðir sem gripið var til í kjölfar kampýlóbakterfaraldursins í fólki árið 1999 og þann árangur sem náðist með þessum aðgerðum.
14.5.2010 
Bændum er ráðlagt að hafa samráð við sína dýralækna um fyrirbyggjandi aðgerðir vegna langrar innistöðu, þröngra beitarhólfa og hey- og kjarnfóðurgjafar. 
14.5.2010 

Leiðbeiningar hafa verið birtar um flutning á lifandi sauðfé og nautgripum, heyi, hálmi og korni inn og út af svæðinu milli Markarfljóts og Sandgígjukvíslar (Markarfljótslínu og Skeiðarársandslínu).
11.5.2010 

Starfsskýrsla MAST 2009 er nú aðgengileg á rafrænu formi. Skýrslan nær yfir annað starfsár Matvælastofnunar þar sem tekist var á við hin ýmsu verkefni s.s. salmonellu, nóróveiru, orkudrykki, matvæli beint frá býli, svínaflensu, varnarlínur, aðilarumsókn Íslands að ESB, útflutningur til Rússlands, nýja matvælalöggjöf, hagræðingu í rekstri, o.fl.
11.5.2010 
Veiruskita í kúm hefur komið upp á nokkrum bæjum á Austurlandi og Norðurlandi á síðustu vikum. Í því sambandi er minnt á rannsóknarverkefni á vegum MAST og Tilraunastöðvarinnar á Keldum sem miðar að því að varpa ljósi á faraldsfræði veikinnar og hvaða veira veldur henni.
10.5.2010 
Matvælastofnun kallar eftir umsóknum í starf eftirlitsdýralæknis í Skagafjarðar- og Eyjafjarðarumdæmi og í tímabundið starf eftirlitsdýralæknis í Suðurlandsumdæmi. Jafnframt óskar stofnunin eftir dýralæknum í sumarafleysingar og í sauðfjárslátrun í haust. Umsóknarfrestur er til 26. maí n.k.
10.5.2010 

Á fundi framkvæmdanefndar Landsmóts hestamanna sem haldinn var í Skagafirði, 7. maí með dýralækni hrossasjúkdóma var ákveðið að ekki verði hvikað frá undirbúningi Landsmóts þrátt fyrir að smitandi hósti gangi nú yfir hrossastofninn.  Kynbótasýningum verður fram haldið samkvæmt auglýstri dagskrá.
7.5.2010 

Samkvæmt nýrri skýrslu frá Matís inniheldur ætilegur hluti fisks af Íslandsmiðum mjög lítið magn af lífrænum mengunarefnum. Skýrslan sýnir niðurstöður mælinga á magni eitraðra mengunarefna í íslenskum sjávarafurðum á árinu 2008 og er hluti af sívirku vöktunarverkefni sem styrkt er af sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu.
7.5.2010 

Þó ekki sé um mjög alvarlega veiki að ræða kemur sá smitandi hósti sem nú herjar á hross landsins á afar vondum tíma og veldur miklu tjóni á allri hestatengdri starfsemi. Það er ekki nema eðlilegt að menn spyrji hvort hægt hefði verið að draga úr því tjóni með einhverjum aðgerðum.
7.5.2010 

Þeir sem sækja um leyfi til að flytja líflömb milli varnarhólfa skulu sækja um það til MAST fyrir 1. júlí á sérstökum eyðublöðum, sem eru að finna á heimasíðu stofnunarinnar. Matvælastofnun veitir leyfi fyrir 1. ágúst eða hafnar umsókninni ef umsækjandi uppfyllir ekki skilyrði reglugerðarinnar.
7.5.2010 
Nú eru 4 vikur liðnar frá því tilkynning barst um smitandi hósta í hrossum, nokkuð samtímis í Skagafirði og á Suðurlandi. Þá þegar var ljóst að veikin hafði búið um sig um nokkra hríð, 3-4 vikur a.m.k. og kannski miklu lengur. Þó ekki sé búið að greina orsökina hefur nokkur reynsla safnast um gang veikinnar og myndin skýrist dag frá degi.
29.4.2010 
Smitandi hósti breiðist áfram út meðal hrossa sem haldin eru á húsi víða um land. Enn hefur ekki fundist hvað veldur en allt bendir til að um veirusýkingu sé að ræða sem magnast upp í þétt skipuðum hesthúsum.
27.4.2010 
Matvælaöryggisstofnun Evrópu (EFSA) hefur samkvæmt beiðni framkvæmdarstjórnarinnar gefið út vísindalega ráðgjöf um þær hættur sem steðja að lýðheilsu og dýraheilbrigði vegna mögulegrar öskumengunar innan fæðu- og fóðurkeðjunnar. Þar eru möguleg skammtímaáhrif flúors til skoðunar m.t.t. öryggis matvæla og fóðurs.
22.4.2010 
Í sýnum sem tekin voru af öskunni 19. apríl og rannsökuð voru hjá Jarðvísindastofnun reyndist flúormagn vera um 850 mg/kg.  Fóður sem inniheldur stöðugt 250 mg/kg getur valdið bráðri eitrun eftir skammvinna neyslu. Þolmörk í fóðri nautgripa eru oft sett við 25-30 mg/kg og sauðfjár við 70-100 mg/kg.
21.4.2010 
Matvælastofnun (MAST) heldur fræðslufund um lyfjagjöf og lyfjaleifar í búfé þriðjudaginn 27. apríl 2010 kl. 15:00-16:00. Á fundinum verður fjallað um reglur um lyfjagjöf til afurðagefandi dýra, skráningu lyfja og rekjanleika, ásamt ströngum kröfum um eftirlit með lyfjaleifum í búfjárafurðum.
20.4.2010 
Gefinn hefur verið út bæklingurinn Öskufall: Leiðbeiningar um viðbúnað fyrir, eftir og meðan á öskufalli stendur. Í bæklingnum er að finna leiðbeiningar sem fylgja skal ef viðvörun um öskufall er gefin út, tilmæli um hvað gera skal meðan á öskufalli stendur og hvaða aðferðir eru árangursríkastar við hreinsun ösku að loknu gosi.
20.4.2010 
Gosefni sem berast með vindi geta mengað gróður og vatn og borist ofan í skepnur. Öskukornin eru oddhvöss og loðir flúor við yfirborð kornanna. Matvælastofnun vekur athygli á eftirfarandi atriðum til að fyrirbyggja skaðleg heilsuáhrif eldgossins í Eyjafjallajökli á búfénað.
19.4.2010 

Smitandi hósti í hrossum breiðist nú á milli hesthúsa víða um land og er talið líklegast að um veirusýkingu sé að ræða. Fyrstu rannsóknir benda til þess að ekki sé um hestainflúensu eða smitandi háls- og lungnakvef/fósturlát (EHV-1) að ræða en það eru alvarlegustu veirusýkingarnar sem leggjast á öndunarfæri hrossa.
19.4.2010 
Matvælastofnun hafa borist fleiri tilkynningar frá Tilraunastöð háskólans í meinafræði á Keldum, um grun um salmonellumengaða sláturhópa. Um er að ræða 5 hópa frá einum framleiðanda. Týpugreining liggur ekki fyrir en óskað hefur verið eftir við fyrirtækin að þau innkalli vörur frá þessum sláturdögum, þar til týpugreining liggur fyrir.
17.4.2010 

Eigendur útigangshrossa um allt land þurfa að búa sig undir að verja hross sín fyrir öskufalli. Of seint er að bregðast við eftir að umtalsvert öskufall er skollið á. Miðað við veðurspá fyrir næstu daga er mest hætta á öskufalli í Rangárvallasýslu en hrossaeigendur á öllu suður- og suðausturlandi þurfa að vera í viðbragðsstöðu.

17.4.2010 
Matvælastofnun ítrekar skilaboð til bænda á öskufallssvæðinu undir Eyjafjöllum  og nærliggjandi hættusvæðum á Suðurlandi um að gera nú þegar ráðstafanir til að hýsa öll sín dýr sem eru enn úti. Þurfi þeir aðstoð við það er þeim bent á að hafa samband við sitt sveitarfélag. 
15.4.2010 
Matvælastofnun hefur borist tilkynning frá RASFF viðvörunarkerfi Evrópu um matvæli og fóður um að glerbrot hafi fundist í FirstPrice paprikustrimlum í Danmörku. Heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga hefur verið upplýst um málið og innköllun á vörunni hefur verið framkvæmd. Umrædd vara er First Price paprikastrimler í 340g krukkum.
14.4.2010 
Matvælastofnun hafa borist tilkynningar frá Tilraunastöð háskólans í meinafræði á Keldum, um grun um salmonellumengaða sláturhópa. Um er að ræða 3 hópa frá tveimur framleiðendum. Týpugreining liggur ekki fyrir en óskað hefur verið eftir við fyrirtækin að þau innkalli vörur frá þessum sláturdögum, þar til týpugreining liggur fyrir.
14.4.2010 

Búfjáreigendum á áhrifasvæði eldgossins í Eyjafjallajökli er bent á að fylgjast grannt með mögulegu öskufalli, t.d. með því að leggja út hvítan disk. Verði vart við öskufall er mikilvægt að hýsa  það búfé sem er við opin hús eða á útigangi, sé það mögulegt.
13.4.2010 
Í síðustu viku var tilkynnt um smitandi hósta í hrossum á Hólum í Hjaltadal og nokkrum nágrannabæjum. Hóstinn er alla jafna vægur og hrossin ekki sýnilega veik að öðru leyti, t.d. ekki með  hita, en nefrennsli getur fylgt sem verður graftarkennt þegar á líður. Einkennin ganga yfir á einni til tveimur vikum.
12.4.2010 
Matvælastofnun minnir aðstandendur barna á mikilvægi koffín fræðslu. Nýir orkudrykkir og orkuskot með mjög háu koffíninnihaldi hafa komið á markað í kjölfar þess að hámarksgildi koffíns í drykkjarvörum var afnumið. Neysla Íslendinga á gosdrykkjum er með því hæsta sem gerist og vekur aukin neysla á koffíni upp spurningar um heilsuáhrif.
23.3.2010 
Skv. upplýsingum Jarðvísindastofnunar á magni vatnsleysanlegs flúors í ösku úr gosinu í Eyjafjallajökli er flúormagn ekki tiltakanlega mikið, eða nálægt þriðjungi þess sem yfirleitt er í ösku frá Heklu. Engu að síður er full ástæða til að gæta varúðar og halda búpeningi frá öskumengaðri beit og einkum bræðsluvatni svo sem pollum á túnum.
21.3.2010 
Nýja matvælalöggjöfin um öryggi matvæla og fóðurs felur í sér útvíkkun á því hvað „fóðurfyrirtæki“ merkir.  Samkvæmt henni eru hefðbundin íslensk bændabýli skilgreind sem fóðurfyrirtæki.  Reglugerð um fóður nær því yfir öflun, flutning, geymslu og meðhöndlun bænda á hvers konar fóðri.
19.3.2010 
Í kjölfar tilkynningar frá ICA í Svíþjóð um að þar hafi greinst Norovírus í Euro Shopper hindberjum í 500 gramma pokum hafa Aðföng ákveðið að innkalla vöruna í varúðarskyni. Varan var í dreifingu í verslunum Bónus, Hagkaupa og 10-11 og hefur verið tekin úr sölu.
17.3.2010 

Matvælastofnun heldur fræðslufund um heilsu- og næringarfullyrðingar á matvælum þriðjudaginn 23. mars kl. 15:00 - 16:00. Á fundinum verður fjallað um breytingar á reglum um notkun fullyrðinga sem verða með innleiðingu á nýrri reglugerð ESB og þau skilyrði sem munu gilda um notkun fullyrðinga, ásamt dæmum um bannaðar fullyrðingar.
16.3.2010 
Reglugerð um einstaklingsmerkingar búfjár tók gildi árið 2005 þar sem m.a. er kveðið á um að skylt sé að skrá og einstaklingsmerkja öll hross eldri en 10 mánaða. Í byrjun voru hross fædd fyrir árið 2003 undanþegin merkingarskyldu en nú hefur sú undanþága verið felld úr gildi. Hross sem fædd eru árið 2008 og síðar skulu vera örmerkt..
16.3.2010 
Sauðfjárbændur sem ætla að sækja um nýtt leyfi til að selja líflömb skulu senda skriflega umsókn til Matvælastofnunar (MAST) eigi síðar en 1. apríl 2010 á eyðublöðum sem finna má á vef MAST undir Eyðublöð - Búfé eða með því að hafa samband í síma 530-4800 og fá þau send.
15.3.2010 
Bæklinginn Með allt á hreinu má nú nálgast á rafrænu formi á ensku, pólsku og íslensku á vef Matvælastofnunar undir Útgáfa - Bæklingar. Eingöngu íslenska útgáfan er fáanleg á prentuðu formi og geta áhugasamir óskað eftir eintökum með því að senda beiðni til MAST á netfangið mast@mast.is.
15.3.2010 
Hagtölur landbúnaðarins 2010 eru komnar út. Í hagtölunum er m.a. hægt að finna tölfræði um landið og bóndann, bústofn og bústærð, landbúnaðarframleiðsluna, markaðsmál, verðlag og vísitölur o.fl. Bæklingurinn fer víða - hann er m.a. vinsæll á meðal ferðamanna, skólafólks og að sjálfsögðu á meðal þeirra sem starfa í landbúnaði.
8.3.2010 
Frá og með 1. mars síðastliðnum er óheimilt að flytja til landsins eða markaðsetja matvæli, þar með talin fæðubótarefni sem innihalda lyf. Innflutningseftirlit Matvælastofnunar og markaðseftirlit Heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga mun því hér eftir taka á þessu máli. Lyfjastofnun hefur það hlutverk að skera úr um hvað telst vera lyf.
5.3.2010 

Vegna aukinnar virkni í Eyjafjallajökli hefur almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra beðið Matvælastofnun að hvetja alla þá sem hafa með búfjárhald að gera í nágrenni jökulsins að fylgjast vel með fréttum útvarpsstöðva. Nýjustu fréttir eru einnig að finna á heimasíðu Almannavarna: www.almannavarnir.is.
5.3.2010 
Salmonella hefur greinst í sýnum tekin við reglubundið eftirlit með slátrun hjá Matfugli þann 23. febrúar og rannsökuð voru á Tilraunastöðinni á Keldum. Við frekari greiningu hjá sýkladeild Landspítala reyndist Salmonella infantis vera á ferð. Rekjanleikanúmer sláturhópsins er 011-10-03-3-22.
18.2.2010 

Dagana 25. - 26. febrúar 2010 verður haldin hér á landi áttunda norræna matvælaeftirlitsráðstefnan. Matvælastofnun í samvinnu við Heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna annast framkvæmd ráðstefnunnar með aðstoð fulltrúa frá systurstofnunum hinna Norðurlandanna. Þema ráðstefnunnar er: „Svindl með matvæli og ráðgjöf til fyrirtækja“.
16.2.2010 
Matvælastofnun heldur fræðslufund um rekjanleika og innköllun matvæla þriðjudaginn 23. febrúar kl. 15:00 - 16:00. Á fundinum verður fjallað um kröfur um rekjanleika og innköllun í nýju matvælalöggjöfinni, framkvæmd innkallana og ástæður, og nýleg dæmi tekin fyrir.
16.2.2010 

Matvælaskólinn hjá Sýni heldur námskeið um stofnun matvælafyrir- tækja 25. og 26. febrúar og 11. og 12. mars, alls 40 kennslustundir. Námskeiðinu er ætlað að svara hinum ýmsu spurningum varðandi kröfur sem gerðar eru til matvælafyrirtækja bæði hvað varðar gæði, öryggi og hollustu matvæla svo og húsnæði og búnað.
13.2.2010 
Kynningarfundur fyrir matvælafyrirtæki og fiskvinnslur um nýja matvælalöggjöf verður haldinn á Akureyri mánudaginn 22. febrúar kl.14:30 – 16:30 í fundarsalnum Ánni á fjórðu hæð Alþýðuhússins að Skipagötu 14.
9.2.2010 
Farið var þess á leit við Evrópusambandið að gagnagrunnurinn WF, með lyfjaskráningum, yrði viðurkenndur sem rafrænn hestapassi. Sú viðurkenning hefur nú fengist og mun liðka fyrir útflutningi á reiðhestum, kynbótahrossum og hrossakjöti. Engin fordæmi eru fyrir rafrænum hestapassa innan ESB og má segja að WF hafi rutt brautina.
9.2.2010 

Á árunum 2008 og 2009 voru gerðar hjá Matís ohf fitusýrugreiningar á 51 sýni af matvörum í þeim tilgangi að uppfæra gögn í ÍSGEM gagnagrunninum um efnainnihald matvæla. Verkefnið var unnið í samstarfi við Lýðheilsustöð og Matvælastofnun. Áhersla var lögð á að kanna magn trans-fitusýra í unnum matvælum.
4.2.2010 
Nýir orkudrykkir og orkuskot með mjög háu koffíninnihaldi hafa komið á markað í kjölfar þess að hámarksgildi koffíns í drykkjarvörum var afnumið árið 2008. Kannanir hafa sýnt að neysla Íslendinga á gosdrykkjum er með því hæsta sem gerist, einkum meðal unglinga, og vekur aukin neysla á koffíni upp spurningar um heilsuáhrif.
3.2.2010 

Matvælastofnun heldur kynningarfund fyrir fiskiðnaðinn um nýja matvælalöggjöf fimmtudaginn 11. febrúar n.k. kl. 14:00-16:00  í húsi Samtaka atvinnulífsins að Borgartúni 35, 105 Reykjavík þar sem breytingar sem snerta fiskvinnslur verða til umfjöllunar.
3.2.2010 
Matvælastofnun hefur eftirlit með notkun dýralyfja í íslenskum landbúnaði og er ætlað að tryggja að engar lyfjaleifar séu í íslensku kjöti hvort sem það er ætlað á innlendan markað eða til útflutnings. Samkvæmt lyfjalögum lýtur öll notkun dýralyfja ströngum reglum og er löggjöfin í samræmi við lyfjalöggjöf ESB.
2.2.2010 
Matvælastofnun heldur kynningarfund fyrir matvælafyrirtæki um nýja matvælalöggjöf þriðjudaginn 9. febrúar kl. 14:30-16:30  í húsi Samtaka atvinnulífsins að Borgartúni 35, 105 Reykjavík. Fundurinn verður síðar endurtekinn 16. febrúar á sama stað og tíma.
27.1.2010 

Fimmtudaginn 4. febrúar munu matvælafræðingar frá MAST og Matís kenna námskeiðið "Merkingar matvæla - þessum upplýsingum átt þú rétt á". Námskeiðið er haldið af Endurmenntun Háskóla Íslands í samstarfi við Matvæla- og næringarfræðafélag Íslands (MNÍ).
22.1.2010 
Evrópska viðvörunarkerfinu fyrir matvæli og fóður (RASFF) hefur borist tilkynning frá bandarískum yfirvöldum um að netfyrirtækið bodybuilding.com hafi innkallað ýmis fæðubótaefni vegna gruns um að þau innihaldi stera. Vörurnar eru seldar í vefsölu eða í almennri sölu.
21.1.2010 
Á matvælasýningunni Grüne Woche í Berlín 16. janúar sl. undirrituðu Jón Gíslason forstjóri Matvælastofnunar (MAST) og Sergey A. Dankvert forstjóri rússnesku matvæla- og dýraheilbrigðisstofnunarinnar (Rosselkhoznadzor) samninga vegna útflutnings á kjöti og fiski til Rússlands.
20.1.2010 
Matvælastofnun heldur opinn fræðslufund um breytingar með nýrri matvælalöggjöf þriðjudaginn 26. janúar kl. 15:00 - 16:00. Á fundinum verður fjallað um þær breytingar sem innleiðing matvælalöggjafar ESB hefur í för með sér og áhrif þeirra á neytendur, framleiðendur, innflytjendur og eftirlitsaðila.
18.1.2010 
Garnaveiki hefur greinst í þremur ungum ám á bæ í Fáskrúðsfirði. Sýni voru tekin og send til Tilraunastöðvarinnar að Keldum sem staðfesti garnaveiki. Bólusetningu gegn garnaveiki var hætt í Fáskrúðsfirði haustið 2006 en mun bólusetning verða tekin upp að nýju á svæðinu. 
15.1.2010 
Með samþykkt laga nr. 143 frá 28. desember 2009 er hafin innleiðing nýrrar löggjafar ESB um matvæli og fóður hér á landi. Í tengslum við innleiðingu löggjafarinnar varð nauðsynlegt að gefa út ný leyfisnúmer sem leysa af hólmi gömlu starfs- og vinnsluleyfisnúmerin (IS-númerin) sem öll fiskvinnslufyrirtæki og fiskiskip hafa haft síðan 1993.
12.1.2010 
Matvælastofnun hefur borist tilkynning frá Viðvörunarkerfi Evrópu fyrir matvæli og fóður (RASFF - Rapid Alert System for Food and Feed), þar sem varað er við japönskum sojadrykk, Bonsoy soy milk, sem inniheldur alltof  hátt magn af joði. Ástæða joðmagnsins er að drykkurinn inniheldur þara sem nefnist kombu.
12.1.2010 
Eitrunarmiðstöð Landspítalans hefur vakið athygli á því að hægt er að kaupa á netinu svokallaða „kraftaverkalausn“ MMS (Miracle Mineral Solution) sem valdið getur alvarlegum veikindum og jafnvel dauða. Þessi lausn er einnig kölluð kraftaverkaefni (Miracle Mineral Supplement).
11.1.2010 
Matvælastofnun  í samráði við sveitarstjórnir boðar til opins fræðslufundar  með sauðfjárbændum í Rangárvallasýslu og Mýrdalshreppi miðvikudaginn 13. janúar 2010  kl. 13.00 - 15.30 í félagsheimilinu Heimalandi undir Eyjafjöllum.
8.1.2010 
Eftirlitsstofnun EFTA ber skylda til þess samkvæmt EES samningi að hafa eftirlit með því að aðildarríki hans (þ.e. EFTA ríkin) innleiði löggjöf samningsins og uppfylli kröfur hennar. Þessu hlutverki sinnir ESA með eftirlitsheimsóknum til ríkjanna þar sem starfsemi eftirlitsaðila er tekin út á sviði matvæla- og fóðuröryggis, dýraheilbrigðis og dýravelferðar.
28.12.2009 

Áramótin nálgast og þá er nauðsynlegt að muna sérstaklega eftir dýrunum sem eru víða í nágrenni okkar. Það er gamall siður að skjóta upp flugeldum um áramótin, en því miður hefur nokkuð borið á þeim ósið á undanförnum árum að þessi skot eru byrjuð löngu fyrir áramót og halda jafnvel áfram dagana þar á eftir.
18.12.2009 
Þann 9. júní 2009 kærði Matvælastofnun ábúendur á lögbýli á Austurlandi til lögreglu vegna brota á dýraverndarlögum, reglugerð um aðbúnað og heilbrigðiseftirlit með sauðfé og lögum um búfjárhald og var ákæra gefin út af lögreglustjóra þann 9. nóvember 2009.
15.12.2009 
Í gegnum viðvörunarkerfi Evrópu (RASFF) hefur komið tilkynning um að innkalla skuli plastsleikjur framleiddar í Kína af fyrirtækinu Ningbo FUTURE Import & Export co og fluttar eru til Íslands frá Hollandi. Ástæða innköllunar er að flæði þalata úr sleikjunum mældist yfir leyfilegum mörkum.
14.12.2009 
Lögum samkvæmt skal Matvælastofnun annast opinbert eftirlit varðandi „meðferð, flutning, geymslu, vinnslu og dreifingu sjávarafurða, að undanskilinni smásölu“. Eftirlit með framleiðendum fiskafurða sem eingöngu framleiða fyrir innanlandsmarkað mun nú færast frá Heilbrigðiseftirliti sveitarfélaga til Matvælastofnunar.
11.12.2009 

Niðurstöður skimana vegna smitsjúkdóma í búfé hafa nú verið birtar á vef Matvælastofnunar, undir „eftirlitsniðurstöður“ á vinstri væng síðunnar. Þeir sjúkdómar sem vaktaðir eru með sýnatökum og rannsóknum á sýnum eru annars vegar sjúkdómar sem ekki finnast hér á landi og hins vegar sjúkdómar sem unnið er að útrýmingu á.
10.12.2009 

Á liðnu sumri var hrundið af stað átaksverkefninu Útivist nautgripa sem fólst í að fylgja eftir meintum brotum á reglum um útivist nautgripa. Í upphafi var grunur um að 32 kúabú væru ekki að fylgja settum reglum. Á endanum fengu 18 bændur bréf þar sem krafist var úrbóta í samræmi við kröfur reglugerðarinnar.
1.12.2009 

Það er ýmislegt sem rekstraraðilar veitingahúsa þurfa að hafa í huga við rekstur á jólahlaðborðum. Auk þess að hafa góðan mat í boði fyrir neytendur þarf að tryggja öryggi matvælanna. Hér eru nokkur atriði sem rekstraraðilar þurfa að hafa í huga.
19.11.2009 
Sérfræðihópur Matvælaöryggisstofnunar Evrópu (EFSA) um aukefni hefur lækkað daglegt neyslugildi þriggja litarefna. Hætta er á að inntaka þessara litarefna geti farið yfir nýja daglega neyslugildið bæði fyrir fullorðna og börn. Hópurinn mun skoða öryggi allra aukefna sem leyfð eru til notkunar í matvæli í ESB og byrja á litarefnum.
17.11.2009 
Verðlaun kennd við nýja norræna matargerðarlist voru afhent í Skíðaskálanum í Hveradölum í gær. Að þessu sinni hreppti Hotel Arctic í Ilulissat á Grænlandi verðlaunin en þetta er þriðja skipti sem þau eru veitt. Vinningshafi hlýtur heiðursskjal og peningaverðlaun sem nema 100.000 dönskum krónum.
17.11.2009 

Matvælastofnun heldur fræðslufund um upprunamerkingu matvæla þriðjudaginn 24. nóvember kl. 15:00 - 16:00. Á fundinum verður fjallað um nýja reglugerð um upprunamerkingu grænmetis og um upprunamerkingar almennt m.a. í Evrópusambandinu í tengslum við nýja reglugerð um upplýsingar um matvæli.
9.11.2009 
Tilraunastöð HÍ að Keldum hefur nú staðfest að sýking í svínum á svínabúinu á Hraukbæ í Eyjafirði er af völdum inflúensuveirunnar A (H1N1). Um leið og grunur vaknaði í lok síðustu viku voru settar takmarkanir á flutning lífdýra frá búinu og allar smitvarnir hertar.
9.11.2009 
Brátt lýkur skráningu á ráðstefnuna, Nordic Values in the Food Sector: The way forward in a global perspective, sem haldin verður 15. - 17. nóvember n.k. á Grand Hótel Reykjavík. Áhugasömum er bent á vefsíðu ráðstefnunnar þar sem nálgast má dagskrá og skráningareyðublöð.
6.11.2009 
Grunur hefur vaknað um inflúensu í svínum á einu svínabúi í Eyjafirði. Sýni verða tekin í dag og send til rannsóknar á Tilraunastöð HÍ að Keldum. Svínaflensa smitast ekki með svínakjöti og fólki stafar því engin hætta af neyslu þess. Til að hindra útbreiðslu smits til annarra búa hefur bann verið sett á flutning dýra frá búinu og sóttvarnir hertar.
6.11.2009 

Fréttatilkynning frá Sóttvarnalækni, Matvælaeftirliti Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur og Matvælastofnun: Nóróveirusýkingin sem kom upp í Nýja Kaupþing banka og tengdum félögum í Reykjavík í liðinni viku er í rénun. Alls er talið að um 250 manns hafi veikst af veirunni.
3.11.2009 
Á haustdögum stendur hrossaútflutningur frá landinu sem hæst. Um útflutning á hrossum gilda lög númer 55/2002 og reglugerð númer 449/2002. Hafa þarf í huga fjölda atriða við útflutning og er hér að finna stuttar leiðbeiningar til hesteigenda varðandi undirbúning fyrir útflutning hrossa.
2.11.2009 
Síðastliðinn föstudag sakfelldi Héraðsdómur Suðurlands mann vegna brota á dýraverndunarlögum, lögum um búfjárhald og reglum um aðbúnað og heilbrigðiseftirlit hrossa. Í sama máli var ákærði sakfelldur fyrir brot á lögum um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim og reglugerð um varnir gegn útbreiðslu smitandi búfjársjúkdóma í Rangárvallasýslu.
2.11.2009 

Dagana 25. - 26. febrúar 2010 verður haldin hér á landi áttunda norræna matvælaeftirlitsráðstefnan. Matvælastofnun í samvinnu við Heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna annast framkvæmd ráðstefnunnar með aðstoð fulltrúa frá systurstofnunum hinna Norðurlandanna. Þema ráðstefnunnar er: „Svindl með matvæli og ráðgjöf til fyrirtækja“.
30.10.2009 
Sýkingar af völdum noroveira sem rekja má til innfluttra frosinna hindberja hafa komið upp í Finnlandi og Svíþjóð í haust. Ekki er vitað um noroveirusýkingar hérlendis sem má rekja til hindberja. Matvælastofnun bendir neytendum á, að hitun á frosnum innfluttum hindberjum er fyrirbyggjandi til að forðast sýkingar af völdum noroveira.
27.10.2009 
Tilraunastöð HÍ að Keldum hefur nú staðfest að sýking í svínum á svínabúinu á Minni-Vatnsleysu er af völdum inflúensuveirunnar A (H1N1). Um leið og grunur vaknaði í gær voru settar takmarkanir á flutning lífdýra frá búinu og allar smitvarnir hertar.
26.10.2009 
Grunur hefur vaknað um inflúensu í svínum á einu svínabúi. Sýni voru tekin í dag og eru nú í rannsókn á Tilraunastöð HÍ að Keldum. Svínaflensa smitast ekki með svínakjöti og fólki stafar því engin hætta af neyslu þess. Til að hindra útbreiðslu smits til annarra búa hefur bann verið sett á flutning dýra frá búinu og allar sóttvarnir verið hertar.
26.10.2009 
Birt hefur verið kort af nýrri legu sauðfjárveikivarnarlína samkvæmt auglýsingu 793/2009. Með þessum breytingunum eykst vægi þeirra girðinga sem eftir eru. Flutningur yfir varnarlínur er ennþá óheimill, en flutningur á sauðfé og nautgripum verður frjálsari á stærri svæðum en verið hefur. Þá hvílir ábyrgð á búfjareigendum að verja sinn bústofn.
26.10.2009 
Matvælastofnun hefur haft spurnir af furuhnetum sem valda bitru eftirbragði hjá sumum sem hafa neytt þeirra. Hneturnar eru ekki taldar varasamar eða hættulegar heilsu og ekki finna allir sem borða sömu furuhneturnar fyrir þessum bragðáhrifum.
20.10.2009 

Ný auglýsing var birt í lok september um varnarlínur vegna sauðfjár-sjúkdóma sem skilgreinir nýja skiptingu aðal- og aukavarnarlína. Breytingar á varnarlínum og sóttvarnir verða til umfjöllunar á fræðslufundi MAST sem haldinn verður þriðjudaginn, 27. október kl. 16:00 – 17:00 í Ásgarði á Hvanneyri.
12.10.2009 
Staðfest var síðastliðinn laugardag að inflúensa A H1N1 hefði greinst í fyrsta skipti í svínum í Noregi. Svínabóndi í Norður-Þrændarlögum hafði verið veikur í 10-14 daga og fimmtudaginn 8. október greindist hann með nýja afbrigði H1N1. Áður hefur verið greint frá, að svínahirðar hafi borið svínainflúensu í svín í Kanada og á Írlandi.
12.10.2009 
Almennt bann hefur ríkt við innflutningi skriðdýra á borð við slöngur, skjaldbökur og eðlur frá því snemma á 9. áratug síðust aldar. Bannið byggði upphaflega á alvarlegum sjúkdómstilfellum í fólki af völdum salmonellasmits sem rekja mátti með ótvíræðum hætti til þessara gæludýra.
11.10.2009 
Haustið 2008 kannaði Heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna í samvinnu við MAST örveruástand á ýmiskonar blaðsalati og kryddjurtum.  85 sýni voru rannsökuð m.t.t. salmonellu og E.coli. Niðurstöður sýndu að ástand þeirra sýna sem tekin voru var almennt gott. Salmonella greindist ekki í sýnunum en í 9 sýnum af 85 greindist E. coli.
6.10.2009 
Samstarfsnefnd um vísindalega samvinnu norrænna dýralækna (NKVet) stóð fyrir ráðstefnu um lyfjanotkun keppnishesta – meðhöndlanir og misnotkun í byrjun október, sem í hnotskurn fjallaði um mörkin milli löglegrar lyfjanotkunar í lækningaskyni og misnotkunar lyfja sem miðar að því að bæta árangur hesta í keppni. 
2.10.2009 
Norræna ráðstefnan, Nordic Values in the Food Sector: The way forward in a global perspective, verður haldin 15. - 17. nóvember n.k. á Grand Hótel Reykjavík. Áhugasömum er bent á vefsíðu ráðstefnunnar þar sem nálgast má dagskrá og skráningareyðublöð.
29.9.2009 

Fimm einstaklingar hafa greinst með sýkingu af völdum Escherichia coli O157  (E. coli O157).  Uppruni smitsins er enn óþekktur en unnið er að rannsókn málsins. E. coli O157 hefur enn ekki greinst í matvælum hérlendis, en erlendis hafa smit einkum verið tengd neyslu nautakjöts og blaðsalats.
26.9.2009 
Fræðslufundir MAST hefja göngu sína að nýju þriðjudaginn 29. september 2009 kl. 15:00 - 16:00 þegar eiturþörungar og myndun þörungaeiturs í kræklingi verða til umfjöllunar. Á fundinum verður farið yfir tegundir eiturþörunga við Ísland, myndun þörungaeiturs í kræklingi og áhrif á heilsu, eftirlit með þörungaeitri og leyfisveitingar.
22.9.2009 

Svínainflúensa af völdum inflúensuveiru A H1N1 var staðfest á svínabúi á Norður-Írlandi 16. september s.l. og nú um helgina var sýking staðfest á öðru búi. Um 90% af svínunum á viðkomandi búum hafa veikst en aðeins 0.1% drepist. Takmarkanir hafa verið settar á búin sem beinast að því að koma í veg fyrir að sýkingin berist á önnur bú.
22.9.2009 
Héraðsdómur Suðurlands hefur fellt dóm vegna brots á dýraverndunarlögum, lögum um búfjárhald og reglum um aðbúnað og heilbrigðiseftirlit hrossa, vegna vanrækslu á aðbúnaði, umhirðu og fóðrun tveggja hrossa haustið 2007. MAST barst ábending frá búfjáreftirlitsmanni og leiddi skoðun í ljós bágt ástand hrossanna.
11.9.2009 
Í tilefni af umræðu um kjötvörur í fjölmiðlum vill Matvælastofnun kom eftirfarandi á framfæri. Matvælastofnun hefur ekki ástæðu til að ætla að verið sé að brjóta reglur varðandi innihald kjötvara, en mun skoða þessi mál nánar í samvinnu við Heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga. Um kjötvörur gildir reglugerð nr. 331/2005 og lög og reglur um matvæli almennt.
10.9.2009 

Vegna inflúensufaraldursins sem nú geisar eru bændur, hestamenn og aðrir sem ábyrgir eru fyrir skepnum hvattir til að huga að því hvernig þeir eru í stakk búnir til að bregðast við ef margt heimilisfólk eða starfsfólk á búum þeirra veikist samtímis. Þörf er á skriflegri viðbragðsáætlun sem endurskoða þarf reglulega.
9.9.2009 
Nú eru skólarnir byrjaðir aftur eftir sumarfrí. Hér koma nokkrar ábendingar fyrir foreldra og börn um skólanesti. Boðið er upp á heitan mat í hádegi í mörgum skólum í dag en ekki eru allir sem kjósa þann kost og eins eru skólar þar sem ekki er boðið upp á slíkt fyrirkomulag.
4.9.2009 
Niðurstöður úr eftirliti með salmonellu í alifuglum, svínum, fóðri og fiskimjöli hafa verið birtar á vef MAST. Þær má finna undir Eftirlits-niðurstöðum til vinstri á síðunni. Niðurstöðum úr eftirliti með fóðri og fiskimjöli hefur verið bætt við frá síðustu birtingu og verða eftirlitsniður-stöður með súnum framvegis birtar mánaðarlega undir þessum flokki.
1.9.2009 

Á miðju ári 1996 var leyfð sala ófrystra kjúklinga á Íslandi, en fyrir þann tíma hafði aðeins verið heimilt að selja þá frysta. Neysla kjúklingakjöts jókst jafnt og þétt og jukust kampýlóbakter sýkingar í fólki á sama tíma. Gripið var til viðamikilla aðgerða sem fólust m.a. í eflingu á fræðslu, rannsóknum og smitvörnum sem skilað hafa miklum árangri.
31.8.2009 
Áhugi almennings á garðrækt var með mesta móti í vor og má því ætla að víða fáist góð uppskera af kartöflum sem nægt geti fjölskyldunni í nokkrar vikur eða mánuði. Ýmsa þætti ber að hafa í huga við meðferð á ferskum kartöflum til að tryggja geymsluþol þeirra og heilnæmi.
25.8.2009 
Norræna matvælarannsóknanefndin (NMKL) hélt 63. ársfund sinn á Hótel Selfossi 21. til 25.ágúst. NMKL er ein elsta norræna samstarfsnefndin, stofnuð 1947, og samanstendur af sérfræðingum í efnamælingum, örverurannsóknum og skynmati. MAST átti í fyrsta sinn fulltrúa á fundinum.
15.8.2009 
Þann 1. september tekur gildi ný reglugerð um að merkja skuli ferskt grænmeti og aðrar ferskar matjurtir með upprunalandi. Þegar matjurtir eru seldar í lausasölu eða seljandi pakkar þeim á sölustað eiga upplýsingar um upprunaland að vera aðgengilegar með sýnilegum hætti þar sem matjurtirnar eru á boðstólum. 
5.8.2009 
Matvælastofnun hefur hrundið af stað átaksverkefni sem felst í því að fylgja eftir meintum brotum á ákvæðum reglugerðar nr. 438/2002 varðandi útivist nautgripa, en þar segir m.a. að tryggja skuli nautgripum 8 vikna útivist hið minnsta ár hvert. Bændur sem uppvísir verða að því að setja gripi sína ekki út munu fá bréf þar sem úrlausna verður krafist.
29.7.2009 
Matvælaöryggisstofnun Evrópu (EFSA) birti í júlí fyrstu árlegu skýrslu sína um varnarefnaleifar í matvælum. Skýrslan gefur yfirlit yfir þær leifar af varnarefnum, það eru leifar af plöntulyfjum (skordýraeitur og sveppalyf), illgresiseyðum og stýriefnum, sem fundust í matvælum árið 2007 og metur hugsanleg áhrif þeirra á heilsu neytenda.
28.7.2009 
Viðvörunarkerfi Evrópu fyrir matvæli og fóður (RASFF - Rapid Alert System for Food and Feed), sem er tengslanet Evrópusambandsins og EFTA-ríkjanna um öryggi matvæla og neytendavernd, er  30 ára í ár. Í tilefni af þessu var nýr leitarvefur fyrir almenning “RASFF-window” opnaður í júlí. Þá var einnig gefin út ársskýrsla viðvörunarkerfisins 2008.
28.7.2009 

Fyrirtækið Ora hefur ákveðið að kalla inn Ora kjötbollur í brúnni sósu í stórum dósum (850 gr) vegna hugsanlegra framleiðslugalla. Innköllunin er gerð í varúðarskyni, þar sem slíkur galli hefur gert vart við sig í einni af framleiðslulotum vörunnar. Sjá heimasíðu fyrirtækisins: www.ora.is.
14.7.2009 
Í góða veðrinu kitlar það oft landann að fara út að grilla sér góðan mat. Oft gleymist hreinlæti við matargerðina og eykst hættan á matarsjúkdómum því bakteríur geta leynst víða. Því vill Matvælastofnun minna á nokkur einföld atriði sem minnka hættuna á matarsýkingum til muna.
10.7.2009 

Eitt af hlutverkum Gæðasviðs MAST er að birta niðurstöður úr eftirliti stofnunarinnar með eldi og slátrun dýra. Í fyrstu verða niðurstöður úr eftirliti með salmonellu í svínum og alifuglum og campylobacter í alifuglum birtar, en þegar reglubundnu eftirliti hefur verið komið á í öðrum dýrategundum munu niðurstöður úr því einnig birtar.
30.6.2009 

Mælingar á eitruðum þörungum sýna að mikil hætta er á PSP eitrun við neyslu á skelfiski úr Eyjafirði. Sýni voru tekin 26. júní á tveimur stöðum í Breiðafirði og greindust þörungar af  tegundinni Alexandrium,  sem valda PSP eitrun, langt yfir viðmiðunarmörkum. Sýnt hefur verið fram á samhengi á milli tegundarinnar og PSP eiturs í kræklingi.
26.6.2009 

Þann 1. október 2006 var eftirliti með salmonellu í svínrækt breytt. Nú er fylgst með salmonellu í svínræktinni með þrennum hætti í stað stopulla sýnatakna úr niðurföllum svínasláturhúsa. Helsta breytingin er sú að litið er á alla svínaræktina í heild sinni sem áhættuþátt m.t.t. salmonellu í stað einstakra búa.
26.6.2009 
Breytingar hafa verið gerðar á vef Matvælastofnunar. Nýtt veftré hefur verið tekið í notkun, uppsetningu hefur verið breytt og útlit uppfært með það að markmiði að auðvelda aðgengi notenda að upplýsingum og gögnum. Búast má við truflunum á starfsemi vefsins fram eftir degi vegna breytinganna.
25.6.2009 

Mælingar á eitruðum þörungum og þörungaeitri sýna að enn er mikil hætta á PSP eitrun við neyslu á skelfiski úr Eyjafirði.  Sýni voru tekin 21.júní og greindust þörungar af tegundinni Alexandrium,  sem valda PSP eitrun, þrefalt yfir mörkum og PSP eitur í kræklingi mældist tífalt yfir viðmiðunarmörkum.
22.6.2009 
Eftirlitsverkefni Matvælastofnunar og Heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga vegna salmonellu í svínakjöti hófst í byrjun júní. Taka á 100 sýni af svínakjöti á markaði.  Á síðastliðnu ári og fyrri hluta þessa árs hefur salmonella greinst í auknum mæli á svínabúum og í stroksýnum teknum í sláturhúsum og er tilgangur eftirlitsverkefnisins að kanna hvort eitthvað sé um salmonellu í svínakjöti á markaði. 
16.6.2009 
Lömunareitrun PSP hefur greinst í kræklingi úr Eyjafirði. Í sýnum sem nýlega voru tekin til þörungaeitursgreiningar reyndist magn PSP vera rétt undir viðmiðunarmörkum en magn Alexandrium þörunga sem valda eitruninni yfir hættumörkum. Matvælastofnun varar því við sterklega við neyslu og tínslu á kræklingi og öðrum skelfiski úr Eyjafirði.
15.6.2009 
Matvælastofnun hefur fengið athugasemdir frá Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) er varðar notkun fjölfosfata (polyphosphates) í framleiðslu á saltfiski. Ekki er heimilt að nota fjölfosföt í ferskan eða saltaðan fisk, en heimilt er að nota fjölfosföt í frystan fisk og fiskafurðir. Undantekningarlaust þá er skylt að merkja aukefni ef þau eru notuð.
11.6.2009 
Matvælastofnun (MAST) bendir á þá meginreglu að eingöngu er heimilt að markaðsetja krækling og annan skelfisk sem kemur frá viðurkenndu veiðisvæði og vinnsluleyfishafa sem er undir eftirliti Matvælastofnunar.  Skelfiskur getur innihaldið þörungaeitur sem er hættulegt mönnum og því er þörf á virku eftirlitskerfi til verndar neytendum.
9.6.2009 
Starfsskýrsla MAST 2008 hefur verið gefin út á rafrænu formi. Skýrslan nær yfir fyrsta starfsár Matvælastofnunar sem hóf störf 1. janúar 2008 þegar matvælasvið Umhverfisstofnunar og Fiskistofu sameinuðust Landbúnaðarstofnun. Auk krefjandi verkefna þurfti stofnunin að móta starfsemi sína og stefnu að breyttu starfsumhverfi og víðara verksviði.
3.6.2009 
Samkvæmt reglugerð nr. 550/2008 um flutning líflamba milli landsvæða skulu þeir sem hyggjast selja líflömb sækja um það til Matvæla-stofnunar. Stofnunin hefur nú farið yfir umsóknirnar og veitt þeim umsækjendum sem uppfylla skilyrði reglugerðarinnar leyfi til að selja líflömb og/eða kið.
29.5.2009 

Á tímabilinu 1. júní til 31. ágúst 2009 er óheimilt að landa óslægðum fiski af dagróðrarbátum á laugardögum og sunnudögum. Matvæla-stofnun getur veitt undanþágu frá þessu banni verði sýnt fram á með óyggjandi hætti að skilyrði um slægingu í landi séu uppfyllt. 
27.5.2009 
Gæði fiskafurða og geymsluþol ráðast ekki hvað síst af því hversu hratt fiskurinn er kældur strax eftir að hann er veiddur. Hitastig í afla dag- róðrarbáta, sem berst óísaður að landi, er um eða yfir 10°C á sumrin. Fiskur, sem geymdur hefur verið við svo hátt hitastig, hefur rýrnað umtalsvert að gæðum og er því augljóslega mun verðminna hráefni.
7.5.2009 
Lyfja- og matvælastofnun Bandaríkjanna, FDA, hefur á heimasíðu sinni gefið út viðvörun við notkun Hydroxycut fæðubótarefna þar sem stofnuninni hafi borist 23 tilkynningar um alvarlegar aukaverkanir af ýmsu tagi sem tengjast notkun Hydroxycut og þar af eitt dauðsfall. Stofnunin hefur sent frá sér lista yfir 14 mismunandi Hydroxycut vörur sem voru á markaði og hafa verið innkallaðar þar í landi.
28.4.2009 
Inflúensan sem nú geisar meðal fólks í Mexíkó og hefur borist þaðan til annarra landa er ekki af völdum venjulegrar svínainflúensuveiru. Um er að ræða nýtt veiruafbrigði sem berst milli manna. Uppruni þessa nýja afbrigðis er óljós en í því er blanda af erfðaefni frá inflúensuveirum manna, svína og fugla. Ekki hefur orðið vart við aukna tíðni inflúensu í svínum í tengslum við hið nýja afbrigði inflúensuveirunnar.
22.4.2009 
Matvælastofnun (MAST) heldur fræðslufund um fæðubótarefni og heilsu þriðjudaginn 28. apríl 2009 kl. 15:00-16:00. Á fundinum verður fjallað um gildandi reglur um fæðubótarefni og breytingar á Evrópu-löggjöfinni, eftirlit með innihaldi og fullyrðingum, gæði fæðubótarefna og rannsóknir á áhrifum þeirra.
18.4.2009 

Fyrir skömmu greindist salmonellusýking (S. typhimurium) í tveimur ungmennum frá kúabúi á Austurlandi. Ungmennin búa í Reykjavík, en voru í stuttri heimsókn. Í kjölfarið voru tekin sýni úr kúnum á búinu. S. typhimurium greindist í einu sýni en dæmigerð einkenni sýkingar greindust ekki í neinni af kúnum við skoðun héraðsdýralæknis.
16.4.2009 

Matvælastofnun hefur verið í samstarfi við Rannsóknaþjónustuna Sýni og Matís um skipulag námskeiða fyrir starfsfólk í fiskiðnaði á Íslandi.  Það er á ábyrgð matvælaframleiðanda að starfsfólk fái nauðsynlega þjálfun um mikilvægi hreinlætis og góðra framleiðsluhátta í matvælafyrirtækjum.
16.4.2009 
Áherslumiðað eftirlit með fiskvinnslufyrirtækjum hófst í byrjun þessa árs. Á fyrsta ársfjórðungi ársins beindu skoðunarstofurnar eftirlitinu sérstaklega að meðhöndlun hráefnis og vöru í vinnslu annars vegar og umgengni hins vegar.
14.4.2009 
Málþing um áverka á sýningar- og keppnishrossum var haldið á Hvanneyri 13. mars 2009 undir yfirskriftinni „Út með ágrip“. Dýralæknir hrossasjúkdóma hjá Matvælastofnun var meðal frummælenda og gerði grein fyrir áverkaskoðun á keppnishestum á LM 2008.
6.4.2009 
Þann 26. febrúar síðastliðinn varaði Matvælastofnun við fæðubótar-efninu Fortodol sem sem getur valdið alvarlegum lifrarskaða.  Í Svíþjóð hafa fjögur alvarleg tilfelli lifrarbilana og þar af eitt dauðsfall, verið tengt við notkun Fortodol.  Í Noregi hefur eitt dauðsfall og fimm tilfelli lifrarskaða verið tengt við efnið. 
25.3.2009 

Matvælastofnun (MAST) heldur fræðslufund um innflutningseftirlit á matvælum og lifandi dýrum þriðjudaginn 31. mars 2009 kl. 15:00-16:00. Á fundinum verður fjallað um innflutning á matvælum og lifandi dýrum til Íslands, stöðuna í dag og væntanlegar breytingar við innleiðingu nýrrar matvælalöggjafar.
9.3.2009 
Grunur er um salmonellusmit í ferskum kjúklingum frá Reykjagarði hf. og hefur fyrirtækið í varúðarskyni innkallað allar afurðir með rekjanleikanúmer 002-09-05-4-04. Neytendur sem hafa keypt kjúklinga með þessu rekjanleikanúmeri eru beðnir um að hafa samband í síma 575 6445 eða á netfangið sala@holta.is til að skila inn vörum.
6.3.2009 
Matvælastofnun hefur fengið upplýsingar í gegnum evrópska viðvörunarkerfið RASFF (Rapid Alert System for Food and Feed) um fæðubótarefni sem innihalda litarefnið erythrosine (E 127) sem óheimilt er að nota í slíkar vörur.  Fæðubótarefnin sem um ræðir eru Thermo Gain og Cell Tech Hardcore.
6.3.2009 

Sauðfjárbændur sem ætla að sækja um leyfi til að selja líflömb skulu senda skriflega umsókn til Matvælastofnunar eigi síðar en 1. apríl 2009 á eyðublöðum sem finna má á vef Matvælastofnunar eða með því að hafa samband í síma 530-4800 og fá þau send.
26.2.2009 
Fortodol er fæðubótarefni sem unnt er að kaupa gegnum internetið og hefur einnig verið fáanlegt meðal annars í ýmsum heilsubúðum í Svíþjóð, Noregi og Danmörku. Fortodol hefur ekki verið tilkynnt til Matvælastofnunar (innflutning / markaðssetningu fæðubótarefna hér á landi ber að tilkynna til Matvælastofnunar) og er eftir því sem næst verður komist ekki á almennum markaði hér á landi. 
17.2.2009 

Matvælastofnun heldur fræðslufund um salmonellu í fóðri, búfé og matvælum þriðjudaginn 24. febrúar 2009 kl. 15:00-16:00. Á fundinum verður fjallað um salmonellu á Íslandi, þróunina undanfarin ár, stöðuna í dag og framtíðarhorfur á öllum stigum fæðukeðjunnar allt frá dýrafóðri að tilbúnum matvælum.
9.2.2009 
Hið árlega Fræðaþing landbúnaðarins 2009 verður haldið dagana 12. og 13. febrúar nk. í ráðstefnusölum á 2. hæð Radisson SAS Hótel Sögu. Setning og sameiginleg dagskrá að morgni fyrri dagsins verður í ráðstefnusal í húsi Íslenskrar erfðagreiningar að Sturlugötu 8.
6.2.2009 
Matvælastofnun hefur ákveðið að birta reglulega niðurstöður úr eftirliti stofnunarinnar með salmonellu í fóðurstöðvum, svínaeldi og svínaslátrun á heimasíðu stofnunarinnar. Á árinu 2008 greindist salmonella í auknum mæli í sýnum í fóðurstöðvum og í svína- og alifuglaeldi við reglubundna vöktun Matvælastofnunar.
5.2.2009 

Hollustumerki er tákn sem sett  er á umbúðir matvæla sem uppfylla ákveðin skilyrði og merkir að varan hafi tiltekna, skilgreinda hollustueiginleika. Markmið með merkinu er að neytendur geti á skjótan hátt valið hollar matvörur við innkaup.
5.2.2009 

Fyrirsjáanlegar eru breytingar á reglugerð um merkingu næringargildis matvæla hvað varðar skilgreiningu á trefjum, breytistuðlum fyrir trefjar og erytritol og lista yfir vítamín og steinefni sem heimilt er að tilgreina í merkingu ásamt ráðlögðum dagskammti.
3.2.2009 

Í 2. tölublaði Bændablaðsins frá 28. janúar sl. birtist grein með þessu heiti eftir Sigurð Sigurðarson dýralækni og Sigtrygg Jón Björnsson. Greinin er að mörgu leyti fróðleg, en fyrirsögnin er villandi og því er þörf á að leiðrétta nokkur helstu atriði í því sambandi.
26.1.2009 

Matvæla- og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna (FDA) varar neytendur við neyslu matvæla sem innihalda hnetusmjör vegna salmonellufaraldurs sem upp hefur komið í Bandaríkjunum. Alls hafa 434 manns veikst af Salmonella typhimurium og vinnur FDA að því að finna uppruna smitsins. 
25.1.2009 
Eins og kunnugt er hefur íslenski hrossastofninn verið laus við marga alvarlega smitsjúkdóma. Þessir sjúkdómar eru allir landlægir í nágrannalöndum okkar og eiga sinn þátt í að hestahaldið þar verður aldrei jafn frjálslegt, einfalt og auðvelt og hér á landi. Eðlilega er spurt  hvort nauðsynlegt sé að viðhalda þessari stöðu.
22.1.2009 
Þessa dagana er vinnsluleyfishöfum sjávarafurða að berast bréf frá Matvælastofnun (MAST) þar sem breytingar á áherslum í eftirliti eru kynntar. Fyrirkomulagi eftirlits verður breytt á þann hátt að teknar verða upp áherslumiðaðar skoðanir. Á fyrsta ársfjórðungi verður athyglinni beint að meðhöndlun hráefnis og vöru í vinnslu og umgengni.
21.1.2009 
Ný auglýsing um takmörkun á innflutningi matvæla og fóðurs frá Kína. var birt 19. janúar. Auglýsingin er um bann eða takmörkun á innflutningi og varúðarráðstafanir vegna matvæla og fóðurs sem innihalda mjólk, mjólkurafurðir, soja eða sojaafurðir eða hjartarsalt, og eru upprunnar í Kína eða eru fluttar frá Kína.
20.1.2009 

Matvælastofnun heldur fræðslufund um heilbrigði íslenska hestsins þriðjudaginn 27. janúar 2009 kl. 15:00-16:00. Á fundinum verða teknir fyrir þættir sem ógnað geta heilbrigði og velferð hrossastofnsins og fjallað um viðbrögð við hugsanlegri vá. Þá verða nýleg dæmi um salmonellusýkingu og brot á dýraverndarlögum til umfjöllunar.
16.1.2009 

Evrópusambandið (ESB) gaf nýlega út reglugerð um efni og hluti úr endurunnu plasti sem ætlað er í snertingu við matvæli. Reglugerðinni er ætlað að tryggja að umbúðir matvæla úr endurunnu plasti séu öruggar fyrir neytendur og mun hún verða tekin upp í íslenskri löggjöf.
15.1.2009 
Riða hefur greinst á tveimur bæjum í Skaga- og Eyjafjarðarumdæmi. Svo vill til að bæirnir heita báðir Dæli, annar í Sæmundarhlíð í Skagafirði en hinn í Skíðadal í Dalvíkurbyggð. Hér er um hefðbundna riðu að ræða í tveimur kindum og voru báðar kindurnar með klínísk einkenni. Um 130 vetrarfóðraðar kindur eru samtals á báðum bæjum.
12.1.2009 
Síðastliðið sumar komu saman fulltrúar frá rannsóknahópum sem stunda rannsóknir á sumarexemi í hrossum í Evrópu og Bandaríkjunum á vinnufundi á Hólum í Hjaltadal þar sem niðurstöður rannsókna voru kynntar. Staða þessara rannsókna hefur nú verið birt í yfirlitsgrein í vísindaritinu Veterinary Immunology and Immunopathology.
9.1.2009 
Matvælastofnun hefur fengið upplýsingar í gegnum viðvörunarkerfið RASFF (Rapid Alert System for Food and Feed) um innköllun á niðursoðinni kjúklingakæfu með tómötum frá Póllandi. Eitt af hráefnum kæfunnar var írsk svínalifur sem mælst hefur með díoxín og PCB yfir leyfilegum hámarksgildum samkvæmt reglugerð nr. 662/2003.
8.1.2009 

Nú hefur árið 2008 runnið sitt skeið og lýkur þar með fyrsta starfsári MAST. Verkefni sem stofnunin tókst á við voru jafnt fjölbreytileg sem krefjandi og settu svip á nýja starfshætti og áherslur á sviði matvælaöryggis og dýraheilbrigðis. Stofnunin þakkar samstarfsaðilum fyrir samvinnuna á árinu og óskar þeim farsældar á nýju ári.
30.12.2008 
Staðfesting hefur komið frá Keldum og sýkladeild Landspítalans að hrossin sem voru í hagagöngu í girðingu við bæinn Norður Gröf á Kjalarnesi hafi sýkst af Salmonella typhimurium, eins og grunur lék á. Veikin kom upp 21. desember og hafa nú 23 hross af yfir 40 drepist af völdum sýkingarinnar, þrátt fyrir umönnun dýralækna og eigenda.
17.12.2008 
Það er hefð fyrir því að íslendingar geri vel við sig í mat og drykk um jól og áramót.  Mikið er keypt inn af girnilegum matvælum sem tilreidd eru í eldhúsum heimilanna fyrir jól og yfir hátíðar. Mikilvægt er að huga vel að réttri meðferð matvæla, svo komast megi hjá því að sjúkdóms-valdandi örverur spilli jólagleðinni.  
8.12.2008 

Írsk yfirvöld innkölluðu á laugardag allt svínakjöt eftir að í ljós kom að magn díoxíns í svínakjöti var langt yfir leyfilegum mörkum. Samkvæmt upplýsingum Matvælastofnunar hefur ekkert svínakjöt verið flutt inn frá Írlandi síðan 1. september, hvorki beint eða í gegnum önnur lönd, utan 24 kílóa af matreiddu beikoni.
8.12.2008 
Grunur er um salmonellusmit í ferskum kjúklingum frá fyrirtækinu Matfugli ehf. Matvælastofnun hefur óskað eftir að fyrirtækið innkalli allar afurðir með rekjanleikanúmer  011-08-44-5-33. Um er að ræða 13440 fugla sláturhóp sem slátrað var 2. desember síðastliðinn og  6680 fugla sláturhóp úr sama eldishúsi sem slátrað var þann 3. desember eða alls 20120 kjúklingar.
5.12.2008 
Gefin hefur verið út skýrsla um áhættugreiningu vegna garnaveiki í nautgripum. Hún er afrakstur nefndar sem skipuð var af sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu þann 6. febrúar 2008 og falið að leggja mat á þá hættu sem nautgripum stafar af garnaveiki og leggja fram tillögur um varnaraðgerðir.
3.12.2008 
Sníkjudýrið Ichthyophonus hoferi hefur greinst í síld hér við land. Um er að ræða sníkil sem herjar á ýmsar tegundir sjávarfiska en er ekki skaðlegur mönnum eða öðrum spendýrum. Samkvæmt lögum er óheimilt að setja á markað til manneldis fisk eða fiskhluta sem er augljóslega sýktur af sníkjudýrum.
24.11.2008 
Matvælastofnun hefur gefið út bæklinginn Koffín: Neysla og áhrif. Í bæklingnum er meðal annars fjallað um hámarksneyslu koffíns, áhrif efnisins á líkamann og í hvaða matvælum koffín er að finna. Bækling ásamt fyrirlestrum frá fræðslufundi MAST um koffín má nálgast á heimasíðu stofnunarinnar.
20.11.2008 
Sjúkdómurinn plasmacytósa (Aleutian Disease) hefur verið staðfestur á minkabúi í Skagafirði. Sjúkdómurinn er skilgreindur sem A-sjúkdómur í íslenskum lögum og er því ætíð krafist niðurskurðar á bústofni greinist hann, líkt og gert er þegar riðuveiki greinist í sauðfé. Plasmacytósa kom síðast upp í lok árs 2005 á tveimur bæjum í Skagafirði.
17.11.2008 
Matvælastofnun heldur fræðslufund um koffín þriðjudaginn 25. nóvember 2008 kl. 15:00-16:00. Á fundinum verða kynntar reglur varðandi viðbætt koffín í matvælum og hvaða breytingar hafa orðið í þeim efnum.
13.11.2008 

Það er ýmislegt sem rekstraraðilar veitingahúsa þurfa að hafa í huga við rekstur á jólahlaðborðum. Auk þess að hafa góðan mat í boði fyrir neytendur þarf að tryggja öryggi matvælanna. Hér eru nokkur atriði sem rekstraraðilar þurfa að hafa í huga.
3.11.2008 
Þann 30. september sl. hélt Matvælastofnun samsæti í höfðuðstöðvum sínum á Selfossi  til að marka þau tímamót að Sigurður Sigurðarson, dýralæknir sauðfjár- og nautgripasjúkdóma væri að láta af störfum eftir um 40 ára óþrjótandi baráttu við að bæta og standa vörð um heilbrigði íslensks búfjár.
30.10.2008 
Efni frá fræðslufundi Matvælastofnunar um Umgengni og hreinlæti í íslenskum fiskvinnslum sem haldinn var 28. október hefur nú verið sett á vefinn. Á fundinum voru kynntar niðurstöður úr könnun á umgengni og hreinlæti í íslenskum fiskvinnslum. Fyrirlesari var Guðjón Gunnarsson fagsviðsstjóri hjá Matvælastofnun.
29.10.2008 
Eftirliti með eiturþörungum hefur verið hætt í haust, en samkvæmt síðustu mælingum var magn lipophilic toxins (DSP eða Diarrhetic Shellfish Poison) langt yfir viðmiðunarmörkum eða um 500%. Þetta eitur getur dvalið í kræklingi í fleiri mánuði og vill Matvælastofnun því vekja athygli á hættunni sem stafar af neyslu kræklinga úr Hvalfirði.
21.10.2008 
Matvælastofnun heldur fræðslufund um umgengni og hreinlæti í íslenskum fiskvinnslum þriðjudaginn 28. október 2008 kl. 15.00-16.00. Á fundinum verða kynntar niðurstöður úr könnun á umgengni og hreinlæti í íslenskum fiskvinnslum sem framkvæmd var af Fiskistofu og birt var í skýrslu árið 2007.
10.10.2008 

Evrópusambandið hefur tekið ákvörðun um að banna innflutning inn á evrópska efnahagsvæðið á samsettum matvælum, sem upprunnin eru í Kína eða innflutt frá Kína, sem innihalda mjólk eða mjólkurafurðir ætluðum ungum börnum. Auglýsing hefur verið birt hérlendis sem setur sömu hömlur á innflutningi þessara vara til Íslands.
9.10.2008 
Vegna mikillar umræðu um bisphenol A (BPA) í umbúðum matvæla vill Matvælastofnun koma eftirfarandi á framfæri: Matvælaöryggisstofnun Evrópu EFSA (European Food Safety Authority) hefur látið endurmeta efnið bisphenol A og staðfestir að notkun bisphenols A í samræmi við gildandi reglur ætti ekki að vera hættuleg heilsu manna.
8.10.2008 

Í haust er Matvælastofnun með sérstakt átak í gangi við skipulagningu á bólusetningum á garnaveikisvæðum og markmiðið er að hvert einasta ásetningslamb og kið verði bólusett sem allra fyrst á haustinu og eigi síðar en 31. desember. Allir eigendur sauðfjár og geitfjár á garnaveikis- svæðum eru hvattir til að hafa samband við sinn héraðsdýralækni og tilkynna honum um þau ásetningslömb sem þarf að bólusetja.
7.10.2008 
Matvælastofnun vill vekja athygi á fræðsluefni sem birt er á heimasíðu stofnunarinnar undir "Fræðsla-Útgáfa" hægra megin á síðunni. Meðal þess efnis sem þar er að finna eru skyggnur frá fræðslufundum MAST, bæklingar, ársskýrslur, eftirlitsskýrslur, ýmsar greinar og rit, o.fl. Hægt er að senda beiðni um fræðsluefni til dreifingar á mast@mast.is.
26.9.2008 
Matvælaöryggisstofnun Evrópu (EFSA) hefur gert áhættumat vegna melamíns í mjólkurvörum frá Kína. Samkvæmt áhættumatinu er hugsanlegt að samsett matvæli frá Kína innihaldi mengað mjólkurduft. Í áhættumatinu eru tilgreindar nokkrar tegundir matvæla sem börnum getur stafað hætta af ef vörurnar innihalda efnið melamín.
25.9.2008 
Matvælastofnun vill minna á að samkvæmt 7. gr reglugerðar nr. 550/2008 um flutning líflamba milli landsvæða er krafa um sótthreinsun flutningstækis, en greinin hljóðar þannig: „Flutningsaðili líflamba skal sjá til þess að flutningstæki séu þrifin og sótthreinsuð fyrir flutning og skal hreinsunin tekin út og vottuð af héraðsdýralækni. Flutningsaðili skal framvísa vottorði héraðsdýralæknis sé þess óskað“.
24.9.2008 
Í vetur mun Matvælastofnun bjóða upp á opna fræðslufundi fyrir almenning síðasta þriðjudag hvers mánaðar í húsakynnum umdæmisskrifstofu stofnunarinnar í Reykjavík að Stórhöfða 23. Fyrsti fundurinn verður haldinn þriðjudaginn 30. september 2008 frá kl. 15:00 til 16:00 þar sem fjallað verður um varnarefnaleifar í matvælum.
23.9.2008 
Vegna frétta í fjölmiðlum um mjólkurduft mengað af melamíni frá Kína vill Matvælastofnun (MAST) koma eftirfarandi upplýsingum á framfæri til neytenda. Engin innflutningur hefur verið frá Kína til Íslands af mjólk, mjólkurdufti eða stoðmjólkurblöndum fyrir börn. Í Kína hafa rúmlega 6000 börn veikst af nýrnasteinum og 4 hafa dáið vegna nýrnabilunar.
16.9.2008 
Matvælastofnun vill minna á mikilvægi þess að kartöflur séu geymdar á dimmum stað. Ef þess er ekki gætt taka þær fljótt á sig grænan lit. Ljósið getur einnig valdið aukningu á magni efnasambanda, svokallaðra glýkóalkalóíða, m.a. sólaníns, sem gefa kartöflunum beiskt bragð og gera þær óheilnæmar til matar fari magn þeirra yfir ákveðin mörk.
10.9.2008 
Nú eru skólarnir byrjaðir aftur eftir sumarfrí. Hér koma nokkrar ábendingar fyrir foreldra og börn um skólanesti. Boðið er upp á heitan mat í hádegi í mörgum skólum í dag en ekki eru allir sem kjósa þann kost og eins eru skólar þar sem ekki er boðið upp á slíkt fyrirkomulag.
5.9.2008 

Evrópuþingmenn hafa samþykkt tillögu þess efnis að bann verði sett við klónun dýra til manneldis. Tillagan var samþykkt með 622 atkvæðum gegn 32. Þingmennirnir lögðu einnig til að innflutningur á einræktuðum dýrum og afkvæmum og afurðum þeirra verði bannaður. Há dánartíðni dýra og skerðing á líffræðilegri fjölbreytni voru helstu áhyggjuefni. 
4.9.2008 
Skýrsla Matvælastofnunar (MAST) um eftirlit með varnarefnaleifum í ávöxtum og grænmeti árið 2007 hefur verið gefin út. Niðurstöður eru svipaðar og undanfarin ár og er þetta þriðja árið í röð sem ekkert sýni af íslensku grænmeti mældist með varnarefnaleifar yfir leyfilegum mörkum.
4.9.2008 

Eins og reglulegir notendur hafa orðið varir við hefur vefur Matvælastofnunar legið niðri undanfarna tvo daga vegna bilunar hjá hýsingaraðila. Vefurinn er nú kominn aftur í fyrra horf og er beðist velvirðingar á hugsanlegu ómaki sem bilunin kann að hafa ollið.
2.9.2008 
Vegna viðvarandi eiturþörunga í sjósýnum úr Hvalfirði voru sýni af kræklingi send til þörungaeitursgreiningar. Niðurstaðan leiðir í ljós að í kræklingnum er magn þörungaeiturs langt yfir viðmiðunarmörkum og reynist hann því mjög eitraður. Kræklingaræktendur eru beðnir um að kynna sér skilyrði til að framleiða krækling og setja á neytendamarkað.
29.8.2008 
Ársskýrsla 2007 um framkvæmd RASFF (Rapid Alert System for Food and Feed) viðvörunarkerfis Evrópusambandsins og EFTA-ríkjanna fyrir matvæli og fóður var birt 23. júlí sl. Skýrslan sem er 65 blaðsíður hefur að geyma stutta lýsingu á RASFF-kerfinu og starfsreglum þess, ásamt því að draga fram nokkrar helstu niðurstöður ársins.
22.8.2008 
Þann 15. ágúst sl. barst Matvælastofnun tilkynning í gegnum viðvörunarkerfi Lyfjastofnunar um fæðubótarefni frá Kanada. Um er að ræða vörur með acidophilus sem innihalda mjólkurprótín en eru merktar „non-dairy“, þ.e. án mjólkur. Neysla af jafnvel örlitlum skammti af mjólkurprótíni getur verið hættuleg fólki með mjólkurofnæmi.
8.8.2008 
Vegna frétta í fjölmiðlum um merkingu matvæla sem innihalda tiltekin litarefni og þess sem komið hefur fram af hálfu Neytendasamtakanna um þetta mál vill Matvælastofnun (MAST) koma þeim upplýsingum á framfæri að löggjöf um leyfisveitingaferli fyrir aukefni og fleiri efnasambönd er í endurskoðun hjá Evrópusambandinu (ESB).
6.8.2008 
Matvælaöryggisstofnun Evrópu (EFSA) hefur gefið frá sér vísindaálit um einræktun dýra. Í álitinu kemur meðal annars fram að einræktun geti haft alvarleg eða banvæn áhrif á heilsu klóna en að ekkert bendi til að kjöt- og mjólkurafurðir unnar úr heilbrigðum einræktuðum dýrum og afkvæmum þeirra hafi neikvæð áhrif á heilsu manna eða umhverfi.
8.7.2008 
Dýraheilbrigðissvið Matvælastofnunar, Landssamband hestamanna-
félaga og Landsmót ehf höfðu samstarf um aukið eftirlit með dýravernd á nýafstöðnu landsmóti. Allir keppnishestar í fullorðinsflokkum voru heilbrigðisskoðaðir fyrir keppni og var þeirri skoðun fylgt eftir fyrir milliriðla og úrslit.
2.7.2008 
Uppgjöri forðagæsluskýrslna lauk 26. maí sl., nokkru fyrr en verið hefur um árabil. Bændasamtök Íslands annast uppgjörið fyrir hönd Matvælastofnunar en það er byggt á skýrslum frá öllum bændum og öðrum eigendum búfjár í landinu, bæði haust- og vorskýrslum. Jafnframt sýnir uppgjörið gróffóður­forða miðað við haustbirgðir.
1.7.2008 
Tvö eftirlitsverkefni Matvælastofnunar og heilbrigðiseftirlitsins í landinu voru framkvæmd í byrjun árs. Annars vegar var örverumagn í þorramat rannsakað og hins vegar salt, nítrít og nítrat magn í kjöti og kjötvörum. Einungis eitt sýni úr hvorri rannsókn mældist yfir leyfilegum mörkum.
28.6.2008 
Við jarðvegsvinnu vegna nýbygginga í Garðabæ hafa fundist bein sem hugsanlega eru af nautgrip sem grunur leikur á að sé sýktur af miltisbrandi. Vitað er að á þessu svæði drapst nautgripur af völdum miltisbrands á stríðsárunum. Ekki er þó vitað hvort þessar beinaleifar séu frá dýri sem sýkst hafi af miltisbrandi.
27.6.2008 
Nýja árið byrjaði mjög vel með litlu kamfýlóbaktersmiti í kjúklinga-
sláturhópum fram í apríl 2008, en í maí tók að greinast smit í eldishópum og er það óvanalega snemma. Í tveimur þriðju sláturhópa greindist smitið fyrir slátrun og voru kjúklingarnir því frystir eða hitameðhöndlaðir áður en þeir fóru á markað.
26.6.2008 
Árni Ísaksson, starfsmaður Matvælastofnunar, var kosinn forseti Laxaverndunarstofnunarinnar (NASCO) á ársfundi stofnunarinnar sem haldinn var dagana 3.-6. júní 2008 í Gijon á Spáni. Meginefni fundarins 2008 var að kynna laxveiðistjórnun í aðildarríkjum NASCO, sem er margbreytileg, þar sem stjórnsýslukerfi landanna eru ólík.
11.6.2008 
Í Bændablaðinu, frá 14. maí 2008, var fjallað um bréf Matvælastofnunar til bænda vegna eftirlits með merkingum búfjár. Vegna umfjöllunar blaðsins um eftirlit stofnunarinnar þykir rétt að upplýsa almennt um hvernig MAST annast eftirlit með framkvæmd reglugerðar um merkingar búfjár.
8.6.2008 
Dýraheilbrigðissvið Matvælastofnunar og Dýralæknafélag Íslands stóðu í sameiningu fyrir endurmenntunarnámskeiði um tennur hesta og særindi í munni dagana 1. – 2. maí sl. Mikill áhugi var á námskeiðinu sem var sótt af 30 dýralæknum víðs vegar af landinu. Torbjörn Lundström tannlæknir og sérfræðingur í tönnum hesta var meðal kennara.
4.6.2008 
Í síðustu viku var staðfest af Tilraunastöð Háskólans í meinafræði á Keldum að riða hefði greinst í einu sýni frá kind sem drapst á bæ í Hrútafirði í Vestur-Húnavatnssýslu. Á bænum eru um 300 vetrarfóðraðar kindur og óskaði bóndinn eftir að héraðsdýralæknir kæmi og rannsakaði kindina. Riða hefur ekki greinst áður í þessu varnarhólfi.
30.5.2008 
Litarefnið (e: colour red yeast rice, fermented rice) er framleitt með sveppagerjun á hrísgrjónasterkju og er kröftugt rautt litarefni. Litarefnið er framleitt í Kína en dreifingaraðilar í Evrópu eru m.a. frá Hollandi, Þýskalandi og Austurríki. Dreifing á litarefninu og notkun þess í matvælaframleiðslu er algjörlega bönnuð.
29.5.2008 
Á tímabilinu frá 1. júní til 31. ágúst 2008 er óheimilt að landa óslægðum fiski af dagróðrarbátum á laugardögum og sunnudögum. Matvælastofnun getur veitt undanþágu frá þessu banni, enda verði sýnt með óyggjandi hætti fram á að skilyrði um slægingu í landi séu uppfyllt, eins og kveðið er á um í reglugerðinni.
23.5.2008 
Í tengslum við fyrirhugaðar breytingar á matvælalögum sem nú liggja fyrir Alþingi hafa verið miklar umræður um hættuna á að kamfýlóbakter mengaðir kjúklingar komi á markaðinn hér á landi. Við myndum kasta fyrir róða þeim mikla árangri sem Ísland hefur náð í baráttunni við kamfýlóbakter og standa í sömu sporum og árið 1999 þegar kamfýlóbakter faraldur breiddist út í fólki.
23.5.2008 
Þessa dagana er verið að klæða nokkur kjúklingahús með flugnanetum í tilraunaskyni. Flugnanets-tilraunin er samstarfsverkefni Íslendinga og Kanadamanna sem leggja til efni og búnað en kjúklingafyrirtækin Reykjagarður og Matfugl leggja til mannskap við uppsetningu og vöktun. Matvælastofnun safnar rannsóknarniðurstöðum og vinnur úr þeim.
23.5.2008 

Um merkingar matvæla, þ.m.t. grænmetis gildir reglugerð nr. 503 frá 2005 með síðari breytingum. Markmið þessarar reglugerðar er að tryggja að neytendur fái réttar og greinargóðar upplýsingar um þau matvæli sem boðin eru til sölu, auglýst eða kynnt með öðrum hætti.

20.5.2008 
 Matvælastofnun, heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga og skoðunarstofur í sjávarútvegi munu á næstu mánuðum gera könnun á því hvort matvælafyrirtæki séu að uppfylla þær kröfur sem gerðar eru til þeirra varðandi eftirlit með heilsu starfsfólks. Könnunin mun standa frá maí til nóvember 2008.
16.5.2008 
Nú liggur fyrir Alþingi frumvarp til  breytinga á lögum vegna innleiðingar á matvælalöggjöf Evrópusambandsins (ESB). Þó að lagabreytingar þessar séu umfangsmiklar, sérstaklega á íslensku matvælalöggjöfinni, þá hefur breyting á lögum um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim vakið hvað mesta athygli.
29.4.2008 
Umhverfisverðlaun Árborgar 2008 voru afhent Matvælastofnun á Degi umhverfisins, föstudaginn 25. apríl 2008. Verðlaunin fela í sér viðurkenningu fyrir góðan frágang á lóð og umhverfi.
24.4.2008 
Á Alþingi hefur nú verið mælt fyrir breytingu á ýmsum lögum sem varða matvælaöryggi á öllum stigum fæðukeðjunnar, allt frá frumframleiðslu og þar til vara er tilbúin á borð neytenda. Helstu áherslur í þessum lagabreytingum eru ákvæði sem eiga að tryggja heilbrigði og velferð búfjár, öryggi búfjárafurða, sjávarafurða og annarra matvæla.
23.4.2008 

Í gegnum viðvörunarkerfi Evrópu (RASFF) hefur komið tilkynning um að innkalla skuli plastpela með þvottabursta framleidda í Kína fyrir fyrirtækið Vidal Europa á Spáni. Ástæða innköllunar er að það mældist flæði þalata langt yfir leyfilegum mörkum. Ekki er vitað hvort varan sé á markaði hér á landi.

8.4.2008 

Matur, öryggi og heilsa, er yfirskrift sameiginlegrar ráðstefnu á vegum Matís og Matvælastofnunar (MAST), sem fram fer á Hótel Hilton Nordica þann 16. apríl n.k. Á ráðstefnunni, sem mun standa frá 12:30 til 16:30, verður m.a. leitast við að svara spurningum á borð við hvers vegna rekjanleiki matvæla verður sífellt mikilvægari, hvað felst í staðbundinni matvælaframleiðslu, hverjar eru helstu hætturnar tengdar matarsjúkdómum og hvað ný matvælalöggjöf Evrópusambandsins þýðir fyrir Ísland.

27.3.2008 

Lýðheilsustöð og Matvælastofnun hafa opnað vefsíðu með upplýsingum og fræðslu um helstu vítamín og steinefni: www.lydheilsustod.is/vitamin

4.3.2008 
Eftirlitsverkefnið "Könnun á salmonellu og aflatoxíni í bökunarkorni, fræjum/ fræblöndum og múslí." Umhverfisstofnunar og Heilbrigðiseftirlits sveitafélaga í nóvember 2007 gaf góðar niðurstöður.
16.11.2007 
Þann 13. nóvember s.l. greindist alvarlegt afbrigði af fuglaflensu á kalkúnabúi í Suffolk í Englandi. Öllum fuglum á búinu var lógað. Faraldsfræðilegum upplýsingum var safnað og í kjölfar þess voru fjögur önnur bú skilgreind sem áhættubú. Ákvörðun var síðan tekin um að lóga einnig öllum fuglum á þeim. Smitleið hefur ekki verið staðfest en rannsókn á veirunni hefur sýnt að hún er mjög lík þeim veirum sem greindust í Tékklandi, Þýskalandi og Frakklandi á þessu ári.
15.11.2007 
Greinst hefur riða á bænum Skollagróf í Hrunamannahreppi. Um er að ræða afbrigðið Nor98 en það hefur aðeins greinst einu sinni áður hér á landi. Hjörðinni verður fargað. Faraldsfræðilegum upplýsingum verður safnað og á grundvelli þeirra verður tekin ákvörðun um hvort ástæða sé til víðtækari aðgerða.
14.9.2007 
Hringskyrfi orsakast af húðsvepp sem nefnist Trichophyton verrucosum. Einkenni sjúkdómsins eru hringlaga hárlausir blettir í húð. Smitið berst á milli dýra með beinni snertingu en getur einnig borist með öðrum dýrum, fólki og ýmsu öðru í umhverfi dýranna. Sveppagróin eru mjög harðgerð og geta lifað lengi í umhverfinu.
4.7.2007 
Nær helmingi færri tilfelli campylobacter hafa greinst í kjúklingum árið 2007 en að meðatali undanfarin sjö ár, eða frá því byrjað var að leita að campylobacter í öllum kjúklingum. Fyrstu 6 mánuði ársins hefur campylobacter fundist í 21 sláturhópi af 387 sem slátrað hefur verið, eða 5,4%. Vegið meðaltal fyrstu 6 mánaða áranna 2000 til 2006 er hins vegar með 8,9%.
27.6.2007 
Settar hafa verið tvær nýjar reglugerðir um breytingar á reglugerð nr. 340/2001 um eftirlit með fóðri. Í reglugerð nr. 41/2007 um 25. breytingu á ofangreindri reglugerð er lögfest reglugerð framkvæmdastjórnar (EB) nr. 521/2005 frá 1. apríl 2005.  Reglugerðin fjallar um "varanlegt leyfi fyrir aukefni og bráðabirgðaleyfi fyrir nýrri notkun tiltekinna aukefna sem þegar er leyft að nota í fóður".
14.6.2007 


Líkt og á síðasta ári eru tekin sýni úr villtum fuglum að vori til að kanna hvort mótefni gegn fuglaflensuveiru finnist, leitað er að H5 og H7. Í vor hafa alls 398 sýni (saursýni og/eða koksýni) verið tekin vítt og breitt um landið. Sýnin voru rannsökuð í Svíþjóð og hafa niðurstöður nú borist úr sýnunum. Reyndust þau öll neikvæð, þ.e. engin mótefni hafa fundist.

13.6.2007 
Við mótun framtíðarsýnar fyrir Landbúnaðarstofnun var horft til þess að stjórnvöld vinna nú að tillögum um breytingar á EES-samningnum, sem leiða til þess að matvælalöggjöf ESB getur tekið gildi hér á landi áður en langt um líður. Í þessu felst samræming á kröfum um hollustuhætti við framleiðslu og dreifingu matvæla og ein afleiðing af því er að skilyrði vegna innflutnings á kjöti, mjólkurvörum og öðrum landbúnaðarafurðum frá EES taka breytingum.
12.6.2007 
Alþjóðleg vinnuráðstefna rannsóknahópa sem vinna að rannsóknum á ofnæmissjúkdómum í hrossum verður haldin á Hólum, dagana 17. - 21. júní nk. Um 30 vísindamenn sem vinna að rannsóknum á ónæmisfræði hrossa munu sækja Skagafjörð heim af þessu tilefni.
6.6.2007 
Landbúnaðarstofnun var með opið hús laugardaginn 2. júní sl. til að kynna starfsemi sína.  Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra var með ávarp af þessu tilefni og opnaði síðan formlega nýja heimasíða stofnunarinnar www.lbs.is.

31.5.2007 

Landbúnaðarstofnun hefur nú látið útbúa fyrir sig bækling um starfsemi, hlutverk og framtíðarsýn stofnunarinnar. Bæklingurinn mun verða notaður við kynningar á Landbúnaðarstofnun og einnig liggja frammi í afgreiðslu hennar.

29.5.2007 
Laugardaginn 2. júní nk. verður opið hús hjá Landbúnaðarstofnun á Selfossi frá klukkan 13:00 - 16:00. Þá verður stofnunin opin fyrir gesti og starfsemi hennar kynnt, auk þess sem ný heimasíða verður formlega tekin í notkun. Gestum verður boðið uppá að hlýða á stutt erindi um starfsemi stofnunarinnar. Starfsmannafélagið Búálfar mun sjá um að grilla pylsur ofan í mannskapinn.
23.5.2007 
Þá liggur ljóst fyrir að Einar Kr. Guðfinnsson mun fara með sjávarútvegs- og landbúnaðarmál í nýrri ríkisstjórn. Ekki er vitað hvort ráðuneytin verða sameinuð síðar meir. Við óskum Einari velfarnaðar í starfi og vonum að hann verði öflugur ráðherra sem ber hag stofnunarinnar fyrir brjósti.


20.5.2007 

Úrvinnslu veiðiskýrslna fyrir laxveiðina 2006 er nú lokið og er þar gerð grein fyrir samantekt þeirra á sambærilegan hátt og gert hefur verið frá árinu 1987. Veiðimálstofnun hefur umsjón með skráningu og samantekt veiðiskýrslna samkvæmt samningi við Landbúnaðarstofnun. Eins og venja er til sendi Veiðimálastofnun út veiðibækur fyrir veiðitímann og var þeim síðan safnað saman að honum loknum. Í flestum tilfellum bárust bækurnar fljótt en þó voru nokkrar undantekningar sem seinkuðu útgáfu heildarsamantektar og í einstaka tilfellum vantar skráningu.

18.5.2007 
Nú stefnir allt í að nýr ráðherra taki áður en langt um líður yfir æðstu stjórn málefna Landbúnaðarstofnunar. Við vonum að sjálfsögðu að nýr ráðherra hafi brennandi áhuga á málefnum stofnunarinnar og vinni vel að framgangi þeirra.

Við þökkum um leið Guðna Ágústssyni fráfarandi landbúnaðarráðherra fyrir gott starf í okkar þágu.
3.4.2007 
Þann 20.03 s.l. var tillaga framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins (ESB) um að banna eftirfarandi tegundir erfðabreyttra nytjaplanta þ.e. Bt176 maís, GA21xMON810 maís, Ms1Rf1 olíu repju, Ms1Rf2 olíu repju og Topas 19/2 olíu repju samþykkt í fastanefnd sambandsins um fæðukeðjuna og heilbrigði dýra.
13.1.2006 
Um áramótin tóku gildi tvær fóðurreglugerðir hjá Evrópusambandinu. Þær, ásamt nýjum reglum um heilnæmi matvæla, geta haft veruleg áhrif á þróun matvælaframleiðslu í landbúnaði á Evrópska efnahagssvæðinu. Ísland er þar ekki undanskilið.
19.10.2005 
Að undanförnu hafa borist fréttir frá Bandaríkjunum um breytingu á veirunni sem veldur inflúensu hjá hestum, A/equine 2 (H3N8), þannig að hún sýkir nú líka hunda. Fyrst var sýnt fram að slík sýking hefði átt sér stað í hundum í janúar 2004 og nú er gert ráð fyrir að sýkingin sé orðin nokkuð útbreidd meðal hunda í Bandaríkjunum.
16.9.2005 
Dagana 19.-23. september n.k. verður haldin sameiginleg norræn æfing í viðbrögðum við gin- og klaufaveiki. Markmið æfingarinnar er að prófa samvinnu landanna og viðbragðsáætlanir þeirra þegar upp koma alvarlegir smitsjúkdómar í dýrum.
21.6.2005 
Embætti yfirdýralæknis hélt málþing miðvikudaginn 15. júní 2005 um nýjar reglur Evrópusambandsins við framleiðslu og heilbrigðiseftirlit með matvælum frá haga til maga.
11.1.2005 
Yfirvöld í Kanada hafa staðfest 2. kúariðutilfellið frá upphafi í 8 ára gamalli mjólkurkú frá Albertafylki. Að þessu sinni fannst kúariða í gegnum skimunarkerfi stjórnvalda, en Kanadamenn tóku 22.000 sýni á liðnu ári. Enginn innflutningur er á nautgripaafurðum frá Kanada til Íslands. Sjá nánari upplýsingar frá kanadískum yfirvöldum.
6.1.2005 
Miltisbruni (miltisbrandur) - er hætta enn til staðar hér í jörð? Sigurður Sigurðarson dýralæknir nautgripa- og sauðfjársjúkdóma tók saman.

Sækja grein á PDF

1.1.2005 

Markmið reglugerðar um epoxý afleiður er að kveða á um flæðimörk, leyfilegt hámarksmagn og eftir atvikum bann við notkun BADGE, BFDGE og NOGE (sjá nánar þýðingu skammstafana í reglugerð) og afleiða þeirra í efnum og hlutum sem ætlað er að snerta matvæli.

1.10.2004 
Í byrjun október 2004 kom út nýr fræðslubæklingur um mataræði á meðgöngu sem Miðstöð mæðraverndar, Lýðheilsustöð og Umhverfisstofnun standa að í sameiningu. Nálgast má bæklinginn í pdf-formi á heimasíðum allra þessa þriggja stofnana eða panta hann hjá Miðstöð mæðraverndar (mm@mm.hg.is).
7.10.2003 
Greinargerð Embættis yfirdýralæknis, Landlæknisembættis, Lýðheilsustöðvar/Manneldisráðs, Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins og Umhverfisstofnunar.

Upplýsingar

Fróðleikur frá A-Ö

A Á B C D E É F
G H I Í J K L M
N O Ó P R S T U
Ú V X Y Ý Þ Æ Ö

Spurt og Svarað