Mikill áhugi á velferð dýra

26.02.2015
Fréttir -
Dýraheilbrigði
Matvælastofnun, í samstarfi við atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, Landbúnaðarháskóla Íslands, Bændasamtök Íslands, Dýralæknafélag Íslands og Dýraverndarsamband Íslands, stóð að ráðstefnu sem haldin var sl. mánudag á Hvanneyri um nýju dýravelferðarlögin og nýútgefnar reglur um velferð búfjár. Ráðstefnan var fjölsótt og ljóst að mikill áhugi er á þessum mikilvæga málaflokki. Glærur og upptökur frá ráðstefnunni hafa verið gerðar aðgengilegar á vef Matvælastofunar undir Útgáfa - Fræðslufundir.
Ítarefni
- Tímamót í dýravelferð - Ráðstefna - frétt Matvælastofnunar frá 05.02.15
- Tímamót í dýravelferð - Dagskrá
- Upplýsingasíða Matvælastofnunar um fræðslufundi