Jarðbönn og harðindi - Hygla þarf útigangshrossum
29.12.2011
Fréttir -
Fréttir
Bændur og aðrir umráðamenn útigangshrossa eru beðnir að huga vel að hrossunum nú þegar víða eru jarðbönn. Nauðsynlegt er að gefa útigangi við þessar aðstæður, sérstaklega fylfullum og/eða mjólkandi hryssum og ungviði. Útigangshross þurfa að vera í ríflegum holdum á þessum árstíma (holdastig 3,5-4) og hafa aðgang að skjóli. Héraðsdýralæknum berst nú fjöldi ábendinga um hross sem híma fóðurlaus í girðingum þar sem enga beit er að hafa. Umráðamenn hrossa er hvattir til að bregðast við og útvega hrossunum fóður eins og skylt er skv. landslögum.
Til baka