Fara á forsíðu
SÉRFÆÐI - REGLUR
Sjá reglugerðir um sérfæði

    Reglur er varða matvæli ætluð þeim sem verða fyrir mikilli vöðvaáreynslu, einkum íþróttamönnum hafa enn ekki litið dagsins ljós hjá ESB og því hefur íslensk reglugerð ekki verið gefin út.

    Almennt séð gilda sömu reglur um sérfæði og annað fæði en á þessu eru þó undantekningar. Sem dæmi þá eru merkingareglur líkar þeim sem eiga við um almenn matvæli en reglur um innihaldsefni eru talsvert frábrugðnar. Til að mynda þá er heimilt að markaðssetja megrunarfæði með viðbættum vítamínum og steinefnum án leyfis Matvælastofnunnar (MAST) svo framarlega að hámörk og lágmörk þessara efna eru uppfyllt. Einnig er heimilt að merkja matvæli sem nota á í sérstökum læknisfræðilegum tilgangi með fullyrðingum um neyslu vegna ýmissa sjúkdóma.

    Ekki þarf að tilkynna eftirlitsaðilum þegar matvæli eru markaðssett að undanskildum matvælum sem falla undir reglugerð nr. 605/2000 um matvæli til nota í sérstökum læknisfræðilegum tilgangi en þau matvæli ber alltaf að tilkynna til Matvælastofnunnar og skal afhenda sýnishorn af merkingum vörunnar.

    Upplýsingar

    Fróðleikur frá A-Ö

    A Á B C D E É F
    G H I Í J K L M
    N O Ó P R S T U
    Ú V X Y Ý Þ Æ Ö

    Spurt og Svarað