Fara á forsíðu
MEÐHÖNDLUN - HREINSIEFNI

Umhverfisstofnun (Ust) samþykkir notkun efna til þrifa og gerileyðingar í matvælafyrirtækjum, í samræmi við 4. grein reglugerðar nr. 522/1994 um matvælaeftirlit og hollustuhætti við framleiðslu og dreifingu matvæla, 5. tl. í viðauka 3, kafla II, lið A reglugerðar nr. 233/1999 um hollustuhætti við meðferð, vinnslu og dreifingu sjávarafla og fiskafurða og 10.-11. tl. 11. gr. reglugerðar 438/2002 um aðbúnað nautgripa og eftirlit með framleiðslu mjólkur og annarra afurða þeirra.

Samþykki Ust felur ekki í sér mat á gæðum eða virkni einstakra efna. Samþykkið felur m.a. í sér staðfestingu þess að merkingar séu réttar og notkunarleiðbeiningar viðeigandi. Efni sem innihalda óleyfileg efni eða efni í ofháum styrkleika hljóta ekki samþykki. Samþykki Umverfisstofnunar (áður Hollustuverndar ríkisins) má ekki nota í auglýsingaskyni.

Umsækjendur skulu fylla út þar til gert eyðublað þegar sótt er um samþykki. Efni eru ekki tekin til formlegrar umfjöllunar hjá stofnuninni nema allar umbeðnar upplýsingar komi fram í umsókninni. Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér ákvæði reglugerða er málefnið snerta. Farið er með allar upplýsingar sem trúnaðarmál.

Umhverfisstofnun hefur nú samþykkt yfir 250 vörutegundir sem nota má til þrifa og gerileyðingar í matvælafyrirtækjum. Að ofan er listi yfir þessar vörutegundir. (Sótthreinsi-)handsápur og (sótthreinsi-)handkrem eru dæmi um vörur sem ekki falla undir samþykktarferlið. Ástæða þessarar undantekningar er fyrst og fremst sú að þessar vörur flokkast að hluta til sem snyrtivörur og notkun þeirra er allt önnur en eiginlegra efna/vara til þrifa og gerileyðingar í matvælaiðnaði.

Það er á ábyrgð forsvarsmanna matvælafyrirtækja að efni til þrifa og gerileyðingar séu geymd á tryggan hátt í afmörkuðu loftræstu rými og notkun þeirra sé í samræmi við leiðbeiningar. Notkunarleiðbeiningum og varúðar setningum er ætlað að lágmarka líkur svo frekast sem kostur er á hugsanlegri mengun matvæla af eiturefnum, hættulegum efnum og efnum sem innihalda slík efni. Höfum hugfast: Örugg matvæli - allra hagur !

Upplýsingar

Fróðleikur frá A-Ö

A Á B C D E É F
G H I Í J K L M
N O Ó P R S T U
Ú V X Y Ý Þ Æ Ö

Spurt og Svarað