Íblöndun vítamína, steinefna og amínósýra í barnamat
Í reglugerðinni um barnamat er að finna mörk fyrir magn próteins, fitu, sykurs, vítamína og steinefna. Leyfilegt er að bæta næringarefnum í tilbúinn barnamat en fylgja þarf reglum um lágmarks- og hámarksmagn einstakra efna. Eins eru gerðar ákveðnar kröfur um magn vítamína og steinefna í einstaka vöruflokkum eins og sjá má í töflu 1. Sjá reglulegerðir um íblöndun bætiefna og reglugerðir um sérfæði
Tafla 1.
|
Matvara |
Næringarefni |
Lámarksmagn í 100 kcal (100kJ) |
Hámarksmagn í 100 kcal (100kJ) |
|
Allur barnamatur þar sem korn er uppistaðan |
Þíamín µg1 |
100 (25) |
500 |
|
Kornblöndur sem hræra skal út með vatni eða safa
|
A-vítamín µg RJ2
D-vítamín µg
Kalsíum mg3 |
60 (14)
1 (0,25)
80(20) |
180 (43)
3 (0,75)
180 (43) |
|
Ávaxtasafar, nektar og grænmetissafar |
C-vítamín mg |
25 (6) |
125 (30) |
|
Grænmetissafar |
A-vítamín µg RJ2 |
100(25) |
180 (43) |
1 míkrógrömm
2 retínóljafngildi
3 milligrömm
Hvernig er hægt að sjá hvort búið sé að bæta vítamínum og steinefnum í barnamat
Allur barnamatur á að vera merktur með innihaldslýsingu þar sem innihaldsefnin eru gefin upp í röð eftir minnkandi magni. Í innihaldslýsingunni er hægt að sjá hvort vítamínum og steinefnum hafi verið bætt í vöruna. Til að skýra þetta betur er best að skoða dæmi (sjá hér að neðan):
Innihaldslýsing, hafragrautur með eplum (Havregrød med æble)
Skummetmælkspulver (undanrennuduft)
Havremel (haframjöl)
Hvedemel (hveiti)
Vegetabilsk fedt (jurtafita)
Laktose (mjólkursykur, laktósi)
Rismel (hrísmjöl)
Saccharose (sykur, súkrósi)
Maltodextrin (fjölsykrur)
Æblepulver, 1,5% (epladuft)
Vitaminer (A, D, B) (A-, D- og B-vítamín)
Af innihaldslýsingunni má sjá að mest er af undanrennudufti í grautnum og minnst af vítamínum. Í innihaldslýsingunni má sjá að A-, D- og B-vítamíni er bætt í grautinn. Oft er gefið upp efnafræðilegt heiti á vítamínum í innihaldslýsingunni og tafla 3 skýrir hvaða vítamín er verið að vísa til. Hversu mikið er bætt af vítamínum og steinefnum er ekki hægt að sjá í innihaldslýsingunni en þess í stað má finna magn þeirra í næringargildismerkingunni, sjá dæmi í töflu 2.
Tafla 2. Hafragrautur með eplum - Næringargildismerking
|
Næringsindhold |
Pr. 100 g pulver |
Pr. portion 30 g pulver |
|
Energi Kj kcal
Protein g
Kulhydrat g
Fedt g |
1785 430
14,5
67,0
10,8 |
540 130
4,4
20,1
3,2 |
|
Vit. A µg
Vit. D µg
Vit B1 mg
Calcium mg |
300
4,8
0,5
370 |
90
1,4
0,15
111 |
Í töflu 2 má sjá magn vítamínanna sem bætt var í grautinn. Ef eitthvert þessara þriggja vítamína er líka náttúrulega til staðar í matvælinu þá er um að ræða samanlagt magn þess sem náttúrulega er til staðar ásamt viðbætta vítamíninu. Þar sem umrædd vara, hafragrautur með eplum, flokkast sem kornvara sem hræra skal út með vatni eða safa (sjá töflu 1.) þá er einnig gerð ákveðin krafa um magn kalks (kalsíum) í vörunni og því skylt að merkja magn þess í næringargildismerkingu.
Eins og áður segir er gerð krafa um magn ákveðinna vítamína og steinefna í nokkrum vöruflokkum (sjá töflu 1.) og þar af leiðandi þarf að merkja þessi næringarefni í næringargildismerkingu. Ekki er skylt að merkja magn vítamína og steinefna sem náttúrulega eru til staðar í matvælum í næringargildismerkingu. Velji framleiðendur hins vegar að merkja þau vítamín og steinefni sem eru náttúrulega til staðar í barnamat þá kemur magn þeirra fram í næringargildismerkingu en þeirra er ekki getið í innihaldslýsingu (þar sem ekki er um íblöndun að ræða).
Tafla 3
Vítamín |
Efnafræðiheiti |
|
A-vítamín |
Retínól, Beta-karótín |
|
D-vítamín |
Ergókalsíferól (D2), Kólekalsíferól (D3) |
|
E-vítamín |
Alfa-tókóferól |
|
K-vítamín |
Fýtómenadíon |
|
C-vítamín |
Askorbínsýra |
|
B1-vítamín |
Þíamín |
|
B2-vítamín |
Ríbóflavín |
|
B6-vítamín |
Pýridoxín |
|
B12-vítamín |
Kóbalamín |
|
Níasín |
Níkótínsýra |