Matvælastofnun hefur,
samkvæmt lögum nr. 66/1998 um
dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr með síðari breytingum, yfirumsjón með
heilbrigðiseftirliti við framleiðslu mjólkur. Héraðsdýralæknar hafa árlegt
eftirlit með heilbrigði, hirðingu, aðbúnaði og aðstöðu nautgripa á búum þar sem
framleidd er mjólk til sölu.
Matvælastofnun hefur
eftirlit með mjólkurframleiðslu hjá framleiðanda og veitir framleiðsluleyfi,
sbr. reglugerð nr. 438/2002 um aðbúnað
nautgripa og eftirlit með framleiðslu mjólkur og annarra afurða þeirra með
síðari breytingum. Matvælastofnun hefur einnig eftirlit með töku sýna vegna
eftirlits með mjólkurgæðum hjá framleiðanda.
Heilbrigðisnefndir,
undir yfirumsjón Matvælastofnunar, hafa eftirlit með flutningi mjólkur eftir að
henni hefur verið dælt á flutningageyma hjá framleiðanda og framleiðslu í
mjólkurstöð sbr. reglugerð nr. 919/2002 um mjólk og mjólkurvörur með síðari breytingum. Framleiðsla og
dreifing á mjólk og mjólkurvörum skal einnig uppfylla ákvæði reglugerðar nr.
522/1994 um matvælaeftirlit
og hollustuhætti við framleiðslu og dreifingu matvæla, með síðari breytingum, og
ákvæði annarra reglna sem ná til þessara matvæla.
Matvælastofnun skal hafa
aðgang að mjólkurstöð, niðurstöðum eftirlits á hverjum tíma og öðrum þeim gögnum
er varða heilnæmi mjólkur og mjólkurvara. Matvælastofnun framkvæmir árlega úttekt á mjólkurstöðvum vegna útflutningsleyfa þeirra
Afla skal starfsleyfis
heilbrigðisnefndar áður en mjólkurstöð og tilheyrandi búnaður er tekinn í
notkun. Hlutaðeigandi heilbrigðisnefnd skal hafa samráð við Matvælastofnun um
veitingu starfsleyfa fyrir mjólkurstöðvar.