Fara á forsíðu
AUKEFNI - SÆTUEFNI
Sætuefni hafa númer frá E 950 og þar yfir. Til fróðleiks má geta þess að sætuefni með númer frá E 950-959 hafa mikinn sætustyrk og gefa enga eða mjög litla orku í matvælum. Ein undantekning er E 953 sem ásamt E 420, E 421 og sætuefnum með númer E 965-967 mynda flokk efna sem oft er kallaður sykuralkóhólar. Þau efni hafa minni sætustyrk en sykur og gefa einnig orku, en eru notuð í stað sykurs í sykurlaust tyggigúmmí, sælgætistöflur og aðrar vörur til að draga úr hættu á tannskemmdum.

Ítarefni

    Upplýsingasíða um aspartam

Upplýsingar

Fróðleikur frá A-Ö

A Á B C D E É F
G H I Í J K L M
N O Ó P R S T U
Ú V X Y Ý Þ Æ Ö

Spurt og Svarað