Fara á forsíðu
AUKEFNI - ROTVARNAREFNI
Rotvarnarefni eru notuð til að bæta geymsluþol matvæla þar sem aðrar aðferðir eins og kæling duga ekki til. Salt hefur lengi verið notað til að auka geymsluþol og sykur er notaður í sama tilgangi, en þessi efni teljast til hráefna í matvælum og eru notuð í hlutfallslega miklu magni. Hitun og gerilsneyðing eru aðferðir sem notaðar eru til að auka geymsluþol matvæla eins og mjólkurafurða, en þessum aðferðum er hægt að beita á ýmsar aðrar vörutegundir. Aðrar þekktar geymsluaðferðir eru súrsun, reyking og þurrkun matvæla, en þær hafa minna vægi í dag en áður var. Rotvarnarefni þarf ekki að nota í miklu magni og þessi efni hafa ekki áhrif á bragð eða útlit matvæla. Notkun þeirra hefur því aukist með meiri fjölbreytni í matvælaframleiðslu og breyttum geymslu- og dreifingaraðferðum. Meðal rotvarnarefna sem geta valdið óþoli eru nokkur sem algengt er að finna í matvælum og má þar nefna bensósýru og bensóöt (E210-219), sorbínsýru og sölt (E 200-203) og brennisteinsdisoxíð og súlfít (E220-228).

Upplýsingar

Fróðleikur frá A-Ö

A Á B C D E É F
G H I Í J K L M
N O Ó P R S T U
Ú V X Y Ý Þ Æ Ö

Spurt og Svarað