Fara á forsíðu
AUKEFNI - ALMENNT UM AUKEFNI
Aukefni eru efni sem aukið er í matvæli til þess að hafa áhrif á geymsluþol, lit, lykt, bragð eða aðra eiginleika matvæla. Í innihaldslýsingum sjáum við að efnin eru ýmist auðkennd með efnaheitum eða E númerum. E númerin eru bæði til að einfalda innihaldslýsingar og eiga að auðvelda fólki að varast tiltekin efni, s.s. ofnæmisvalda. Þegar aukefni eru notuð í vörur þarf einnig að greina frá tilganginum með notkun efnisins. Það er gert með því að setja flokksheiti á undan efnaheitinu eða E númerinu. Dæmi: Rotvarnarefni: E 202, litarefni: E 110, eða rotvarnarefni: natríumbensóat.

Sumir sjá aukefni sem hið mesta eitur. Aukefni fá hins vegar ekki E fyrir framan númer sitt fyrr en eftir mikla umfjöllun og að Matvælaöryggisstofnun Evrópu (EFSA) hefur metið þau og viðurkennt (áður vísindanefnd Evrópusambandsins um matvæli (SCF)). Bókstafurinn E stendur fyrir Evrópu, númerin eru hinsvegar alþjóðleg. Aukefni í matvæli eru heimiluð á evrópskum vettvangi fyrir öll aðildarríki ESB og EFTA ríkin þrjú, Ísland, Lichtenstein og Noreg. Það er gert til að einfalda viðskipti milli landa. Notkun aukefna í Evrópu er endurskoðuð hvenær sem rökstuddur grunur kemur upp um óæskileg áhrif þeirra á neytendur.

Mikill munur er á einföldum lista yfir númer aukefna og aukefnalista sem segir til um í hvaða matvörur og í hvaða magni leyfilegt er að nota aukefni. Í aukefnalista með reglugerð 285/2002 um aukefni er matvælum skipt upp í 16 flokka og hver hefur nokkra undirflokka. Undir hverjum flokk eru svo listuð þau aukefni sem heimilt er að nota í þann matvælaflokk. Aukefnalistinn er svokallaður jákvæður listi, svo þau efni sem ekki eru á listanum eru ekki leyfð í þeim matvælaflokki. Sá aukefnalisti sem gildir nú er að finna í reglugerð 500/2005.

Ítarefni:

    Reglugerðir um aukefni 
            - pistill um nýja aukefnareglugerð nr. 978/2011 (EB 1333/2008)

    Leiðbeiningar með reglugerð nr. 285/2002 um aukefni í matvælum

    Aukefni á vef framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins
 
    Matvælaöryggisstofnun Evrópu – EFSA

    Aukefni í matvælum - texti aukefnabæklings

    E númer

         - listi yfir aukefni, ásamt flokksheitum 
         
- heiti litarefna á ýmsum málum og E númer þeirra 

   JECFA (Joint FAO/WHO Expert Committee on Food Additives)

         - Um JECFA
         - Gagnagrunnur um aukefni 









Upplýsingar

Fróðleikur frá A-Ö

A Á B C D E É F
G H I Í J K L M
N O Ó P R S T U
Ú V X Y Ý Þ Æ Ö

Spurt og Svarað