Til eru nokkur hundruð tegundir sveppaeiturefna (mycotoxins) en tvö þeirra eru algeng vandamál í matvælum og eru það eiturefnin aflatoxín og okratoxín A. Erfitt getur reynst að koma í veg fyrir myndun eiturefnanna í kornvörum og öðrum vörum þegar hagstæð skilyrði eru í umhverfinu eins og hátt hita- og rakastig.
Margir myglusveppir framleiða eiturefni í matvælum sem þola hitun og jafnvel suðu. Verkun eiturefnanna eru margvísleg og geta þau bæði valdið bráðum eitrunaáhrifum og haft langtímaáhrif á ýmis líffærakerfi. Sum sveppaeitur hafa áhrif á ónæmiskerfið, önnur geta haft ýmis varanleg skaðleg áhrif, og enn önnur geta haft stökkbreytandi og/eða krabbameinsvaldandi áhrif í ákveðnum móttækilegum tegundum dýra og geta einnig valdið bráðum eða krónískum sjúkdómum í heimilisdýrum, búfé og fólki. Í mörgum tilfellum eru áhrif sveppaeiturs á heilsu manna ekki þekkt og er ekki vitað hve stór skammtur eiturs hefur áhrif hana.
Aflatoxín
Aflatoxín er hópur efna sem eru lík í byggingu og eru þau framleidd af myglusveppunum Aspergillus flavus, A. nomius og A. parasiticus. Þessir sveppir vaxa við ákveðið hitastig og rakastig í matvælum og fóðri. Algengustu matvæli sem aflatoxin myndast í eru kornvörur, hnetur og fíkjur. Aflatoxin hefur einnig greinst í mjólk dýra sem neytt hafa mengaðs fóðurs.
Helstu tegundir aflatoxína eru aflatoxín B1, B2, G1 og G2. Venjulega greinast þau saman í matvælum og fóðri en í mismiklum hlutföllum þó. Aflatoxín B1 er venjulega í mestu magni og er það mest eitrað allra aflatoxína.
Rannsóknir hafa sýnt fram á að aflatoxín hafa krabbameinsvaldandi áhrif í tilraunadýrum. Faraldursfræðilegar rannsóknir hafa einnig gefið til kynna að sterkar líkur eru taldar á því að aflatoxín hafi áhrif á myndun krabbameins í lifur hjá mönnum.
Hámarksgildi fyrir aflatoxín
Hámarksgildi fyrir aflatoxín skv. reglugerð nr. 502/2003 og 662/2003 um gildistöku tiltekinna gerða Evrópusambandsins um aðskotaefni í matvælum með síðari breytingum eru eftirfarandi:
|
Afurð
|
Hámarksviðmiðunargildi
(míkróg/kg)
|
|
B1
|
B1+B2+G1+G2
|
M1
|
|
Jarðhnetur,
hnetur og þurrkaðir ávextir
|
|
Jarðhnetur, hnetur og þurrkaðir ávextir og unnar
afurðir úr þeim, ætlað beint til manneldis eða sem innihaldsefni í matvælum
|
2
|
4
|
-
|
|
Jarðhnetur sem flokka á eða meðhöndla með öðrum
aflrænum aðferðum áður en þær eru notaðar til manneldis eða sem innihaldsefni
í matvælum
|
8
|
15
|
-
|
|
Hnetur og þurrkaðir ávextir sem flokka á eða
meðhöndla með öðrum aðferðum áður en þær eru notaðar til manneldis eða sem
innihaldsefni í matvælum
|
5
|
10
|
-
|
|
Korn
(þ.m.t. bókhveiti, fagopyrum sp.).
|
|
Korn (þ.m.t. bókhveiti, Fagopyrum sp.) og unnar
afurðir úr því sem nota á beint til manneldis eða sem innihaldsefni í
matvælum.
|
2
|
4
|
-
|
|
Korn (þ.m.t. bókhveiti, Fagopyrum sp.), sem á að
flokka eða meðhöndla með öðrum aflrænum aðferðum, áður en þess er neytt eða
það er notað sem innihalsefni í matvælum
|
2
|
4
|
-
|
|
Mjólk (hrámjólk, mjólk til framleiðslu á afurðum,
að stofni til úr mjólk, og hitameðhöndluð mjólk.
|
-
|
-
|
0,05
|
|
Maís sem flokka á eða meðhöndla með öðrum
aflrænum aðferðum áður en hann er notaður til manneldis eða sem innihaldsefni
í matvælum
|
5
|
10
|
-
|
|
Krydd
|
|
Eftirfarandi
kryddtegundir:
- Capsicum
spp. (þurrkaðir ávextir þess, heilir eða malaðir, þ.m.t. eldpaprika (chilli),
eldpaprikuduft, kajenpipar og paprika)
- Piper spp.
(ávextir þess, þ.m.t. hvítur og svartur pipar)
- Myristica
fragrans (múskat)
- Zingiber
officinale (engifer)
- Curcuma
longa (túrmerik
|
5
|
10
|
-
|
Okratoxín A
Okratoxín A myndast í fjölmörgum tegundum myglusveppa af ættkvíslunum Aspergillus og Penicillium. Dæmi um matvæli sem Okratoxín A hefur greinst í eru korn, belgjurtir, kaffibaunir og kakó. Sveppirnir ná að mynda eiturefnið annað hvort á plöntunum lifandi eða í geymslu. Okratoxín A hefur einnig greinst í lifur, nýrum og blóði spendýra sem neytt hafa mengaðs fóðurs.
Rannsóknir á dýrum hafa sýnt fram á að Okratoxín A minnkar ónæmisviðbrögð, getur haft varanleg skaðleg áhrif á heilsu og er mjög líklega krabbameinsvaldandi.
Hámarksgildi fyrir okratoxín A
Hámarksgildi fyrir okratoxín A skv. reglugerð nr. 502/2003 um gildistöku tiltekinna gerða Evrópusambandsins um aðskotaefni í matvælum eru eftirfarandi:
|
Afurð
|
Hámarksviðmiðunargildi
(míkróg/kg eða ppb)
|
|
Óunnið korn (þ.mt. óunnin hrísgrjón og bókhveiti)
|
5
|
|
Allar afurðir, unnar úr korni (þ.m.t. unnar
kornafurðir og korn sem er ætlað beint til manneldis)
|
3
|
|
Þurrkuð vínaldin (rifsber og sólber, rúsínur og
kúrennur
|
10
|
|
Grænt og brennt kaffi og kaffiafurðir, vín, bjór,
þrúgusafi, kakó og kakóafurðir og krydd
|
-
|
Eftirlit með sveppaeitri í matvælum
Daglega berst Matvælastofnunn fjöldi viðvarana frá löndum innan EES svæðisins gegnum viðvörunarkerfið RASFF (Rapid Alert System for Food). Kerfið byggist á vöktun í löndum EES svæðisins, yfirvöld taka sýni af ýmsum vörum og dreifa upplýsingunum til aðildarríkja ef eiturefnainnihald er yfir leyfilegum mörkum. Stór hluti tilkynninga varðar sveppaeitur í matvælum. Þegar ástæða þykir til eru vörur frá ákveðnum löndum stöðvaðar í tolli og innflutningur óheimilaður í öllum löndum EES, nema innflytjendur geti framvísað viðurkenndum vottorðum með niðurstöðum mælinga.