Fara á forsíðu
PLÖNTUR - SJÚKDÓMAR OG MEINDÝR

Sigurgeir Ólafsson plöntusjúkdómafræðingur Matvælastofnunar annast eftirlit með innflutningi og útflutningi plantna og útrýmingar- og aðhaldsaðgerðir gegn tilteknum skaðvöldum. Af skaðvöldum sem reynt er að takmarka útbreiðslu á má nefna hringrot og hnúðorm í kartöflurækt og blómakögurvængju og gangaflugu í gróðurhúsum.

Halldór Sverrisson, plöntusjúkdómafræðingur, sem áður tilheyrði plöntusjúkdómadeild er nú sérfræðingur á jarðræktarsviði, sinnir almennum rannsóknum á plöntusjúkdómum og hefur m.a. sérhæft sig í trjásjúkdómum og unnið með Rannsóknastöð Skógræktar ríkisins á Mógilsá, þar sem Guðmundur Halldórsson annast rannsóknir á meindýrum í trjám og runnum.

Til Halldórs skal leita með þjónusturannsóknir á sýktum plöntum. Á jarðræktarsviði starfar einnig Jón Guðmundsson sem er sérfræðingur í illgresi og illgresiseyðingu. Bjarni Guðleifsson á búrekstrarsviði á Möðruvöllum í Hörgárdal er sérfræðingur í jarðvegslífverum og kali túna.

KARTÖFLUR

Hinn stöðugi innflutningur á kartöflum, sem átt hefur sér stað síðan á 18. öld, hefur haft það í för með sér að við höfum fengið hingað til lands flesta þá skaðvalda sem ásækja kartöflur í N-Evrópu. Eftirtaldir skaðvaldar/skemmdir hafa fundist hér í ræktun og geymslu:

  • Vaxtartruflanir
  • Hrukkutíglaveiki (X +Y-veira)
  • Hringrot (Clavibacter michiganensis subsp. sepedonicus)
  • Stöngulsýki (Erwinia carotovorum var. atrosepticum)
  • Votrotnun (Ýmsar bakteríur)
  • Flatkláði (Streptomyces scabies)
  • Vörtukláði (Spongospora subterranea)
  • Blöðrukláði (Polyscytalum pustulans)
  • Silfurkláði (Helminthosporium solani)
  • Rótarflókasveppur (Rhizoctonia solani)
  • Hnúðbikarsveppur (Sclerotinia sclerotiorum)
  • Kartöflumygla (Phytophthora infestans)
  • Phoma-rotnun (Phoma exigua var. foveata)
  • Fusarium-rotnun (Fusarium-tegundir)
  • Kranssveppur (Verticillium albo-atrum)
  • Blettaveiki (Alternaria solani)
  • Kartöfluhnúðormur (Globodera rostochiensis og G. pallida)
  • Kulda- og frostskemmdir
  • Meindýranag
  • Ýmsir aðrir skaðvaldar
TRÉ OG RUNNAR
Ryðsveppir á gljávíði og ösp - Grein Halldórs Sverrissonar sem birtist í Morgunblaðinu 19.3.2000

Ryðsveppir á víði og ösp - Höfundur: Halldór Sverrisson

VARNAREFNI
Eiturefnanámskeið

Skráð varnarefni - Yfirlit yfir plöntulyf, illgresiseyða (örgresisefni), stýriefni og útrýmingarefni , er flytja má til landsins, selja eða nota, og skrá yfir framleiðendur og umboðsmenn, ásamt samheitaskrá, nr. 19/2003 L

Eiturefni á undanþágu - Listi yfir tímabundnar undanþágur til innflutnings og sölu óskráðra varnarefna,

Upplýsingar

Fróðleikur frá A-Ö

A Á B C D E É F
G H I Í J K L M
N O Ó P R S T U
Ú V X Y Ý Þ Æ Ö

Spurt og Svarað