MATVÆLI - ÚTFLUTNINGUR Á KJÖTI TIL RÚSSLANDS
Þann 1.
júlí 2010 fengu fyrstu íslensku sláturhúsin leyfi til að flytja kinda- og hrosskjöt
til Rússlands.
Rússenska matvælastofnunin, Rosselkhoznadzor, hefur birt á
heimasíðu sinni lista
yfir fyrirtæki sem hafa útflutningsleyfi á Rússlandsmarkað.
Rússnesk yfirvöld leggja mikla áherslu á að
rússneskar reglur varðandi slátrun og meðferð sláturafurða séu
aðgengilegar á skiljanlegu máli fyrir stjórnendur og eftirlitsmenn í
hverju sláturhúsi sem hefur útflutningsleyfi fyrir kjöt á
Rússlandsmarkað.
Á heimasíðu Evrópusambandsins má finna á ensku nokkrar helstu rússneskar
reglur varðandi slátrun og meðferð sláturafurða.
Stjórnendur þeirra sláturhúsa sem eru á
lista vegna slátrunar á Rússlandsmarkað og viðkomandi héraðs- og
eftirlitsdýralæknar þurfa að kynna sér þessar reglur og framfylgja þeim.
Sláturleyfishafar
þurfa að útbúa skjal í innra eftirlitskerfi sláturhússins þar sem lýst
er hvernig sláturhúsið hyggst uppfylla sérstakar rússneskar kröfur,
t.d. hvernig tryggt sé að einungis kjöt sem ætlað er á Rússlandsmarkað
fari þangað. Í því samhengi skal sérstaklega bent á kröfur varðandi
tríkínurannsóknir á hrossakjöti og rannsóknir vegna salmonellu og öðrum
örverum á kjötskrokkum.
Eftirlitsdýralæknarnir þurfa að hafa skýrt verklag um hvernig
haga skal eftirliti með að unnið sé eftir þessum reglum.
Rússneskir eftirlitsmenn geta
komið í eftirlitsheimsókn hvenær sem er og þá þarf að vera unnt að sýna
fram á að stjórnendur sláturhúsa og eftirlitsaðilar hafi kynnt sér
reglurnar og vinni eftir þeim. Í aðildarlöndum Evrópusambandsins hafa
sláturhús verið tekin út af lista ef þessar kröfur hafa ekki verið
uppfylltar.
14.07.10
Ítarefni
Útflutningur á kjöti til Rússlands heimilaður
Samið
við rússnesk stjórnvöld um útflutning á kjöti og fiski