Alltaf er nokkuð um það að fluttar
séu inn notaðar landbúnaðarvélar og tæki
en innflutningur þessi er bannaður, skv. 10. grein laga nr.
25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim
sbr. breytingu með 26. gr. laga nr. 87/1995, og 3. grein reglugerðar
nr. 509/2004 j. liðar, um varnir gegn því að dýrasjúkdómar
og sýktar afurðir berist til landsins. Bann þetta er
því ekkert nýtt af nálinni. Innflytjendur geta
sótt um undanþágu frá innflutningsbanninu til
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins skv. 8. gr. reglugerðar
nr. 509/2004, sem þá skal afla umsagnar yfirdýralæknis
hverju sinni. Skilyrði þau sem þá eru sett fram
geta verið mismunandi eftir því um hvers konar vél
er að ræða, hvaðan hún kemur o.s.frv.
Verklagsreglur varðandi umsóknir sem embættinu berast um innflutning
notaðra landbúnaðartækja eru skýrar
- tækið skal vera þrifið vandlega
og síðan sótthreinsað með viðurkenndum
sótthreinsiefnum í útflutningslandinu
- þrif og sótthreinsun skulu vottuð
af opinberum dýralæknayfirvöldum útflutningslandsins
- tækið skal flutt beint til Reykjavíkur
eða Seyðisfjarðar til tollafgreiðslu
- tækið skal skoðað af embætti
yfirdýralæknis (viðkomandi héraðsdýralækni)
fyrir tollafgreiðslu
- séu þrif og sótthreinsun ekki
fullnægjandi skal endurtaka verkið áður en viðkomandi
tæki hlýtur tollafgreiðslu (þetta er ekki hægt
á Seyðisfirði!)
- við innflutning á gripaflutningavögnum,
hestakerrum o.þ.h. skal fjarlægja allt timbur og önnur
þau efni sem ekki verða þvegin svo viðunandi sé
- einstaka sinnum er þess krafist að fulltrúi
yfirdýralæknis taki þrif og hreinsun út í
útflutningslandinu áður en útskipun fer fram,
þetta á t.d. við um gripaflutningabifreiðar og
-vagna vegna þess hve flókin og erfið slík farartæki
eru í þrifum
Það er alfarið á ábyrgð
innflytjanda að kynna sér hvaða reglur gilda og sækja
um innflutningsleyfi í samræmi við ofangreind lög
og reglugerðir. Vél eða tæki sem flutt er inn án
leyfis landbúnaðarráðuneytisins er ólöglegt
og innflutningurinn skýrt lögbrot.