Fóðurvörur sem framleiddar eru eingöngu til eigin nota að mestu úr heimafengnu hráefni eru ekki háðar eftirliti Matvælastofnunar.
Viðskipti með gróffóður sem hefur ekki eða hefur í litlum mæli fengið tæknilega meðhöndlun, t.d. hey, unninn og óunninn hálmur, rótarávextir, kartöflur og grænfóður, eru ekki háð eftirliti Matvælastofnunar að öðru leyti en því að flutningur á heyi, heykögglum og hálmi milli bæja innan riðusýktra svæða og áhættusvæða er háður leyfi héraðsdýralæknis.