LEIÐBEININGAR - INNFLUTNINGUR OG SALA
Áður en innflutningur eða sala fóðurtegundar hefst skal óska eftir skráningu fyrirtækisins á sérstöku eyðublaði og fóðursins á sérstöku eyðublaði hjá Matvælastofnun. Hverri fóðurtegund þarf að fylgja eyðublað með umsókn um skráningu og fylgigögn með númerum og nafni.
Með umsóknareyðublaðinu þurfa að fylgja eftirtalin gögn, á íslensku, öðru norrænu máli eða ensku:
-
Upplýsingar um uppruna fóðursins og framleiðanda ásamt skráningarnúmeri fyrirtækisins innan EES ásamt notkunarleiðbeiningum
-
Upplýsingar um
hráefnainnihald í prósentum, ef um er að ræða fóður fyrir dýr til
manneldis, en annars í röð eftir fallandi þunga hráefna
-
Innihaldi fóðrið forblöndur eða viss aukefni þá þarf að gefa upp magn þeirra í fóðrinu
-
Efnagreining á fóðrinu
-
Merkja á saman gögnin
(númer og nafn á fylgiblaði og innihaldslýsingu) sem send eru til
skráningar, endurnýjunar- eða viðbótarskráningar
Við innflutning á fóðri þarf að senda Matvælastofnun tilkynningu á sérstöku eyðublaði, “Tilkynning um innflutning á dýrafóðri frá ríkjum innan eða utan EES " og afrit af vörureikningi. Innihaldi fóðrið dýraafurðir þarf að fylgja tilkynningunni viðskiptayfirlýsing, “Commercial document”, komi fóðrið frá löndum innan EES, en opinbert heilbrigðisvottorði sem ESB viðurkennir, komi fóðrið frá ríkjum utan EES. Gögnin þurfa að berast Matvælastofnun um leið og sendingarnúmer liggur fyrir. Öllu fóðri (öðru en hreinu fóðurefni) sem ætlað er fyrir dýr til manneldis, þarf að fylgja innihaldslýsing og notkunarleiðeiningar á íslensku. Merkja skal fóðrið skv. reglugerð um eftirlit með fóðri nr. 340/2001. Sjá viðauka 7, 8 og 9 um merkingu og skráningu fóðurs, merking (hreinna) fóðurefna og merking fóðurblandna og einstakra fóðurflokka.Merkja þarf saman öll fylgigögn fóðursins og gildir það sama um skráningu á gæludýrafóðri. Við viðbótar-eða endurskráningu þarf að gefa upp skráð fóðurnúmer og fóðurheiti skv.skráningu Matvælastofnunar auk þess sem ný fylgigögn eiga að vera merkt með nafni og vörunúmeri.Athugið að fylgigögnin sem send eru til skráningar og geymslu hjá Matvælastofnun þurfa að vera vel læsileg.