LEIÐBEININGAR - FÓÐURVERKSMIÐJUR
Fyrirtæki eða einstaklingar sem
hyggjast framleiða fóður skulu óska eftir skráningu hjá Matvælastofnun á
sérstöku
eyðublaði,
áður en framleiðsla hefst.
Fóður eru afurðir úr jurta- eða
dýraríkinu eins og þær koma frá náttúrunni, nýjar eða rotvarðar, fullunnar eða
unnar að hluta og lífræn eða ólífræn efni, notuð ein sér eða í blöndum, með eða
án aukefna sem gefin eru dýrum. Í stuttu
máli er fóður allt sem fer upp í munn á dýrum, nema lyf.
Sækja þarf um skráningu hverrar
fóðurtegundar til Matvælastofnunar á sérstöku
eyðublaði. Með umsókninni þar að fylgja innihaldslýsing
fyrir vöruna þar sem fram kemur hráefnainnihald í prósentum og innihald aukefna
ásamt efnagreiningu á fóðrinu sé það ætlað dýrum til manneldis. Sömu upplýsingar þurfa að fylgja fóðri fyrir
dýr sem ekki eru ætluð til manneldis (gæludýr, loðdýr) nema hráefnainnihald
þarf ekki að vera í prósentum heldur raðað eftir minnkandi magni efnanna.
Þegar umsókn um skráningu
fyrirtækis hefur borist tekur Matvælastofnun út aðstöðu og áætlun um innra
gæðaeftirlit fyrirtækisins. Fullnægi
fyrirtækið kröfum sem gerðar eru í reglugerðum er fyrirtækið skráð og fær
sérstakt skráningarnúmer.