Fóðurfyrirtækjum sem þegar eru skráð hjá Mast hefur verið skipt í 5 áhættuflokka. Í töflunni eru jafnframt settar inn þær breytingar sem líklegar eru við gildistöku nýrra reglugerða um öryggi og heilbrigði fóðurs (innan sviga og skáletrað).
1.
|
Mjög lítil hætta
|
Innflutningur og/eða framleiðsla fóðurs fyrir gæludýr.
(Væntanlegt: Flutningur á fyrirfram pökkuðu fóðri)
|
2.
|
Lítil hætta
|
Innflutningur tilbúins fóðurs fyrir dýr til manneldis.
Framleiðsla próteinsnauðs hráefnis eða loðdýrafóðurs.
(Væntanlegt: Framleiðsla gróffóðurs fyrir dýr til manneldis og fóðrun þeirra, þ.e. hefðbundinn búskapur.)
|
3.
|
Nokkur hætta
|
Bú með eigin fóðurframleiðslu með aukefnum eða
forblöndum og innflutningur aukefna eða forblandna.
(Væntanlegt: Flutningur á fóðri í lausu) |
4.
|
Hætta
|
Framleiðsla og dreifing fóðurs með aukefnum eða
forblöndum
aukefna (án hníslalyfja) fyrir dýr til manneldis og framleiðsla og/eða
innflutningur próteinríkra hráefna til fóðurgerðar.
(Væntanlegt: Fóðrun svína og alifugla) |
5.
|
Mikil hætta
|
Framleiðsla og dreifing fóðurs með aukefnum, þ.m.t.
hníslalyfjum, fyrir dýr til manneldis og innflutningur próteinríkra hráefna til fóðurgerðar. |
Fjöldi fyrirtækja í hverjum flokki er mjög misjafn. Í 5. áhættuflokki, mikil hætta, eru aðeins tvö fyrirtæki en í 2. áhættuflokki, lítil hætta, eru u.þ.b. 80 fyrirtæki.
Í starfi fóðureftirlitsins hefur fram að þessu verið lögð áhersla á eftirlit með 3. 4. og 5. áhættuflokki hvað varðar sannprófun innra eftirlits og sýnatöku. Eftirlit með 1. og 2. áhættuflokki hefur fyrst og fremst verið skjalaeftirlit við skráningu fóðurs og innflutning.