Matvælastofnun sér um eftirlit með fóðri samkvæmt lögum nr. 22 frá 29. mars 1994, um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru og reglugerð nr. 340 frá 30. apríl 2001, um eftirlit með fóðri. Markmið eftirlitsins er að tryggja bændum og öðrum notendum svo sem kostur er fullnægjandi vöru í samræmi við vörulýsingar og kröfur til landbúnaðarafurða um hollustuhætti. Eftirlitið skal einnig tryggja svo sem kostur er gæði og rétta meðhöndlun fóðurs svo og að það séu ekki skaðlegt dýrum, mönnum eða umhverfi. Undir þessum flokki er að finna eftirfarandi efni:
- Starfsleyfi: Gróffóður, hráefni, fóðurblöndur, kaup og sala, gæludýra- og loðdýrafóður
- Eftirlit: Markmið, áhættumat, áætlun, efnagreining, skýrslur
- Efnainnihald: Aukefni, erfðabreytt, fóðurbætir, óæskileg efni, sérfóður
- Gæðastjórnun: Góðir framleiðsluhættir, GÁMES
- Leiðbeiningar: Gróffóður, fóðurblöndun, fóðurverksmiðjur, fóðursala, hestahald