Fara á forsíðu
SJÚKDÓMAR - SVEPPASÝKINGAR Í HROSSUM
Húðsýkingar í hrossum af völdum sveppa hafa verið landlægar hér á landi í a.m.k. 15 ár. Algengasta sveppategundin er Trychophyton mentagrophytes en nokkrar aðrar tegundir, s.s. Microsporum canis og Microsporum gypseum, hafa einnig greinst í hrossum hér á landi. Sveppasýkingar smitast með búnaði s.s. beislum, hnökkum, kömbum og yfirbreiðslum auk þess að smitast milli hesta við snertingu. Menn geta auðveldlega borið smitið á milli hesta með berum höndum, hönskum og öðrum fatnaði. Hafa ber í huga að allt að tvær vikur geta liðið frá smiti þar til einkenni koma fram. Einkennin eru kláði og hringlaga hárlausir blettir, gjarnan í kringum höfuðið þó þeir geti verið hvar sem er á líkamanum. Bakreríusýkingar geta náð sér á strik í blettunum og valdið frekari eymslum og óþrifum. Þó svo yfirleitt sé ekki um alvarlegar sýkingar að ræða eru þær hvimleiðar og geta leitt til óþæginda, sérstaklega ef blettirnir eru undir reiðverum. Þá draga þær úr náttúrulegum vörnum útiugangshrossa gegn kulda og vosbúð.

Yfirleitt er auðvelt að meðhöndla þessar sýkingar en til þess að ná árangri þarf auk þess að hreinsa vel og sótthreinsa allan búnað sem notaður hefur verið á viðkomandi hross. Sveppagró geta lifað lengi í hesthúsum og því er afar erfitt að útrýma sveppasýkingum. Svo virðist sem hross myndi smám saman mótstöðu gegn framangreindum sveppasýkingum og því eru tiltölulega fá hross með einkenni á hverjum tíma.

Nú hefur vaknað grunur um að sveppategundin Trychophyton verrucosum sem veldur hrinskyrfi, hafi sýkt hross hér á landi. Þessi tegund nær sér helst á strik í nautgripum en getur borist í hross. Einkennin verða ekki greind frá öðrum sveppasýkingum og ekki er líklegt að þessi sveppur verði hrossum skeinuhættari en þeir sem áður hafa greinst. Þar sem um er að ræða sveppategund sem ekki hefur verið talin landlæg hér á landi og sem getur komið harðar niður á öðrum búfjártegundum, er mikilvægt að bregðast skjótt við og meðhöndla þessar sýkingar um leið og þær greinast og hreinsa vel og sótthreinsa allan búnað sem getur verið sýktur.

Þar sem allar framangreindar sveppategundir geta einnig borist í menn eru hestamenn hvattir til að gæta hreinlætis og nota hanska við meðhöndlun sýktra dýra og hreinsun búnaðar.

Dýralæknar um land allt veita nánari upplýsingar um meðhöndlanir.

Mars 2008

Upplýsingar

Fróðleikur frá A-Ö

A Á B C D E É F
G H I Í J K L M
N O Ó P R S T U
Ú V X Y Ý Þ Æ Ö

Spurt og Svarað