|
|
Ítarlegar rannsóknir hafa nú leitt í ljós að smitandi hósti í
hrossum stafar fyrst og fremst af bakteríusýkingu (Streptococcus
Zooepidemicus) í efri hluta öndunar-færanna, barka og jafnvel berkjum.
Allur hrossastofninn hefur reynst næmur fyrir sýkingunni og ætla má að
flest hross landsins hafi nú þegar smitast. Komið hefur í ljós að hross
sem gengið hafa í gegnum veikina geta smitast á ný ef þau eru undir
miklu smitálagi, þ.e. í snertingu við veika hesta eða í mjög smituðu
umhverfi. Þetta bendir til að hrossin myndi ekki öll fullnægjandi ónæmi
gegn sýkingunni. Veikin mun því ekki ganga yfir í eitt skipti fyrir öll
eins og þekkt er með sumar veirusýkingar, s.s. hitasóttina sem gekk
yfir stofninn 1998. Við verðum þess í stað að læra að halda veikinni í
skefjum og lágmarka það tjón sem af henni hlýst.
|
Afar áríðandi er að
hrossin fari eins frísk og auðið er inn í haustið og veturinn. Eigendur
og umsjónarmenn hrossa þurfa að auka mjög eftirlit með hrossunum og þá
sérstaklega folöldum og tryggja þeim meðhöndlun ef þörf krefur.
Með öllum ráðum þarf að varna því að nýr
faraldur sjúkdómsins brjótist út þegar hross verða tekin á hús að nýju.
Veikir hestar (hóstandi og með litaðan hor)
viðhalda smitinu og helsta smitleiðin er snertismit frá hesti til
hests. Því er grundvallar atriði að hafa veika hesta aldrei innan um
fríska og halda þá helst í nokkurri fjarlægð. Ekki verður með öllu hægt
að komast hjá hættunni á óbeinu smiti en nú þegar veikum hestum fer
fækkandi og mótstaðan eykst hægt og sígandi, verður sú smitleið ekki
eins öflug og áður.
Helstu reglur:
Eins og áður hefur verið ítrekað, á að hreinsa og sótthreinsa
öll hesthús áður en þau verða tekin í notkun með haustinu eða næsta
vetur. Mikilvægt er að húsin hafi þornað vel áður en þau eru tekin í
notkun að nýju. Nauðsynlegt getur verið að endurtaka þrif og
sótthreinsun á húsum sem hreinsuð voru í vor ef þau hafa verið notuð í
sumar.
Almenna reglan er sú að taka ekki hesta á
hús nema þeir hafi verið einkennalausir í a.m.k. 30 daga og það sama
eigi við um öll hross sem þau hafa komist í snertingu við í þann tíma.
Ef taka þarf hesta inn vegna veikinda, s.s. hita eða annarra alvarlegra
einkenna, þarf að finna hús þar sem ekki er hætta á að önnur hross
smitist.
Þetta þýðir að menn verða að flokka hross í
hópa eftir einkennum og/eða hættunni á að þau beri með sér smit.
Æskilegt er að hafa hrossahópa á útigangi ekki of stóra og almennt séð
að hafa eins rúmt á hrossum og frekast er unnt.
Nú eru hryssur að tínast heim úr stóðhestagirðingum og verður að
líta á þær, folöldin og stóðhestana sem mögulega smitbera. Sama á við
um ferðahesta og aðra hesta sem hafa verið fluttir til og hugsanlega
komist í samneyti við veik hross eða verið í smituðu umhverfi. Þetta eru
dæmi um hópa sem halda ætti sér þar til komið hefur í ljós hvort veikir
hestar eru þar innanum. Sama á við um hross sem koma af fjalli í haust.
Hestar sem ætlunin er að selja, senda í tamningu eða þjálfun eða
flytja af öðrum orsökum milli staða, þurfa að hafa tilheyrt sama
einkennalausa hópnum í einn mánuð fyrir brottför til að draga úr líkum á
að þeir beri veikina með sér. Hesta sem nota á í fjallferðir/göngur eða
aðra haustbrúkun þarf nú þegar að halda með einkennalausum hestum til
að tryggja eins og auðið er að þeir verði tilbúnir til þeirra nota.
Verði vart við hósta eða graftarkennt nefrennsli í hrossum á
húsi ber að taka þau tafarlaust úr húsunum og koma þeim fyrir þar sem
þau smita ekki aðra hesta. Hver og einn eigandi þarf að huga að aðstöðu
fyrir veika hesta og sjá til þess að þeir hafi félagsskap af a.m.k. einu
öðru hrossi. Séu einkennin væg og hestarnir í góðu standi fer
væntanlega best um þá á útigangi við góðan aðbúnað, fóðrun og eftirlit.
Að öðrum kosti þarf að veita veikum hrossum húsaskjól þar sem ekki er
hætta á að önnur hross smitist. Gæta þarf ítrustu smitvarna við
gegningar á veikum hrossum.
Matvælastofnun
mun í samvinnu við Landssamband hestamannafélaga útfæra nánar smitvarnir
í hesthúsahverfum.
Hafa skal eftirfarandi atriði í huga í baráttunni gegn veikinni. Um er að ræða sýkingar í efri öndunarvegi sem lýsa
sér með nefrennsli (glæru í byrjun sem oft verður graftarkennt), hósta,
slappleika og í einhverjum tilfellum hita. Huga þarf að eftirfarandi:
1. Halda
smitálaginu á hrossin í lágmarki
-
Rýmka á hrossum og tryggja loftgæði
-
Hafa hross sem mest úti
-
Hreinsa og sótthreinsa
hesthús
2. Hvíla hross með einkenni veikinnar
-
Æskilegt er þó að hrossin
hafi tækifæri
til að hreyfa sig á eigin forsendum úti við
-
Hefja þjálfun að nýju mjög
varlega
|
|
3. Auka eftirlit með öllum hrossum og kalla til dýralækni ef þörf krefur
-
Hryssur, fylfullar og nýkastaðar
-
Folöld
-
Trippi
-
Reiðhestar
4. Sýningar og keppni
-
Aðeins má nota heilbrigð hross til sýninga og keppni
-
Aukið heilbrigðiseftirlit
5. Hestaferðir
-
Meta þarf heilbrigði hrossa vel áður en lagt er af stað í slíkar ferðir
-
Eigendur þurfa að vera undir það búnir að flytja hesta sem veikjast heim aftur
-
Ekki má ofbjóða kröftum og þreki hesta
6. Almennt
-
Tryggja öllum hrossum nægilegt fóður/beit, vatn og aðgang að steinefnum
-
Forðast snöggar fóðurbreytingar
-
Hindra ormasmit
-
Tryggja góðan aðbúnað
Almennar upplýsingar um smitvarnir vegna innflutnings má nálgast hér.
SMITANDI HÓSTI Í
HROSSUM
Inngangur
Dýralækni
hrossasjúkdóma hjá Matvælastofnun var tilkynnt um smitandi hósta í
hrossum á Hólum í Hjaltadal og tveim nágrannabæjum hinn 7. apríl sl.
Þeirri tilkynningu fylgdu upplýsingar um að veikindin hefðu varað í um
þrjár vikur og hugsanlega lengur. Öruggustu tilfellin voru hestar sem
komu til Hóla nokkru fyrir páska (um miðjan mars) og var veikin mjög
greinilega að breiðast út frá þeim. Við athugun kom í ljós að veikin var
á sama tíma komin á margar stórar tamningastöðvar á Suðurlandi, í
a.m.k. eitt hesthús í Reykjavík (smitið barst með hesti sem kom í húsið
7. mars) og annað í Keflavík. Allar þessar tamningastöðvar, þ.m.t.
Hólar, höfðu tengsl við tiltekna þjálfunarmiðstöð og höfðu tekið við
hestum þaðan fyrir eða um páska. Á þeirri þjálfunarmiðstöð var ekki að
hafa nákvæmar upplýsingar um hvenær fyrst hafði orðið vart við hesta með
einkenni veikinnar né hvernig hún hefði hugsanlega borist þangað. Innan
viku fréttist af hrossum með einkenni veikinnar í Borgarfirði og á
Egilsstöðum.
Varlega áætlað hafði smitið verið í gangi í 4 - 6
vikur þegar tilkynnt var um veikina, hugsanlega miklu lengur. Á þeim
tíma hafði fjöldinn allur af hrossum verðið fluttur til og frá þessum
tamningastöðvum og tekið þátt í sýningum og keppnum víðsvegar um landið.
Það var því ljóst frá byrjun að útbreiðsla veikinnar yrði ekki stöðvuð.
Í því ljósi var ákveðið að virkja ekki þá viðbragðsáætlun sem
til er fyrir alvarlega smitsjúkdóma í hrossum. Ljóst var frá upphafi
að hún myndi skila takmörkuðum árangri þar sem smitdreifingin var þegar
orðin mjög mikil. Einnig var talið að ekki væri um alvarlegan sjúkdóm
væri að ræða þar sem fyrstu einkenni hans eru ævinlega mjög væg. Þó
komið hafi í ljós að einkennin geti orðið alvarlegri og umfram allt
varað mun lengur veik en ætlað var í byrjun, hefur það mat ekki breyst.
Sjúmdómseinkenni
|
|
Greinilegasta einkennið
er þurr hósti sem menn verða oft fyrst varir við í reið. Samtímis eða
nokkru fyrr má í sumum tilfellum greina glært nefrennsli og slappleika.
Þegar frá líður fá mörg hrossanna mikinn, graftarkenndan hor og hósta þá
gjarnan meira og frísa. Þau sem fara verst út úr sýkingunni fá hita og
draga úr áti. Dæmi eru um hross, einkum ungviði, sem lagt hafa verulega
af. Við nánari skoðun með speglun komu í ljós vægar slímhúðarbreitingar í
efri hluta öndunarvegar þ.e. nefholi, koki, og barka (Helgi Sigurðsson
og Vilhjálmur Svansson 6. maí 2010). Einkennin vara alla jafna í 2 – 6
vikur og lengur í einhverjum tilfellum. Þá virðist nokkuð um að hrossum
slái niður. |
Faraldsfræði
Misjafnt er hversu langur tími líður frá því smit berst í hesthús þar til hestarnir fara að hósta, oftast þó um 2 – 4 vikur. Hross sem koma inn í mikið sýkt umhverfi fá einkenni eftir 1-2 vikur. Sjúkdómsferillinn virðist býsna líkur milli hesthúsa og er einkennandi að aðeins fáir hestar veikjast í byrjun og yfirleitt vægilega. Þá er eins og smitið magnist upp og um tveimur til þremur vikum síðar eru margir ef ekki allir hestarnir í húsinu farnir að hósta og jafnvel komnir með graftarkennt nefrennsli. Má ganga að því vísu að allir hestar sem á annað borð eru í smituðu umhverfi veikist þó einkennin geti verið misjafnlega mikil. Bendir það til að allur hrossastofninn sé næmur fyrir sýkingunni og því er líklega um nýtt smitefni að ræða hér á landi. Ekki liggur fyrir hversu lengi hross smita út frá sér eða hversu langur tími líður frá því veikin gengur yfir í hesthúsi þar til það verður smitfrítt. Meðfylgjandi mynd sýnir feril sjúkdómsins eins og hann kom fyrir í fyrstu hesthúsunum sem veikin greindist í.

Algengasta og greinilegasta smitleiðin er með smituðum eða veikum hrossum sem flutt eru milli húsa. Einnig berst hún með reiðverum og menn geta auðveldlega borið hann milli hesta ef smitvarna er ekki gætt. Veikin berst einnig í útigangshross bæði með framangreindum aðferðum auk þess sem sterkar vísbendingar eru um loftborið smit. Alla jafna fá útigangshross fremur væg sjúkdómseinkenni en alvarlegri einkenni geta komið upp þeirra á meðal líka.
Fullvíst má telja að smitið hafi verið komið á kreik í febrúar og kannski fyrr. Í byrjun apríl voru a.m.k. 15 - 20 tamningastöðvar staddar í þriðju viku þess sjúkdómsferils sem sýndur er á meðfylgjandi mynd og fleiri á leiðinni. Smitið virðist hafa breiðst hratt út en þar sem meðgöngutíminn er langur og við hann bætist sá tími sem kjölfarssýkingar eru að magnast upp, geta liðið allt að 4-5 vikur frá smiti þar til veikindin koma upp á yfirborðið. Ætla má að meirihluti reiðhesta á þéttbýlli stöðum landsins hafi verið búinn að taka smitið um mánaðarmótin apríl – maí og þá hafi faraldurinn sem slíkur náð hámarki. Eftirköst þess eru enn að koma í ljós. Mikið hefur borið á einkennum veikinnar allan maímánuð og líklegt er að svo verði áfram, eitthvað áfram fram á sumarið. Á flestum þeim tamningastöðvum og bæjum sem fengu veikina um eða uppúr páskum eru mörg hrossanna þó komin í fulla þjálfun aftur og hafa náð fyrra þreki. Það bendir eindregið til þess að þau nái fullum bata þó það geti tekið langan tíma.
Greiningar
Sýni voru tekin strax og tilkynningin barst, bæði blóðsýni (parað sermi, tvö sýni með 10 daga millibili) og stroksýni úr nefi og þau send til greiningar á Keldum og Dýralækningastofnun Svíþjóðar. Auk þess hafa sýni verið send veirudeildar Justus-Liebig-háskólans í Giessen Þýskalandi. Veirurannsóknir hafa hingað til ekki skilað árangri.
Prófað hefur verið fyrir öllum veirum sem vitað er til að leggist á öndunarfæri hrossa og hafa niðurstöður þeirra rannsókna allar verið neikvæðar. Þannig er búið að útiloka hestainflúensu (og raunar allar þekktar gerðir inflúensu), smitandi háls og lungnakvef/fósturlát/heilabólgu (hesta herpes týpa 1,EHV-1), smitandi æðabólgu (EAV), rhinoveirur 1, 2 og 3, hesta herpes týpurnar 4, 2 eða 5, reo veirur, parainflúensu og adenoveiru 1.
Enn er þó unnið að veirurannsóknum á þeim grundvelli að um sé að ræða óþekkta veiru í hrossum sem engin próf eru til fyrir og er verið að reyna að rækta veiruna. Út frá faraldsfræðinni og klínískum einkennum sem að framan eru rakin er talið líklegt að veirusýking sé frumorsökin og að hún veiki slímhúðina og opni fyrir öðrum sýkingum.
Bakteríuræktun hefur leitt í ljós að mikið er um sýkingar með Streptococcus Zooepidemicus sem er þekkt fyrir að koma í kjölfar veirusýkinga og má telja líklegt að hún sé að valda hinum alvarlegri einkennum veikinnar. Streptokokkar hafa ræktast úr svo gott sem öllum hestum sem hósta og öllum þeim sem eru með graftarkenndan hor en ekki úr þeim sem aðeins eru með glært hor og ekki úr einkennalausum hrossum. Bersýnilega hefur komið í ljós að bakterían smitast milli hesta með snertingu innan hesthúsa (Eggert Gunnarsson og Vilhjálmur Svansson 18.maí). Ekki er vitað hvort smitið getur borist með öðrum hætti en umhverfisaðstæður virðast hafa mikið að segja um hversu miklar og þrálatar þessar sýkingar verða. Nú er unnið að stofngreiningum á bakteríunni, m.a. til að kanna hvort um nýjan stofn í landinu geti verið að ræða.
Bakterían Streptococcus equi sem veldur hinni illvígu kverkeitlabólgu hefur hins vegar ekki greinst enda benda einkennin ekki til að um svo alvarlegan sjúkdóm sé að ræða.
Hvað er til ráða ?
Miklvægt er að fyrirbyggja að bakteríusmitið magnist upp í umhverfi hrossa og létta á smitálaginu eins og frekast er unnt. S. Zooepidemicus virðist magnast upp í hesthúsum og því er áríðandi að hafa hrossin eins mikið úti og í eins hreinu umhverfi og hægt er. Með því móti verður veikin alla jafna vægari en sjúkdómsferillinn því miður ekki endilega styttri. Hafa ber í huga að hross sem þegar hafa smitast alvarlega af bakteríunni þurfa ganga í gegnum sýkinguna hvort sem þau eru úti eða inni en minna smitálag minnkar líkurnar á að þeim slái niður. Hreinsa skal hesthús og sótthreinsa samkvæmt leiðbeiningum sem er að finna í ítarefninu hér að neðan.
Nauðsynlegt er að hvíla hesta um leið og vart verður við fyrstu einkenni sjúkdómsins. Það er hins vegar gott að þeir hreyfi sig á eigin forsendum úti og ef einkennin eru væg er óhætt að teyma þá aðeins en ekki svita. Þegar hestar eru orðnir einkennalausir og frísklegir að sjá er óhætt að prófa þá í rólegheitum. Ef knapar verða varir við slappleika eða hósta (umfram smá hreinsanir) verða menn að hvíla hestana lengur.
Auka þarf eftirlit með öllum hrossum. Hryssur komnar að köstun og nýkastaðar mega ekki við miklum skakkföllum og ungviðið, folöld og veturgömul trippi eru í áhættuhópi. Sérstaka gát þarf því að hafa á stóðhestagirðingum í sumar. Fylgjast þarf vel með heilsu hrossa sem sleppt hefur verið á beit með einkenni veikinnar. Mikilvægt er að hestar séu ekki notaðir til reiðar nema þeir séu frískir. Sérstaklega þarf að huga vel að heilbrigði ferðahesta, sýninga- og keppnishesta.
Ítarefni
Smitvarnir vegna innflutnings á reiðfatnaði og reiðtygum
Heilbrigði hrossa í fjallferðum og göngum
- 30.08.10
Rjúfum smitleiðir smitandi hósta í hrossum
- 19.08.10
Útflutningur hrossa hefst á ný 15. september - 13.08.10
Eyðublað - Yfirlýsing um heimaeinangrun hrossa vegna smitandi hósta
Hósti í folöldum krefst aukins eftirlits - 12.08.10
Smitandi hósti í hrossum - stöðumat júlí 2010 - 21.07.10
Smitandi
hósti í hrossum ekki talinn af völdum herpessýkinga - 21.06.10
Styrkur til rannsókna á smitandi hósta í hrossum - 16.06.10
Smitandi hósti í hrossum – stöðumat júní 2010 - 04.06.10
Leiðbeiningar um þrif og sótthreinsun á hesthúsum - 02.06.10
Leiðbeiningar
um þrif og sótthreinsun á hestakerrum og hestaflutningabílum - 02.06.10
Getur fólk smitast af hestapestinni? - 02.06.10
Bakteríusýking helsti orsakavaldurinn - 27.05.10
Forsendur fyrir áframhaldandi undirbúningi landsmóts - 24.05.10
Smitandi
hósti í hrossum – stöðumat 20. maí
Hestar fá líka kvef - grein dýralæknis hrossasjúkdóma í Morgunblaðinu 10.05.10
Viðtal við dýralækni hrossasjúkdóma hjá MAST á vef Landsmóts hestamanna - 10.05.10
Tilkynning frá framkvæmdanefnd landsmóts hestamanna - 07.05.10
Viðbrögð við smitandi hósta í hrossum - 07.05.10
Smitandi hósti í hrossum - stöðumat 04.05.10
Hestasýningar raskast - grein í Morgunblaðinu 04.05.10
Smitandi
hósti í hrossum dregur dilk á eftir sér - 28.04.10
Nauðsynlegt
að hvíla hross sem hósta - 19.04.10
Smitandi
hósti í hrossum - 13.04.10