ORSÖK
Smitefni
- Inflúensuveira af stofni A, sem tilheyrir fjölskyldunni Orthomyxoviridae og ættkvíslinni Influenzavirus.
- Veldur alvarlegri fuglaflensu (Highly Pathogenic
Avian Influenza, HPAI) og/eða vægri fuglaflensu (Low Pathogenic Avian
Influenza, LPAI).
- Flokkast eftir H og N mótefnavökum.
- Allar tegundir af H (H1-H16) og N (N1-N9) -inflúensaveirum hafa greinst í fuglum, en oftast eru það H5 og H7 sem valda bráðri fuglaflensu.
Viðnámseiginleikar
- Hitastig: Þolir ekki 56°C í 3 tíma eða 60°C í 30 mínútur.
- Sýrustig (pH): Þolir ekki súrt sýrustig.
- Efni: Þolir ekki oxandi efni, natríum dodecyl sulfat, fituleysa og ?-propiolactone.
- Sótthreinsiefni: Þolir ekki formalín og joðsambönd.
- Umhverfisþol: Þolir vel kulda og getur lifað lengi í vef, saur og vatni.
FARALDSFRÆÐI
Bráðsmitandi
Móttækilegar dýrategundir
- Alvarleg fuglaflensa (HPAI) greinist oftast í hænsnfuglum og kalkúnum.
- Talið er að fuglaflensuveirur geti smitað allar fuglategundir, en þær sýna misalvarleg einkenni.
- Fulgaflensuveirur geta einnig smitað menn og svín.
Smitdreifing
- Bein snerting við sýkta fugla eða líkamsvökva þeirra, einkum saur.
- Mengað fóður, vatn, áhöld og vinnuföt.
- Einkennalausir sundfuglar og sjófuglar geta borið nýsmit í alifugla.
- Brotin egg geta smitað kjúklinga í útungunarvélum.
Smituppspretta
- Saur og slím úr öndunarfærum
- Fuglaflensuveirur geta lifað lengi í saur, vefjum og vatni.
Útbreiðsla
- Væg fuglaflensa (LPAI) finnst um allan heim.
- Fuglaflensaveirur af H5 og H7-gerð hefur greinst af og til í villtum fuglum í
- Evrópu og annars staðar í heiminum. Faraldur vegna alvarlegrar fuglaflensu (aðallega HPAI-H5N1) geisar nú í SA-Asíu og hefur sá faraldur breiðst út til vestur allt til austurhluta Evrópu. Árið 2003 kom upp faraldur (H7N7) í Hollandi og árið 2004 í Kanada (H7N7). Nýlega hafa einnig komið upp faraldrar í Ástralíu, Pakistan og Mexikó.
- Vísbendingar eru um að inflúensuveirur sem valda vægri fuglaflensu (LPAI), einkum af gerð H5, geti stökkbreyst og valdið alvarlegri einkennum.
SJÚKDÓMSGREINING
Meðgöngutími er 3-5 dagar.
Klínísk einkenni
- Alvarleg deyfð og lystarleysi.
- Veruleg fækkun eggja hjá varpfuglum.
- Bjúgur í andliti ásamt þrota og bláma á kamb og sepum.
- Depilblæðingar á yfirborði innri líffæra.
- Bráðadauði allt að 100%.
- Veiruræktun nauðsynleg fyrir endanlega greiningu.
Meinafræðilegar breytingar í hænsnfuglum
- Í bráðatilfelli getur meinafræðilegar breytingar vantað.
- Alvarleg blóðfylling í vöðva.
- Vessaþurrð.
- Bjúgur í undirhúð á haus og hnakka.
- Nefrennsli og slefa.
- Alvarleg blóðfylling í augnslímhúð, stundum depilblæðingar.
- Mikið slím í barka eða alvarleg barkabólga með blæðingum.
- Depilblæðingar á brjóstbeini, á kviðhimnu, í kviðfitu og kviðarholi.
- Alvarleg blóðfylling í nýrum og stundum þvagsýruútfellingar í nýrnapíplum.
- Blæðingar og rýrnun á eggjastokkum.
- Blæðingar í slímhimnu kirtlamagans (proventriculus), einkum á samskeytum hans og fóarnins (gizzard).
- Blæðingar og sár á slímhimnu fóarnins (gizzard).
- Blæðingar í eitlum í garnahengi.
- Meinafræðilegar breytingar eru svipaðar í kalkúnum, en oftast ekki jafn augljósar.
- Endur sem smitast hafa af fuglaflensu geta verið án klíniskra einkenna og meinafræðilegra breytinga.
Mismunagreining
- Fuglakólera (Fowl cholera af völdum Pasturella Multocida).
- Newcastle veiki, af bráðagerðinni (Velogenic Newcastle disease).
- Öndunarfærasýkingar, einkum smitandi kverka- og barkabólga (Infectious laryngotracheitis, ILT).
GREININGARAÐFERÐIR OG SÝNATÖKUR
Aðferðir
- Sá smitefni í frjóguð hænsnaegg sem hafa verið 9-11 daga í útungun, og því næst:
- Sýna rauðkornakekkjun (haemagglutination).
- Ónæmisdreifipróf (immunodiffusion) til að staðfesta tilvist inflúensu A veiru.
- Greining á undirflokki með monospecific mótefni.
- Virúlens-ákvörðun: Ákvarða IVPI-staðallinn í 4-8 vikna kjúklinga (IVPI = intravenous pathogenicity index).
- Haemagglutination og haemagglutination inhibition próf.
- Agar gel immunodiffusion.
Sýni
- Stroksýni úr koki eða endaþarmi (eða saur) á lifandi fuglum.
- Safnsýni úr líffærum eða saur úr dauðum fuglum.
VARNIR OG VIÐBRÖGÐ
Engin meðhöndlun er möguleg.
Sjúkdómavarnir
o Meina samgang milli alifugla og villtra fugla, einkum sundfugla.
o Meina alifuglum með óþekkta sjúkdómastöðu aðgang að búi.
o Takmarka aðgengi fyrir fólk að fuglum.
o Fullnægjandi aðferðir við þrif og sótthreinsun.
o Mælt er með “allt inn-allt út”-kerfi fyrir alifuglabú, þ.e. aðeins einn aldurshópur á hverju búi.
Viðbrögð þegar fuglaflensu verður vart
- Allir fuglar á viðkomandi búi eru drepnir.
- Hræjum, undirburði, áburði og því um líku er fargað.
- Nákvæm þrif og sótthreinsun.
- Bannsvæði og eftirlitssvæði eru ákvörðuð og reglur um þær settar.
- Nákvæmar faraldsfræðilegar rannsóknir eru framkvæmdar, þar sem reynt er að rekja smituppruna og hugsanlegt smit á önnur bú.
- Eftirlit er viðhaft á bann- og eftirlitssvæðum.
- Endurnýjun alifugla má ekki fara fram fyrr en eftir að lágmarki 21 dagur er liðinn eftir fullnægjandi þrif og sótthreinsun.
Fyrirbyggjandi aðgerðir með bólusetningum
Hingað til hefur verið litið svo á að bólusetning sé ekki rekstrarlega hagkvæm aðferð í alifuglarækt, vegna þess að sumir bólusettir fuglar geti sýkst og smitað aðra fugla. Hinsvegar hefur dautt bóluefni verið notað í Pakistan og Mexikó til að hefta útbreiðslu fuglaflensusmits þarlendis.
HEIMILDIR OG UPPLÝSINGAR
OIE. (2002). International Animal Health Code. http://www.oie.int
Prentvæn útgáfa