Samkvæmt lögum um dýrasjúkdóma nr. 25/1993 eru smitsjúkdómar flokkaðir í þrjá flokka A, B og C. Flokkunin byggir á því hve alvarlegir sjúkdómarnir eru. Skylt er að tilkynna um grun eða greiningu á A og B sjúkdómum til Landbúnaðarstofnunar. Ef dýralæknir fær grun um eða greinir C sjúkdóm skal hann hlutast til um að framkvæmdar séu frekari rannsóknir og tilkynna málið að því marki sem nauðsynlegt er.Dæmi um A sjúkdóma eru: Gin- og klaufaveiki, hundaæði, miltisbrandur, berklar, kúariða, mæði-visna, riðuveiki í sauðfé, svínapest, sullaveikifár, fuglaflensa o.fl.Dæmi um B sjúkdóma eru: Garnaveiki, hringskyrfi, salmonellusýkingar, sullaveiki, hestainflúensa, illkynja slímhúðarbólga í nautgripum, svínainflúensa, hundafár o.fl.Dæmi um C sjúkdóma eru: Hvanneyrarveiki, kýlapest, lungnapest, herpeskvef í hrossum, tannlos, rauðsýki í svínum, snúðtrýni, svínakregða, kattafár, smáveirusótt í hundum, smitandi lifrarbólga í hundum o.fl.
Sjá lög og reglur um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim.
Sjá viðbrögð við alvarlegum smitsjúkdómi í dýrum
Yfirlit yfir A, B og C sjúkdóma