|
Hugtak/orð |
Skilgreining |
Á við |
Tenglar |
|
Umráðamaður búfjár |
Eigandi búfjár eða aðili sem er ábyrgur fyrir fóðrun, aðbúnaði og vörslu þess í samræmi við lög nr. 103/2002 um búfjárhald o.fl.
|
Allt búfé |
|
|
Búfé |
Hross, nautgipir, svín, sauðfé, geitfé, alifuglar.
|
|
|
|
Svín |
Ásett lífdýr, gyltur og geltir.
|
|
|
|
Grís |
Spenagrís, fráfærugrís eða eldisgrís.
|
|
|
|
Merki |
Plötumerki, frostmerki, örmerki eða önnur rafræn merki, húðflúr eða önnur skráning sem Matvælastofnun viðurkennir fyrir einstakar búfjártegundir.
|
Allt búfé |
Viðurkenning merkja Viðurkennd merki |
|
Búsnúmer |
Landnúmer skv. fasteignamati auk númers rekstrareiningar innan býlis.
|
Nautgripi og svín |
|
|
Bæjarnúmer |
Númer býlis í sauðfjárrækt skv. landsmarkaskrá.
|
Sauð- og geitfé |
|
|
Einstaklingsnúmer |
Einkvæmt númer/bókstafir fyrir hvern ásetningsgrip á landsvísu.
|
Allt ásett búfé |
|
|
Eldisnúmer |
Fjögurra stafa númer grísa samsett af tveggja stafa framleiðandanúmeri og tveggja stafa vikunúmeri.
|
Grísi |
Hvernig á að merkja svín |
|
Framleiðandanúmer |
Tveggja stafa númer svínahjarðar ákveðið af landbúnaðarráðuneytinu.
|
Svínabú |
Framleiðandanúmer svínabúa |
|
Vikunúmer |
Tveggja stafa númer vikunnar sem spenagrís er fæddur í.
|
Grísi |
|
|
Fæðingarnúmer |
Einstaklingsnúmer hrossa á heimsvísu. Í WorldFeng einnig nefnt FEIF-ID númer.
|
Hross, folöld |
worldfengur.com/ |
|
Gripanúmer |
Númer grips innan hjarðar sem jafnframt er síðasti hluti einstaklingsnúmers.
|
Nautgripi, sauð- og geitfé, svín |
|
|
Hópnúmer |
Minnst tíu stafa númer hóps í alifuglabúi.
|
Alifugla |
Hvernig á að merkja alifugla |
|
Lamba-/kiðanúmer |
Einkvæmt númer lamba innan hvers býlis innan fæðingarárs.
|
Lömb og kið |
Dæmi um lamba-/kiðamerki |
|
Lamba-/kiðamerki |
Merki sem sett eru í lömb og kið að vori
|
Lömb og kið |
Dæmi um lamba-/kiðamerki |
|
Valnúmer |
Númer sem umráðamaður nautgripa velur.
|
Nautgripi |
|
|
Hjarðbók |
Gagnagrunnur eða skýrsluhaldsform sem umráðamanni búfjár, að alifuglum undanskildum, er skylt að skrá í tilgreindar upplýsingar um dýr í hans umsjón.
|
Nautgripi, sauð- og geitfé, svín og hross |
Nautgripir, sauð- og geitfé Svín Hross |
|
Heilsukort |
Safn upplýsinga með gögnum um greiningu og meðhöndlun sjúkdóma og fyrirbyggjandi aðgerðir.
|
Nautgripi, sauð- og geitfé, svín og hross |
Heilsukort |
|
Eftirlitsaðili |
Yfirdýralæknir, héraðsdýralæknir eða annar aðili sem hefur með höndum eftirlit með framkvæmd ákvæða reglugerðar þessarar.
|
Allt búfé |
|
|
Skráningaraðili |
Aðili sem annast skráningu upplýsinga í umboði landbúnaðarráðuneytisins, samkvæmt ákvæðum reglugerðarinnar.
|
Aðilinn er Bændasamtök Íslands |

|
|
Tölvuskráningarkerfi |
Skráningarkerfi sem yfirdýralæknir hefur eftirlit með.
|
MARKið |

|
|
Landsmarkaskrá |
Skrá um öll eyrnamörk, brennimörk og frostmörk ásamt öllum bæjarnúmerum í landinu sem Bændasamtök Íslands gefa út skv. reglugerð nr. 200/1998 um búfjármörk, markaskrár og takmörkun á sammerkingum búfjár, með síðari breytingum. |
Sauð- og geitfé |
|