7. gr. Hjarðbók
Umráðamaður búfjár er ábyrgur fyrir skráningu upplýsinga um öll dýr hjarðar sinnar í sérstaka hjarðbók, annaðhvort í gagnagrunn eða á skýrsluform, sem skráningaraðili lætur í té og viðurkennt er af Matvælastofnun.
Eftirfarandi upplýsingar um svín skal skrá í hjarðbók:
a. Einstaklingsnúmer.
b. Fæðingarmánuð og ár.
c. Kyn dýrs.
d. Stofn dýrs.
e. Einstaklingsnúmer móður.
f. Dagsetningu dauða eða slátrunar.
g. Alla svína og grísaflutninga til og frá hjörð, bæði varanlega og tímabundna.
Auk þess;
i) nafn, heimilisfang og framleiðandanúmer sendanda og móttakanda;
ii) fjölda dýra sem flutt/seld eru;
iii) dagsetningu flutnings;
iv) nafn og kennitölu flutningsaðila
Þegar nýtt svín kemur inn í hjörð skal skrá einstaklingsnúmer þess. Þegar nýir grísir koma inn í hjörð skal skrá eldisnúmer þeirra.
|
Hjarðbók fyrir svín er ekki tilbúin ennþá. Hún mun verða í MARKinu, gagnagrunni sem töluvdeild Bændasamtaka Íslands hefur hannað. |