Fara á forsíðu
DÝRAVERND - TILRAUNADÝR

Tilraunadýranefnd er opinber nefnd skipuð af umhverfisráðherra sbr. 16. gr. laga nr. 15/1994 um dýravernd. Nefndin er skipuð til fjögurra ára í senn og í henni sitja Sigríður Björnsdóttir, dýralæknir hrossasjúkdóma og Jón Kalmannsson. Yfirdýralæknir, Halldór Runólfsson, á einnig sæti í nefndinni og er hann formaður hennar.

Nefndin hittist reglulega og tekur til umfjöllunar umsóknir um leyfi til dýratilrauna,  leyfi fyrir aðstöðu fyrir tilraunadýr og tilraunastöð. Nefndin starfar samkvæmt 16 gr. laga nr. 15/1994 um dýravernd og reglugerð nr. 279/2002 um dýratilraunir. Sjá reglugerðir um dýravernd.

Umsóknir um leyfi til dýratilrauna má senda með tölvupósti til mast@mast.is eða með pósti til Matvælastofnunar.

Hægt er að nálgast reglugerð 279/2002 um dýratilraunir (Lög og reglur) hér á vefnum.

Frá og með 27. maí 2003, hefur tilraunadýranefnd heimild frá umhverfisráðuneytinu til að innheimta leyfisgjald fyrir þau leyfi sem nefndin veitir. Fyrir hverja tilraun sem tilraunadýranefnd veitir leyfi fyrir, skal leyfishafi greiða fjárupphæð sem nemur 5000.- krónum og er sú upphæð í samræmi við lög nr. 88/1991 um aukatekjur ríkissjóðs.

EYÐUBLÖÐ - DÝRAVERND

Umsókn um leyfi til dýratilrauna

Upplýsingar

Fróðleikur frá A-Ö

A Á B C D E É F
G H I Í J K L M
N O Ó P R S T U
Ú V X Y Ý Þ Æ Ö

Spurt og Svarað