DÝRALÆKNAR - HÉRAÐSDÝRALÆKNAR
Landinu er skipt í 14 umdæmi. Í hverju umdæmi er umdæmisskrifstofa MAST þar sem héraðsdýralæknir sinnir opinberu eftirliti með heilbrigði og velferð dýra og framleiðslu búfjárafurða á svæðinu.

Héraðsdýralæknar
Í sínu umdæmi hafa héraðsdýralæknar eftirlit með sláturdýrum, sláturafurðum og afurðastöðvum, ásamt eftirliti með heilbrigði, hirðingu, aðbúnaði og aðstöðu nautgripa á búum þar sem framleidd er mjólk til sölu. Héraðsdýralæknar sinna framkvæmd sóttvarnaaðgerða og fylgjast með viðhaldi varnargirðinga í umdæminu. Þeir hafa eftirlit með búfé og öðrum dýrum eftir því sem lög ákveða. Einnig halda þeir skrá yfir alla eftirlitsskylda aðila í sínu umdæmi og sinna eftirliti með þeim samkvæmt sérstakri eftirlitsáætlun, sem er endurskoðuð um hver áramót. Héraðsdýralæknar vinna einnig önnur störf sem MAST felur þeim á hverjum tíma.
Í Gullbringu- og Kjósarumdæmi, Skagafjarðar- og Eyjafjarðarumdæmi og Suðurlandsumdæmi sinna héraðsdýralæknar eingöngu eftirlitsstörfum, en í öðrum umdæmum annast þeir jafnframt eftirlitsstörfum einnig almenna dýralæknaþjónustu, þ.m.t. vaktþjónustu. Ávallt skal aðskilja eins og kostur er eftirlitsstörf dýralækna og almenna dýralæknisþjónustu.
Sjá umdæmi héraðsdýralækna
til að finna héraðsdýralækni
viðkomandi umdæmis.
Eftirlitsdýralæknar
Eftirlitsdýralæknar hafa starfsaðstöðu á skrifstofu héraðsdýralæknis og starfa undir stjórn viðkomandi héraðsdýralæknis við lögboðin eftirlitsstörf, m.a. kjötskoðun, eftirlit með mjólkurframleiðslu og eldi sláturdýra. Í Gullbringu- og Kjósarumdæmi, Skagafjarðar- og Eyjafjarðarumdæmi og Suðurlandsumdæmi eru starfandi eftirlitsdýralæknar allt árið. Jafnframt ræður Matvælastofnun eftirlitsdýralækna til starfa í öðrum umdæmum þar sem þess er þörf, t.d. við sauðfjárslátrun á haustin.