Matvælastofnun hefur yfirumsjón með öllu er varðar heilbrigðismál dýra og hollustuhætti við framleiðslu og meðferð búfjárafurða. Þar ber helst að nefna eftirlit með störfum héraðs-, sérgreina- og annarra dýralækna, heilbrigði dýra, sjúkdómavarnir, forvarnir og fræðslustarfi um búfjársjúkdóma, skipulagning, gagnaöflun og skýrslugerð varðandi dýrasjúkdóma, samskipti við alþjóðastofnanir og önnur yfirdýralæknisembætti. Undir þessum flokki er að finna eftirfarandi efni:
- Dýralyf: Heimildir dýralækna til að ávísa lyfjum
- Dýralæknar: Héraðsdýralæknar, listi yfir starfandi dýralækna
- Dýravernd: Hvalreki, tilraunadýr, tilkynningar um illa meðferð
- Eftirlit: Aðbúnaður búfjár, búfjáreftirlit, fiskeldi
- Merkingar: Einstaklingsmerking búfjár, skilyrði, ísetning, þrif, heilsukort, hjarðbók
- Sjúkdómar: Flokkun smitsjúkdóma, orsök, greining, faraldsfræði, viðbrögð
- Smitvarnir: Ferðamenn, bændur, varnarhólf, líflambaflutningar