Matvælastofnun
EFTIRLITSNIÐURSTÖÐUR - SKELFISKUR

Matvælastofnun birtir hér eftirlitsniðurstöður á ræktunarsvæðum bláskelja (kræklings) fyrir þörungaeitur og eiturþörunga jafnóðum og þær koma í hús. Þessar niðurstöður segja til um hvort skel á tilteknu svæði sé neysluhæf og svæðið opið til nýtingar. Á sumum svæðum er eingöngu fylgst með eiturþörungum í sjó og í þeim tilfellum er eingöngu gefin út viðvörun vegna hugsanlegrar eitrunar í skelfiski séu eiturþörungar yfir viðmiðunarmörkum. Niðurstöður greininga á eiturþörungum má einnig finna á heimasíðu Hafrannsóknarstofnunar.

Almennt séð ætti fólk ekki að tína villta skel til neyslu að sumarlagi vegna hættu á þörungaeitrun, nema að staðfest sé að ekki séu eiturþörungar á svæðinu og/eða að eiturgreiningar sýni ótvírætt að skelin sé neysluhæf.

Á sumrin (júní til september) gilda niðurstöðurnar í 7 daga og að vetrarlagi í 4 vikur.

Nánari upplýsingar gefa Þór Gunnarsson og Dóra S. Gunnarsdóttir hjá Matvælastofnun.


Framleiðslusvæði Tegund Skelfiskstekja  Kræklingatínsla
   Breiðafjörður - Kiðey Bláskel Opin Í lagi
   Eyjafjörður - Hrísey Bláskel Opin Í lagi
   Hvalfjörður - Hvammsvík Bláskel Lokuð Varasöm
   Mjóifjörður Bláskel Lokuð Í lagi
   Steingrímsfjörður Bláskel Opin Í lagi
   Þistilfjörður Bláskel Lokuð Í lagi

   
EFTIRLIT Á VÖKTUNARSVÆÐUM - NÝJUSTU RANNSÓKNANIÐURSTÖÐUR


Ítarefni

    Flokkun framleiðslusvæða skelfisks A/B/C

    Fyrirkomulag eftirlits með framleiðslusvæðum og heilnæmiskannanir

    Starfsleyfi - Vinnsla á skelfiski





























Upplýsingar

Fróðleikur frá A-Ö

A Á B C D E É F
G H I Í J K L M
N O Ó P R S T U
Ú V X Y Ý Þ Æ Ö

Spurt og Svarað