Matvælastofnun
EFTIRLITSNIÐURSTÖÐUR - EFTIRLIT ESA

Eftirlitsheimsóknir Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA)

Eftirlitsstofnun EFTA ber skylda til þess samkvæmt EES samningi að hafa eftirlit með því að aðildarríki hans (þ.e EFTA ríkin) innleiði löggjöf samningsins og uppfylli þær kröfur hún gerir. Þessu hlutverki sinnir ESA með eftirlitsheimsóknum til ríkjanna þar sem eftirlit eftirlitsaðila er tekið út á sviði matvæla- og fóðuröryggis, dýraheilbrigði og dýravelferðar. Í þeim tilvikum sem löggjöf ESB hefur ekki verið innleidd fer stofnunin í svokallaðar æfingaferðir (preparatory mission) en þá eru eftirlitsskýrslur ekki birtar á vefsíðu stofnunarinnar.

Frá árinu 2005 hefur stofnunin að jafnaði komið í 2-4 heimsóknir á ári til Íslands en þeim hefur fjölgað í 5-6 heimsóknir á síðustu tveimur árum.

Eftirlitsáætlun 2012

Árið 2012 verða heimsóknirnar alls fimm. Ekki verður um neina æfingaheimsókn að ræða en tvær heimsóknir varða löggjöf um búfjárafurðir (kjöt og mjólk) sem tók gildi 1. nóvember 2011, landamærastöðvar verða aftur fyrir valinu sem og súnur og umbúðir matvæla.

Fyrri árshelmingur 2012:

1. Kjöt og mjólk (hollustuhættir – sláturhús og vinnslustöðvar) 7. - 16. maí 
    (tvær heimsóknir sameinaðar í einni)

Seinni árshelmingur 2012:

3. Súnur (m.a. Salmonella) 5 dagar.

4. Innflutningur og landamærastöðvar 5 dagar.

5. Efni og hlutir í snertingu við matvæli 5 dagar.

Undirbúningur heimsókna er í höndum stjórnsýslusviðs MAST sem veitir nánari upplýsingar ef óskað er.



Ítarefni

    Skýrslur ESA með niðurstöðum eftirlitsheimsókna
 


Upplýsingar

Fróðleikur frá A-Ö

A Á B C D E É F
G H I Í J K L M
N O Ó P R S T U
Ú V X Y Ý Þ Æ Ö

Spurt og Svarað